mánudagur, júní 27, 2011

Dagur 113 ár 7 (dagur 2670, færzla nr. 1024):

Höfum kvikmynd kvöldsins:

Treilerar:



Treevenge. (Er þetta einusinni alvöru mynd? Veit ekki.)



Singapore Sling. (Eins og hljómsveitin.)



Titanic II. (Alvöru mynd, merkilegt nokk.)

Kvikmynd kvöldsins verður með pínulítið óvenjulegu sniði: hún er í pörtum. Hentugum molum sem ættu að endast flestum út vikuna.

Þetta er sem sagt "Barbariana," sem er kvikmynd gefin út á youtube, gerð af einkhverjum pjökkum um helgar eða hvenær sem þau höfðu tíma, fyrir næstum engan pening. Gott stöff:


Pt1

Pt2

Pt3

Pt4

og Pt5

sunnudagur, júní 19, 2011

Dagur 105 ár 7 (dagur 2662, færzla nr. 1023):

Reykjavík líkist Detroit alltaf meira og meira:



Þetta hús er brunnið, líka húsið hinumegin við skarðið - þar sem einmitt var hús... áður en það brann:



Svona var umhorfs í Hörpunni þegar ég leit þar við:



Þetta er svo í Öskjuhlíðinni:

þriðjudagur, júní 14, 2011

Dagur 100 ár 7 (dagur 2657, færzla nr. 1022):

Makríllinn er kominn. Sem þýðir lengri vinnudagur, en örari pásur.

***



Amma í náttúrulegu umhverfi.

***

Hérna: músík.

fimmtudagur, júní 09, 2011

Dagur 95 ár 7 (dagur 2652, færzla nr. 1021):

Það er stutt í makrílinn. Mér heyrist að hann sé ekki alveg sem frábærastur ennþá, en það heyrir kannski til bóta.

Sjáum hvað setur.

***

Nokkrar myndir sem ég luma á:



Packard.



Þeir gera ekki svona lengur.



Ekki svona heldur - sem er kannski eins gott, því það er hið snúnasta mál að aka svona kerru.



Þarna er ég á hamborgarafabrikkunni, og þessi þarna er Unnar.



Þarna eru hanastélin sem við fengum okkur - þetta fjólubláa er kallað "glóðarauga," þetta appelsínugula er "Tequila sunrise." Bragðast svipað og frostpinni.



Þetta drakk ég í rútunni á milli stoppa.



Þessi mynd sannar að ég var einu sinni nálægt rútu.



Reykjavík er farin að minna svolítið á Detroit.



Kannski við ættum að gefa þeim jólatré, sem þeir gætu þá kveikt í?



Það er meira um svona þarna, en það er ekki búið að spreya allar rústirnar á svona listrænan hátt.

sunnudagur, júní 05, 2011

Dagur 91 ár 7 (dagur 2648, færzla nr. 1020):

Hér er annar þáttur í heimildarmyndaflokknum um vestmannaeyjar:

Í stórum dráttum er þetta meirihlutinn af öllum eldi sem ég á á filmu. Þarna má líka sjá Bassa bregða fyrir, þar sem hann er að dunda sér við að kveikja í spreybrúsum, á meðan Ásgerður Helga bregst við á afar hysterískan hátt.

Bassi stressar sig ekki á smá spreybrúsum.



Þessi þáttur sýnir okkur að í Vestmannaeyjum berst hljóð hraðar en ljós, að 9 symfónía Beethovens er allsekkert það löng, og Eyjafilm fílar eld.

miðvikudagur, júní 01, 2011

Dagur 87 ár 7 (dagur 2644, færzla nr. 1019):

Á vísi.is er rafrænt tarot. Þar stendur: "Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil."

Allt í lagi... athugum hvort þetta getur þá ekki svarað ýmsum brennandi spurningum:

"Hvort er betra, kók eða pepsí?"

Tarot svarar:

"Stolt þitt eða egó hefur jafnvel verið sært nýverið. Svipað og turninn á myndinni er líðan þín ekki í jafnvægi. Atburðir sem trufla hversdagsleika þinn eru eflaust í formi breytinga sem eru einungis til hins betra.

Stundum er nauðsynlegt að ganga í gegnum erfiða hjalla til að komast að sólinni og eru þetta án efa óhjákvæmilegar umbreytingar á högum þínum sem tengjast heimili þínu, ástinni eða starfi.

Túlkun þín á þessari aðstoð gæti verið óþægileg á einhvern hátt en hún birtist í formi atburða sem þú þekkir án efa ekki. Hér er á ferðinni tækifæri sem þú færð einungis með þessu móti."


Mmm... já. Appelsín, semsagt?

Jæja, prófum aftur:

"Er í lagi að drekka mjólk sem er komin 4 daga yfir síðasta söludag, og af hverju?"

Og Tarot svarar:

"Kona þessi er vel gefin, sjálfstæð og býr yfir miklum styrk sem flytur hana hæstu hæðir ef því er að skipta. Hún gæti verið ekkja, kona einstæð sem gengið hefur í gegnum skilnað eða sú sem kýs að vera sjálfs síns herra.

Þrátt fyrir styrk hennar og einveru sem hún kann vissulega að meta á hún það til að vera mjög einmana. Metnaður hefur einkennt hana frá blautu barnsbeini og hún á það til að taka starf sitt fram fyrir barnsburð eða giftingu og því haldið í eigið sjálfstæði með þessum hætti."


Mjólk er búin til úr... konum... eða öfugt? Sem þýðir hvað?

Reynum eitthvað einfaldara:

"Er rétt að gefa kisu mjólk?"

"Áhyggjur tengdar fjárhag þínum kunna að vera efst á baugi hjá þér og jafnvel atvinnuleysi að angra þig. En fátækt þarf ekki að tengjast peningum heldur oft á tíðum andlegri líðan.

Þú þarfnast eflaust ástar, umhyggju og ekki síður athygli um þessar mundir en ættir reyndar að leita betur innra með þér. Með því að gera það finnur þú ný tækifæri sem tengjast framtíð þinni og öðlast þannig skilning á tilgangi lífsins.

Þú getur búið þér unaðsreit ef þú trúir á hann. Þegar þú finnur fyrir löngun að bragða á allsnægtum heimsins og þiggja þær með kærleik þá veitist þér einfaldlega allt en það jafngildir alls ekki því að svipta aðra einhverju.

Hjálpin er nær en þig grunar og vandamálin leysast skjótt með jákvæðu viðhorfi og óbilandi bjartsýni."


Einfalt já eða nei svar hefði alveg dugað, sko...

Jæja, ef tarotið ætlar að vera með einhverja stæla:

"Hvernig skal bera sig að ef maður er á rölti úti í feni og ninja sker af manni fótinn og límir á annan sem er eins, nema klónaður af þeim fyrri?"

Sjáum hvernig Tarotið glímir við þetta:

"Hér birtist björt framtíð þín þar sem þú skilur eftir erfiðleika og tekst á við nýja og betri tíma.

Endir verður á leiðindum, áhyggjum og vanlíðan. Hafðu hugfast að öll þín vandamál verða ekki leyst á einum degi heldur munu aðstæður lagast með tímanum. Þegar þú veist hver þú ert í raun og veru, eflir þú hæfileika þinn til að láta alla drauma rætast vegna þess að möguleikar þínir eru óendanlegir.

Oft á tíðum er um ferðalag eða flutningar að ræða þegar sverðin sex koma fram."


Það var og.