mánudagur, desember 31, 2007

Dagur 311 ár 4 (dagur 1395, færzla nr. 635):

Þá er árið að fara að klárast, og tími til að skoða hvað af spádómum mínum síðan í janúar hafa gengið eftir:

Ég verð illa svikinn ef Fidel Castro hrekkur ekki uppaf í ár.

Ég er illa svikinn. Árið skuldar mér afsökun.

það verða kosningar. Þær munu fara svona: D fær 40%, S fær 25%, VG fær 10%, F fær 7-8%, B fær 10%

VG fékk 14%, en að öðru leiti var þetta rétt hjá mér. En, að spá um úrslit kosninga á íslandi er svona eins og að spá því að nóttin verði dimm á eftir.

Það verður jarðskjálfti í Kalíforníu aftur.

Það urðu alveg jarðskjálftar, en ekki í Kalíforníu.

það heldur áfram að vera ólga í mið-austurlöndum,

Right on.

fólk í fréttum mun halda áfram að vera illa máli farnir vitleysingar.

... og horfir ekki til bóta á næsta ári.

Greiningadeild ríkislögreglustjóra mun ítrekað verða sér til skammar á komandi árum, en mun ekki verða lögð niður fyrir vikið.

Hvað gerir greiningardeildin annars? Ekki voru það þeir sem leyfðu öllum þessum bófum að rápa inn og út úr landinu? Eða hvað...?

Lögreglan verður verr og verr liðin eftir því sem hún sekkur dýpra í fasisma, en eftir því sem hún sekkur dýpra í það fen nær hún fleyri dópdílerum og neytendum, svo og öðrum aðilum sem ekki töldust glæpamenn í fyrra en eru það nú.

Samkvæmt fréttum stemmir þetta hjá mér. Og ekki bara það, heldur er hér á ferðinni fullkomlega endurnýtanlegur spádómur. Hann verður alltaf sannur.

Ríkið mun klúðra einhverju.

Það er það sem Ríki gera. Hugsið ykkur, ef ekki væri fyrir Ríkið, myndi svo fátt klúðrast að til hagsbóta horfði. Við getum ekki haft það.

Gæjinn sem rann á bananahýði og kveikti því óvart í á 11 stöðum í eyjum fyrir algjöra slysni og óvitahátt næst, en verður sleppt aftur að lokinni yfirheyrzlu. Þá rennur hann til í hálku og kveikir óvart og fyrir einbera slysni í á tveimur stöðum í viðbót.

Það var einhver tekinn til yfirheyrzlu. Ég tjái mig ekkert um það, vitandi ekkert um það mál.


Færri munu deyja í umferðinni í ár, en til að vega upp á móti því munu fleyri slasast, því vegna hraðatakmarkana munu gangandi vegfarendur gera sig heimakomna úti á miðri götu í meira mæli en áður.


Satt og rétt, sýnist mér.


Það fer að gjósa einhversstaðar. Ég er viss um það. Í Heklu eða einhversstaðar. Það hefur ekki komið gos svo lengi.


Ég er enn að bíða. Landið hefur um 8 tíma til að láta það rætast.

Ég er nú enginn Nostradamus. Af 11 ágiskunum... ég meina spádómum, þá hafa 5 nokkuð ljóslega gengið eftir, ég er ekki svo viss um 2, og allt hitt hefur svikist undan eftirgengni.

Gengur bara betur næst.

fimmtudagur, desember 27, 2007

Dagur 307 ár 4 (dagur 1391, færzla nr. 634):

Einusinni fyrir langa löngu var jólarásin. Hvar er hún nú? Þið hljótið að muna eftir henni: útvarpsrás sem spilaði óviðeigandi músík milli þess sem heimskir krakkar töluðu tómt bull og gerðu símaöt hjá vinum sínum.

Hvar er jólarásin? Hvernig getur maður komist í almennilegt jólaskap án þess að einhver asni spili fyrstu tuttugu sekúndurnar úr einhverju rapp-lagi, og byrji svo að kjafta um hvað vartan á stóru tá vinstri fótar sé orðin stór?

Jamm.

Í staðinn get ég náttúrlega dundað mér við að þjálfa hundinn í að bíta köttinn. Það hefur ekki gengið sem skildi. Jafn illa gengur að fá köttinn til að bíta hundinn. Á morgun get ég drukkið fullt af víni og teipað rakettur við þessi dýr, og sent þau bæði út á sporbaug.

Ég held ég geri það bara.

þriðjudagur, desember 25, 2007

laugardagur, desember 22, 2007

Dagur 302 ár 4 (dagur 1386, færzla nr. 632):

Þá er ég fyrir löngu kominn heim.



