fimmtudagur, ágúst 29, 2013

Dagur 178 ár 9 (dagur 3463, færzla nr. 1226)


Enn eitt öngstrætið.  Fullt af trjám, þetta.


Laugavegurinn.


Annað hof.  Allt fullt af þeim þarna.


Ég var þarna.


Séð í hina áttina.


Bautasteinn.


Ljónastytta og vatnsker.


Ljón.


Þessi stóð þarna úti á götu og hrópaði á fólk.


Fínn kofi.


Það er eitthvað merkilegt þarna inni.  En var lokað.


Verzlunargata.  Þarna eru barir.


Ég veit ekki meir, og get ekki tjáð mig um hvað stendur á þessu skilti.


Köttur.


Nóg af köttum.  Larna lágu þeir, og veltu sér makindalega um.  Það virðist vera mjög frábært að vera köttur í Shinjuku.  Nóg af heróíni fyrir alla.


Úti á götu.


Hmm... hvað ætli þeir selji þarna?


Á veitingastað þar sem allt var djúpsteikt.


Þarna er bjórhellingargræjan.  Já.  Það er það sem það hljómar.


Einn af fjölmörgum bílum með hátalara á þakinu.  Ég hef ekki hugmynd um hvaða boðskap þeir voru að breiða út.  "Kaupið Bragakaffi", hugsa ég.

mánudagur, ágúst 26, 2013

Dagur 175 ár 9 (dagur 3460, færzla nr. 1225)


Ég var þarna.


Eitthvað hlið.


Skólakrakkar.  Það var allt fullt af þeim þarna.


Týpísk gata.  Eða öngstræti milli húsa.  Það getur ekki allt verið aðalvegurinn.


Þetta hús er eitthvað kúnstugt.


Ég var þarna líka.


Enn í Shinjuku, en uppi á einhverjum hól.  Þeir sjást ekkert, þessir hólar, fyrir húsum.  Þarna er fólk á ferli, og ein skólastelpa.


Svona lagað ert til.  Mjög sveitó.


Annað hof.  Allt fullt af hofum.  Kannski ekki skrýtið, því það eru víst 5.000.000 guðir í Shinto, og svo eru Búddistar og örugglega fullt af öðru sem ég veit ekkert um.


Ég var þarna.


Þarna líka.


Dvergarir 7.  Einn var í fríi þegar ég var þarna.


Ég var þarna.


Svona er Tokýo.


Sjáið þetta.


Ekki er mér fyllilega ljóst hvað átti sér eiginlega stað þarna, en, þetta gerðist.


Sálnahliðið.  (Eða þannig...)


Ég var þarna.  Ég hefði geta hirt eitt, enginn hefði saknað þess.


Ég skoðaði þetta hof aðeins.  Það er í notkun.


Sko.


Það fylgja svona hofum allmargar auka-byggingar, sem ég veit satt að segja ekkert um, annað en að þær eru alltaf til staðar, alltaf staðsettar á svipuðum slóðum miðað við hver aðra, og alltaf umkringdar svipuðu dóti.


Svona er þetta.


Ég var þarna.


Fínn kofi.

Hér er vídjó af þessu öllu og meira til.

föstudagur, ágúst 23, 2013

Dagur 172 ár 9 (dagur 3457, færzla nr. 1224)




Kominn til Tokyo aftur.


Þetta er allt mjög... mannlaust.


Ég var þarna.


Í Shinjuku.


Square Enix byggingin er mjög skrýtin.


Fann þessi skemmtilegu mótmæli.


Þarna eru þau.  Ekki mikil um sig, en hávær.


Ég var þar.


Mikill viðbúnaður.


Mótmælendur veifandi flöggum.


Týpískt hverfi.


Breiðstræti... eða þannig.


Furðulegur bíll.  Bara framleiddur í 1000 eintökum víst.


Tveir sopar af bjór.  Þetta er reyndar mjög góður bjór, en maður vill hann í stærri umbúðunum.