Ég segi ykkur sögu um úrkynjaðan mann
hamslaus af heimsku og ótta er hann
er fréttist af kínverskum vírus úti í heim
fékk hann hvellskitu, skaust útí geim
Allan salernispappírinn keypti hann í hvelli
því hann sá að fólk var að deyja úr elli
Næst greip hann til grímunnar fljótur
því hann er svo myglaður, grár og ljótur
Nú er hann í talsverðum vanda
því hann á svo erfitt með að anda
hann er orðinn blár í framan
held hann hafi af því gaman
Ég held því fram í þessari rímu
það sé erfitt að anda gegnum grímu
Hann gagnslaus er öllum, bæði konum og köllum
og væri best geymdur á fjöllum með tröllum.
En...
Ekki skal gera að því gys
að grímurnar eru mikið mengunarslys
þær fjúka alla leið uppá Seltjarnarnes
til meiri ama en Exxon Valdez