Hér er hundurinn:



Hér er kötturinn:



Hér er stór hluti af fjölskildunni. Af þeim sem eru á þessari mynd hér fyrir neðan eru... margir... býst ég við... mættir. Hef ekki nennt að fara yfir það náið. Skilst helst að Illugi ætli að koma einn af þessum dögum. Á næsta ári kannski. Eða eftir 10 ár. Mig minnir einhvernvegin að mamma hafi borið þær fregnir í mig fyrir mörgum tunglum að hann vildi fá far einhverntima, á einhverri dagsetningu, til Eyja. Veit ekki meir. Hann hefði geta hringt beint í Hannes, en nei...



Amma ætlar að vera heima hjá sér yfir Jólin. Hér er mynd af henni síðan seinast:



Hún sveltur ekki þarna í vesturbænum held ég.

Fleiri dýramyndir fyrir ykkur:



Dýr



Dýr



Dýr.



Þá er þetta farið í hund & kött.

miðvikudagur, desember 19, 2007

Dagur 299 ár 4 (dagur 1383, færzla nr. 631):

Lognið er á svo mikilli ferð í eyjum, blandað vatni og hrist, að það er ekki fært þangað örðuvísi en með mannskemmandi farartækjum.



Þessari mynd stal ég á fólskulegan hátt á eyjar.net.

Hvað þá? Nú... eitthvað, býst ég við.

Búinn að ná í jólapakka handa öllum. Flestum, allavega. Hef þá tíma til að pakka inn. Það á eftir að fara í taugarnar á öllum jafnt, býst ég við. Æ, ég veit það ekki. Þarf að byrja að gefa öllum bara kippu af bjór eða eitthvað. Eða rauðvín. Hátíðarskapið svífur svo vel á mann eftir nokkur glös af því.

Kannski ekki þetta rauðvín samt. Ekki nema 12.5%, lofar ekki góðu. Kemur sennilega af köldu svæði þá. Þetta! Með 14%, þá ætti það að koma vel út - eftir svona 2-3 ár.

Hmm... ætti ég að ná mér í pizzu? Fara svo með pizzuna að heilsa upp á ömmu? Kannski...

This site is certified 30% EVIL by the Gematriculator

mánudagur, desember 17, 2007

Dagur 297 ár 4 (dagur 1381, færzla nr. 630):



Ég ætla að kalla þessa mynd: "Úrval í Ljósaperum."

Þessi mynd er innblásin af auglýsingum sem ég hef heyrt í útvarpinu. Það virðist nefnilega vera, að til að gera auglýsingu, þá þarf maður ekki að hafa klárað barnaskólann.

Ég nefni dæmi: "Við höfum mikið úrval í jólaseríum," "hér er mikið úrval í tónlist," osfrv.

Sko, það er mikið úrval í kjötborðinu í Nóatúni, það er úrval í Húsgagnahöllinni, og það er úrval í Bónus. Ég get hinsvegar sagt með fullvissu að það er EKKERT úrval í ljósaperum, fyrir utan þessar sem ég hef mynd af hér að ofan.

Málið er, að á íslensku; hinu framandi og dularfulla tungumáli sem fjölmiðlafólk kann ekki; þá er úrval AF jólaseríum Í þessari og hinni búðinni. Það er úrval af kjöti í Nóatúni, það er úrval af tónlist þarna og á hinum staðnum, og það er úrval af húsgögnum í húsgagnahöllinni.

Það er ekki úrval í kjötinu. Að minnsta kosti ekki mínu kjöti. Og síðasta hefti af Úrvali sem ég sá var frá því 198X, sem myndi ekki gera steikina mjög listaukandi. Það er lágmarkskrafa að það sé nýtt Úrval, sem annar hver maður á landinu er ekki búinn að blaða í.

Úrval í jólaseríum... *grml*

Við hverju er svosem að búast af fólki sem getur ekki talað í 2 mínútur án þess að segja að eitthvað sé varðandi eitthvað annað?

Hvernig verður tungumálið í framtíðinni?

"Þetta er Máni Snær, varðandi nafn, hann er 14 hvað varðar aldur varðandi ár og er í námi varðandi skóla hvað varðar 8. hvað varðar bekk."

Hljómar vel, ekki satt?

Þetta lið segir kannski líka "Ég hlaupti," og "mér langar?"

laugardagur, desember 15, 2007

Dagur 295 ár 4 (dagur 1379, færzla nr. 629):



Þá er að uppfæra þetta, þó ekki sé til annars en að halda í við klámvæðinguna. Það verur mikilvægara með hverjum deginum.

Var að hlusta á þá í útvarpinu áðan, veit ekki hvaða stöð, bylgjan, 9.77, eða RÚV, þar sem var verið að tala um klám. Jú, einn af þeim var víst á móti öllu klámi og strippbúllum á þeirri forsendu að það fólk sem þar vinnur við að afklæðast hafi allt meira og minna verið misnotað í æsku og hefði þess vegna ekki vit fyrir sér.

Það var orðað einhvernvegin þannig, að þessar blessuðu súludömur hefðu allar verið þvingaðar út í þetta. Ekki kom fram hvernig. Ætti að vera auðvelt þar sem þær eiga að vera hugsunarlaus átómöt.

Þetta eru náttúrlega áhugaverðir fordómar í garð súludansara.

En hvað um það, ég fékk það helst út, að ef fólk hefði verið misnotað í æsku, þá hefði það ekkert stjórn á gerðum sínum, og bæri þar af leiðandi ekki ábyrgð á þeim. Væru í raun bara vélar, eða eins og pöddur. Nú, ég hugsa með mér, ef fólk ber ekki ábyrgð á gerðum sínum, orðið meira en 5 ára gamalt, þá eru bara tvær leiðir í stöðunni:

A: það getur farið beint inn á Klepp og verið þar alla tíð, enda er það greinilega öllum til ama úti á götu, eigrandi um stefnulaust þar til einhver platar það til að vinna á bar.

B: Það gæti farið á þing. Þar ber enginn ábyrgð á neinu, þær setningarnar sem þingmenn segja þurfa ekkert að vera málfræðilega rétt upp byggðar né þarf eitt einasta orð sem viðkomandi lætur úr sér skiljast. Fullkomið djobb fyrir einstakling sem hefur ekki vit fyrir sér.

Ég velti líka fyrir mér, hvort fólk sem orðið hefði fyrir títtnefndri misnotkun í æsku hætti þá ekki bara að vera "sentient." Samkvæmt þeirri kenningu þá væri að meinalausu hægt að nota slíkt fólk í allskyns líffærarannsóknir sem væri alveg siðlaust að setja venjulegt, lifandi, ózombifíað fólk í.

Nei, ég held að fólk þurfi að bera ábyrgð á sér og gjörðum sínum sjálft, sama hve misnotað það er. Nauðgun er engin afsökun fyrir óvitahegðun seinna á ævinni. Allir yfir 10 ára aldri eru ekki óvitar lengur, og 18 ára eru lagalega sjálfráða, skilst mér. Sama hvað. Mis-púritanskir hópar úti í bæ geta ekki verið mamma þeirra allra að eilífu.

Hefnd get ég skilið*, en að fletta sig klæðum í mánuð fyrir pening, og kenna einhverju atviki úr æsku um - það er bara kjaftæði.

*Það eru fullkomlega eðlileg og fullkomlega ókristileg** viðbrögð við ofbeldi.
**Kristni er ekkert ofur-eðlileg hegðun.***
***Trúarbrögð, á meðan eðlileg, vinna til að hamla allskyns eðlilegri hegðun, því hún er ekkert alltaf viðeigandi.
****Fólk er ógeðslega heimskt.

miðvikudagur, desember 12, 2007

Dagur 292 ár 4 (dagur 1376, færzla nr. 628):

Ef einhver les þetta, hve mikið veit sá hinn sami um mig? Ekki margt, grunar mig. Ég skrifa nefnilega afar sjaldan það sem drífur á daga mína hérna.

En, samkvæmt teljaranum mínum skoða síðuna allra þjóða kvikyndi. Einn frá Hong Kong núna nýlega. Einn frá bænum "Viljandi" í Eistlandi fyrir einkverjum vikum. Já, það er staður þarna úti sem heitir "Viljandi."

Og hvað eru menn að skoða?



Þessi mynd hefur verið vinsæl undanfarið. En bara núna nýlega. Áður var það BMW Isetta, en það er farið að draga úr áhuga á henni. En það er eitt sem dregur alltaf að sér fólk:

Ford Torino!



Ford Torinu var framleiddur milli 1968 og 1976, og var hugsaður sem svona fínni týpa af Ford Fairlane.



Þetta er Argentínskur Fairlane, þeir voru framleiddir akkúrat svona milli 1968-1981. Argentína er svolítið eins og CCCP þannig.

Torino var hægt að fá með vélum frá 6 sílindra 200 rúmtommu línuvél, til 428 V-8. Árið 1969 var farið að nota 250 vél, í stað þeirrar 200, (ca 4 lítrar). Ég geri ráð fyrir að 6 sílindra línuvélin hafi ekkert eytt neitt meira en hvaða bíll sem er núna, af svipaðri stærð, en 428 týpan jafnaðist meira á við Range Rover eða Land Cruiser - að öllu leiti nema snerpu. Torino nefnilega hreyfist þegar maður stígur á bensíngjöfina.

Árið 1973 kom til greina að fá einn með 460. Það hefur verið... áhugavert. 460 eyðir nefnilega minnst 25 á hundraðið, sama hvað hún dregur með sér, og það er EF það er bein innspýting og annar nútíma útbúnaður. Árið 1973 held ég að við getum nú gleymt því. Bíllinn þá var um það bil 2 tonn og örugglega með 4 hólfa blöndung, Holley eða eitthvað þaðan af verra. Við erum sennilega að tala um 30 minnst. En: þetta fer kvartmíluna á 14 sekúndum án þess að þurfi að breyta neinu.



Þessi minnir svolítið á bílinn sem Mad Max var á. Það er ástæða fyrir því: Ford í ástralíu framleiddi svona bíla, en þótti ameríska týpan svolítið stærri en hún þurfti að vera, svo þeir styttu hana bara um svona 2-3 fet, notuðust við aðeins minni vélar (302) og kölluðu fyrirbærið Ford Falcon/Fairmont.



Reynið bara að leita að 1973 Ford Fairmont/falcon XB á google.



Þið finnið svona bíl mjög fljótlega.

Það er líka nokkuð mikið vesen að finna 1973-6 módel af Ford Tóríno sem er ekki búið að spreyja rauðan og hvítan.



Nóg komið af Ford í dag, held ég.

***

Úr 24 stundum, sem kom inn um lúguna einhverntíma:

24 stundir sögðu frá því í gær að þýzkt fjármálafyrirtæki, VKB, hygðist
bjóða upp á húsnæðislán í evrum hér á landi, á mun lægri vöxtum en innlend
húsnæðislán og án verðtryggingar. Margir fagna vafalaust erlendri samkeppni
á fjármálamarkaðnum hér, en hún hefur verið lítil til þessa.


Já, þar höfum við það. VKB eru komnir í fjármálageriann. Og orðnir þýskir.

sunnudagur, desember 09, 2007

Dagur 289 ár 4 (dagur 1373, færzla nr. 627):

Aftur hefur mér tekist að koma mér á framfæri. Í þetta skifti á einhverri síðu sem birtir barnasögur. Ég veit að þetta eru svolítið öðruvísi barnabókmenntir hjá mér. Svolítið í kaldhæðnari kantinum kannski.

laugardagur, desember 08, 2007

Dagur 288 ár 4 (dagur 1372, færzla nr. 626):

Slökkvið ljósin, komið ykkur vel fyrir og horfið á kvikmynd kvöldsins: Carnival of souls, frá 1962. Enn ein kvikmynd sem enginn hefur séð. Eða heyrt um. Sem er mjög skrýtið.



Bíll aðasöguhetjunnar fellur fram af brú á örugglega 13 kmh.

Þetta er kvikmynd um kvenmann sem lendir í smá óhappi, og er í framhaldi af því elt uppi af púka. Það er betra en það hljómar. Ég get ekki sagt að þetta sé eitthvert episkt meistaratykki, en það virkar, merkilegt nokk.



Það eru 5 mínútur af auglýsingum fyrst - fyrir poppkorn og aðrar slappar kvikmyndir.

Hvað um það, þetta er örugglega flottasti titill á nokkurri B-mynd sem ég hef séð. Kvikmyndin sjálf er svona eins og voðalega langur Twilight-Zone þáttur, og hefur að öllum líkindum ekki kostað mikið meira en einn slíkur í framleiðzlu. Skv. Wikipedia var bödgetið $30.000 - þori ekki að fara með hve rétt það er. IMDB.com segir að kostnaðurinn hafi verið $17.000. Á sínum tíma nægði það fyrir filmu, nú, og þessum forláta bíl þarna og tjóninu sem hann olli á brúnni.

Ekki nema 78 mínútur að lengd, en samt eru sum atriðin eins og þau seu viljandi löng. Samt er þetta ekki versta kvikmynd í heimi. Langt frá því. Það þarf til dæmis ekki að drekka neina bjóra fyrst eins og er stundum nauðsynlegt. Ég færi ekki að bjóða upp á neitt svoleiðis, hvað haldiði að ég sé?



Búú!

fimmtudagur, desember 06, 2007

Dagur 286 ár 4 (dagur 1370, færzla nr. 625):

Þessi náungi er núna uppáhaldslistamaðurinn minn. Hvers vegna? Jú, hann hefur nú framkvæmt gjörning sem hefur haft meiri áhrif en bara að láta almenning í þessu eina landi, og bara þann part af almenningnum sem veit af sýningunni á safninu, halda að það sé verið að hafa þá að fífli.

Neibb. Hann hafði þá að fífli í staðinn. Þeir þurfa ekki að halda neitt um það. Og ég fatta þetta, og ég get bent á heila þjóð og hlegið að þeim. Voru þeir hræddir við ÞETTA?

En hvað gerir maðurinn næst? Hvað toppar þetta? Ja, hann má búast við 4 ára fangelsi fyrir þetta, svo næst gæti hann til dæmis´búið til eftirlýkingu af Hiroshima bombunni, og skrifað á hana: "þetta er ekki kjarnorkusprengja", fyrir það fær hann minnst 10 ára dóm, svo þegar hann sleppur úr djeilinu getur hann sett upp dularfullt verk sem hann getur kallað: "þetta er ekki dómsdagsvél," og verið dæmdur í ævilangt fangelsi.

Já. Miðað við viðbrögðin við þessu hjá honum, mun fólk byrja að deyja í stórum stíl, bæði af hjartabilunum og sjálfsmorðum, af ótta við hina ógnvænlegu dómsdagsvél. Sem væri náttúrlega bara töff.

Þetta ameríkulið... Búið að tapa fyrir ímynduðum hryðjuverkamönnum.

***

Hvaða þörf er þetta hjá fólki við að vera hrætt við allan fjandann annars? Til dæmir miðborg RKV? Nú hef ég heyrt í mörgum íbúum 101-107, og enginn þeirra virðist óttast borgina, sama hvaða tími sólarhrings er. Það er jafnvel best að vera á ferli á nóttunni, þá fær maður að vera í friði, og getur gengið yfir götur án þess að flautað sé á mann.

Hinsvegar er fullt af fólki skíthrætt við RKV, og sérstaklega þeir sem aldrei koma þangað - svo ég nefni dæmi, þá eru vistmenn á elliheimilinu á Egilsstöðum þeir á landinu sem eru hræddastir við að vera einir á ferð í miðbæ RKV. Það var reynt að sannreyna þetta með því að spyrja fólk í Kína, en það var fallið frá því þegar tíundi kínverjinn í röð fölnaði upp, varð gráhærður og dó með það sama þegar orðasambandið "Miðbær Reykjavíkur" var nefnt.

***

Hef verið að heyra auglýsingu undanfarið þar sem mér er tilkynnt að visst fyrirtæki niðri í bæ eigi "mikið úrval í jólaseríum". Úrval af hverju eru þeir með í þessum jólaseríum? Ekki getur það verið umfangsmikið, fyrst það kemst fyrir inni í jólaseríu.

Sko, þegar maður er að auglýsa eitthvað, á maður að segja hvað það er. Til dæmis: "við eigum mikið úrval af gullfiskum í jólaseríum".

Úrval í jólaseríum? Kannski eru þeir að meina tímaritið úrval? Er það ekki hætt fyrir löngu? Ég hef ekki séð það.

þriðjudagur, desember 04, 2007

Dagur 284 ár 4 (dagur 1368, færzla nr. 624):

"Ert þú byrjaður í þessu?" spurði einhver þegar ég var að afhenda pakka áðan. Ég þekkti ekki manninn, hafði aldrei séð hann áður. Það virðist vera að illi tvífarinn minn hafi hinsvegar verið á ferðinni.

Það hefur sést til þess náunga hér og þar. Ég var tvisvar inntur eftir ferðum mínum þegar ég vann á pallinum á Flytjanda út af þessum náunga. Hann fór til dæmis í Tívolí einusinni, og svo skilst mér hann vinni á einhverri skrifstofu, sem er að mig minnir staðsett við hliðina á Fíladelfíu.

Eða kannski eru það nokkrir? En ég held varla, því þá aukast líkurnar nokkuð að ég hafi hitt einn af þeim. Það er líka einkennilegt til þess að hugsa að þarna úti sé fjöldinn allur af mönnum sem líta út eins og ég, nógu mjög svo til að menn ávarpi mig sem slíkan í návígi.

Eða kannski er það bara þessi eini.

Nú vona ég innilega að þessir tvífarar mínir geri ekkert mikið af sér, svo mér verði ekki kennt um öll ósköpin. Það ætti ekki að vera allt of mikið vesen fyrir mig að finna hann. Ég lít bara í spegil, og virði mig fyrir mér, fer svo að leita að öðrum eins.

Veit ekki hvernig það mun ganga.

laugardagur, desember 01, 2007

Dagur 281 ár 4 (dagur 1365, færzla nr. 623):

Í gær var mér boðið upp á hlaðborð og vín. Svo ég fékk mér ýmislegt. Lax og skinku og hangikjöt. Og laufabrauð og ristað brauð. Og skolaði því niður með svona lítra af rauðvíni.

Ég fékk mér mikið af skinkunni. Það er nefnilega gott að fá sér skinku við þynnku. Og kjöt almennt.

Og svo vaknaði ég fyrir allar aldir til að vinna. Ég á alltaf mjög auðvelt með að vakna fyrir allar aldir eftir mikla drykkju. Sem var gott, því þá hafði ég tíma til að búa til eggjaköku - sem er nauðsynlegt að gera stundum.

föstudagur, nóvember 30, 2007

Dagur 280 ár 4 (dagur 1364, færzla nr. 622):

Jæja, þá er ég búinn að hripa niður enn eitt bókmenntastórvirkið. Alveg hundraðogfullt af blaðsíðum. Datt í hug í þetta skiftið að skrifa glæpasögu, með morðingja og löggu. Allt í lagi... það gekk...

Það eru yfir 50 morð. Svo ég er með þann part alveg dekkaðan. Verra er að löggan í sögunni eiginlega nennir ekki að leysa málið allan tímann, vill miklu frekar gramsa í skjölum, og morðinginn er hundleiðinlegur, situr bara og drekkur kaffi með vinnufélögunum milli þess sem hann laumast til að drepa einhvern af og til. Þar kemur titilpersónan inn í.

Svo er plottið flóknara en andskotinn. Ég ætla að salta þetta yfir Jól og kíkja á þetta aftur þá, til að sjá hvort það er ekki örugglega eins vitrænt og ég hélt. Mig minnir endilega að það falli allt saman á endanum. Þetta eru jú bara þessar 3 persónur, og ein þeirra gerir ekkert annað en að sitja og drekka kaffi. Jú, og drepa fólk af handahófi eftir hentugleikum.

Já. Með vel yfir 50 morð ætti sagan að höfða til 14 ára og eldri. Ég er ekki viss um að útgefendur verði sammála mér. Eh... fyrirfram gefnar hugmyndir um hvað 14 ára vilja. Á hinn bóginn gæti einhver munað hvað hann hugsaði þegar hann var 14 ára.

Ég þarf alltaf að hugsa í smá stund til að átta mig á því að ég er kominn aðeins yfir tvítugt. Þarf að muna ártalið, og reikna þetta allt út.

14 ára vilja örugglega meira blóð.

þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Dagur 277 ár 4 (dagur 1361, færzla nr. 621):

Rakst á þessa frétt.

Ég vissi þetta nú fyrir. En það er alveg deginum ljósara að þessir fréttamenn okkar kunna ekki að fara með verðmæti. Fyrst kaupa þeir Smith & Wesson skammbyssu, sem er hágæða smíðisgripur, fyrir þrefalt verð, og svo SKILA ÞEIR HENNI TIL LÖGREGLU!

Það er fyllilega sambærilegt við að kaupa upp mjólkurlager 11-11 til þess að hella honum niður, eða kaupa ritsafn Halldórs Laxness, leðurinnbundið, og kveikja svo í því.

Svo kemur þessi lína: "Í Kompási í kvöld verður einnig fjallað um morðið á Sæbrautinni í sumar. Sagt var frá því í fréttum okkar fyrir stuttu að skotvopnið sem þar hefði verið notað hefði verið fengið án tilskilinna leyfa."

Hér er náttúrlega bara verið að leita að sökudólg, því gæinn sem um er að kenna skaut sig í hausinn í geðveikiskasti. Vegna þess hann var geðveikur, og það alvarlega.

Svona hegðar fólk sér. Fyrir ekki löngu var ekið á mótorhjólamann, og hann kom í fréttum til að nöldra yfir því að bíllinn sem notaður var til að aka yfir hann var ekki skoðaður.

Og hvað með það? Er það afsökun allra? Ég veit að málshátturinn er svona: "Árinni kennir illur ræðari," en hann virðist vera orðinn svona: "Árinni er um að kenna í öllum tilvikum."

Fífl, ég er umkringdur fíflum.

Og hvað með það þó vel efnaðir menn geti orðið sér úti um hvers kyns vopn yfir helgi? Það hefur verið sýnt fram á það vísindalega að það væri bara til bóta ef fólk hefði sem greiðastan aðgang að skotvopnum. Jafnvel fáeinir hnífar gætu bætt ástandið, eins og áður hefur komið fram.

Þetta er EKKI eina tilfellið. Svona gengur þetta alltaf. Ef vopn eru tekin úr höndum almennings fara glæpamenn að herja meira á fólk. Þannig var það í Ástralíu á sínum tíma, Bretlandi, nokkrum borgum í USA (eftir fellybylinn fræga í New Orleans fjölgaði glæpum áberandi miklu meira þar sem ríkið safnaði vopnum fólksins til sín) og þannig mun það verða í Finnlandi.

Það er hins vegar ekki alveg rétt að glæpum fækki ef það eru fleiri byssur á götunni. Þeir bara hliðrast aðeins til - líkams árásum, nauðgunum og morðum fækkar, um þetta á bilinu 4-8%, en á móti fjölgar spjöllum á eigum opinberra og einkaaðila, auk þess sem fleiri bílum er stolið, og er fjölgunin merkilegt nokk: 4-7%

Vekur athygli að flestir bílþjófnaðir verða í Sviss og Ísrael. Þar er þó friðsælt að öðru leiti.

Sem leiðir hugann að því hvort verðmætamat fólks gæti verið eitthvað brenglað? En svo hugsa ég: auðvitað, en það er líka hrætt við suma hluti.

Annað sem vekur athygli er að meðalævilengd fólks er mest í þeim löndum sem leiðinlegast er að búa í. Hmm... heyrði það einu sinni að þunglynt fólk lifi lengur. Sem er náttúrlega frábært. Ef þér líður illa og vilt að þetta verði bara búið sem fyrst, þá lifir þú í auka tíu ár! Ó jess! Gleði.

Og enn að hlutum sem valda hávaða: það eru að koma áramót. Fyrirsjáanlega verða sprengjur. Ég hef líke veitt því athygli að það eru hesthús inni í miðju 201 hverfinu. Þvílík snilldar staðsetning! Að hafa matvæli á fæti, sem eiga það til að styggjast og hlaupa um við ítrekaðar sprengingar, inni í miðri borg.

Snilldin ein, segi ég.

Af hverju geta þessir aðilar sem hafa svo gaman af að moka skít ekki geymt lífverurnar sínar fyrir utan borgarmörkin? Þá hefðu þeir betri afsökun fyrir að aka um á LandCruiser dráttarvélunum sínum.

Þetta er hobbý, og það er byrjað að vera fyrir. Og það er skítalykt af því. Við eðlilegar aðstæður er skítalykt af því. Voru ekki reykingar bannaðar um allar trissur vegna þess nákvæmlega sama? Og hafa skal í huga að reykingar valda ekki fjórfættum matvælum úti á þjóðvegi í kringum áramót, né heldur gera reykingamenn mikið af því að drulla á vegi og gangstéttir. Þeir láta sér nægja að lykta skelfilega.

(Og mér vitandi deyja færri á hverju ári við að falla af baki reykjandi manna.)

Þetta er mjög einfalt: reykingamenn kúka ekki á gólfið ef þú býður þeim inn, en það eru hestar líklegir til að gera, og er bara alveg sama. Kurteisari reykingamenn bregða sér út til að fá sér smók, til að stinka ekki upp pleisið. Hestum er alveg sama. Hestamenn elska þegar hesturinn þeirra gefur frá sér afurðir hvert sem þeir fara, enda myndu þeir aldrei rata heim til sín aftur öðru vísi.

Sko, þeir æða eitthvert út, hellandi koníaki og öðrum viðbjóð oní sig, og enda uppi á heiði týndir, og það eina sem þeir þurfa að gera til að komast til baka er að fylgja skítaslóðinni eftir Skjóna sinn.

Réttu hlutirnir eru aldrei bannaðir. Auðvitað ætti að banna hestamennski innan bæjar og borga, enda lýti af. Og leyfa fólki að komast í byssur, svo það geti skotið þessi ferfættu kjötflykki þegar þau eru komin inn í garð og byrjuð að spora út blómabeðin, spreyjandi taði um í allar áttir á meðan.

Með hverri byssu ætti að fylgja hnífasett og grill. Og kryddhilla. Ég myndi styðja það.


+

+

+

+

=


Þannig á það að vera.

mánudagur, nóvember 26, 2007

Dagur 276 ár 4 (dagur 1360, færzla nr. 620):

Þá halda foreldrar mínir að þau séu á leið til baka frá Kúbu.



En nei, lítið vita þau um það, enda er flugvélin eitthvað biluð, í öðru, töluvert meira framandi landi: nefnilega Kanada.

Það ók einhver asni á flugvélina, og rispaði hana lítillega, eins og sjá má að meðfylgjandi mynd:



Ég býst við þeim einhverntíma. Þau koma með Eimskip á endanum. Eftir páska. Kannski. Ef vindáttin er rétt.

Hvað um það. Þau geta þá væntanlega sagt okkur frá því hvort þau hittu Kastró, eða vofu hins ógnvænlega Téggivara, sem var einhver annar skúrkur sem bjó á Kúbu í denn og drap fullt af fólki og reyndi að breiða út kommúnisma og byltingar og... almenna eymd og volæði.

Eða, ef þau lesa þetta, geta þau bent þeim flug-gaurum á að setja bara teip á þetta. Það ætti að halda svona aðra leiðina. Nú, ef vængurinn dettur af, þá verða þau tvöfalt lengur á leiðinni.

laugardagur, nóvember 24, 2007

Dagur 274 ár 4 (dagur 1358, færzla nr. 619):

Þá er orðið bannað að vera með súlustaði í Borg Óttans.

Tilvitnun: "Fram kemur í umsögninni að sérfræðingar í kynferðisofbeldi hafi sýnt fram á að í skjóli nektardansstaða þrífist gjarnan vændi"

Jamm. Hvernig fá þeir út að það sé algilt?

Nú er það svo að í miðbænum er um hverja helgi stunduð slagsmál. Ég velti fyrir mér hvort ekki eru uppi um hugmyndir þess efnis að loka miðbænum um helgar til að sporna við því? Til að draga úr ofbeldi meina ég?

Svo er þetta blessaða internet. Á því þrífst hvers kyns starfsemi. Jafnvel klám og vændi. Ég hef skellt upp mynd af dömu að taka dansspor hér til hliðar máli mínu til stuðnings. Næsta skref er þá væntanlega að loka Internetinu? Eða hvað?

Og hvað með Dagblöðin? Það eru í þeim smáauglýsingar undir fyrirsögninni "einkamál." Ljóst er að þar er verið að auglýsa klám og vændi. Fullt af öðru sennilega líka, en það er vissulega klám og vændi þarna. Örugglega. Ég er ekki svo viss um nektardansstaðina, en Fréttablaðið er ég viss um.

Það er til langur listi yfir hluti og vetvanga sem eru notaðir til glæpaiðkunar. Í byggingarvöruverzlunum eru seld kúbein, sem eru the græjur til innbrota, í apótekum fæst ritalín, amfetamín og kontalgín, og í bíaumbodum fást bílar. Þeir eru á hverjum degi notaðir til 2000 umferðarlagabrota sem löggan veit aldrei af.

Öllum þessum stöðum þarf augljóslega að loka í þágu almannaheilla.

Önnur tilvitnun: "þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá"

Hugleysingjar.



Tilvitnun 3: "Vísað er í greinargerð rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum við HÍ venga þessa"

Fréttamaður ætti að redda sér ritvilluleitarforriti. Venga?

Rannsóknarstofa í Kvenna & kynjafræðum? Af hverju töluðu þeir ekki bara við Sálarrannsóknafélagið, eða Hvítasunnusöfnuðinn? Eða hvað með Jólabæinn á Akureyri? Seiving Æsland liðið hefði líka getað gefið álit.

Ég fæ hausverk af þessu bulli.



Og þar hef ég sparað nokkrum smá panódil.

Ég ætti kannski að stofna svona rannsóknarstofu? "Rannsóknnarstofa í handahófskenndum myndum af nöktu kvenfólki uppi í tré." Ég gæti gefið álit á fullt af random ljósmyndum af nöktu kvenfólki uppi í tré.

Já, ég hef rætt við þessa feminista. Það var á stundum eins og þær væru að reyna að recruita mig í eitthvert költ, sem fékk mig alltaf tilað efast um það sem þær voru að segja.

"Er það ekki?" spurðu þær mig, og störðu á mig eins og krakki að sníkja nammi.



Ljúkum þessu með þessari dömu uppi í tré. Ég myndi stuðla að meiri klámvæðingu, en ég vil hafa myndskreytingarnar svolítið snyrtilegar hjá mér. Kvenfólk uppi í rté er alltaf svo merkilega settlegt. Annars dettur það niður, býst ég við.

Ég ætti að stuðla að vændi líka, en það er svo stutt síðan ég reyndi að pimpa Helga út. Kannski aftur eftir áramót. Pimpa út Bogga, það væri sniðugt. Kíki á það þá. Hvað ætli þær séu tilbúnar að borga fyrir hann? Hundrað kall? Fimm hundruð?

Hmm... kannski ef ég fer út í fjárkúgun: annað hvort taka þær Bogga fyrir 5000, eða ég fer heim til þeirra. Hafið samband, gerum samning.

miðvikudagur, nóvember 21, 2007

Dagur 271 ár 4 (dagur 1355, færzla nr. 618):

Mér skilst að á næsta ári eigi að fara að brugga öl í Eyjum.

Hvernig verður það? Röltir maður þá ekki bara beint í fabrikkuna og kaupir sér nokkrar flöskur? Eða, það sem er líklegra að gerist:

Bjórinn verður seldur byrgja í Reykjavík og fluttur þangað. Þaðan verði honum svo dreyft um landið, þar á meðal til Vestmannaeyja. Þar verði hann boðinn til sölu í Ríkinu.

Það hljómar einhvernvegin miklu Ríkislegra. Alveg fullt af óþarfa og tilgangslausum flutningum, með tilheyrandi kostnaði sem veldur náttúrlega bara verðbólgu.

Rétt? Við komumst að því. Ég veðja á seinni tilgátuna, þá flóknari. Þorir einhver að veðja á móti mér, eða eru allir jafn kaldhæðnir?

sunnudagur, nóvember 18, 2007

Dagur 268 ár 4 (dagur 1352, færzla nr. 617):

Þegar ég lagði af stað hingað var Fitness keppnin í sjónvarpinu. Sá það kvenfólk sem tekur þátt í því. Sú með útstæðustu æðarnar á andlitinu vann. Auðvitað. Ég þori ekki að fara með það, en sú með sléttasta holdið hefur sennilega lent í neðsta sæti.



Þessi er greinilega ekki í fitness, enda sjást engar æðar á henni, né getum við stúderað vöðvabygginguna á henni náið án þess að nota hníf, held ég.

Sjáið líka þennan kaktus í bakgrunninum. Áttum svona kaktus einusinni. Svona kaktusar vaxa um metra á ári, að jafnaði, og þarf bara að vökva stundum - svona ef maður man.

Hvað um það. Mér varð hugsað til kellingarinnar í hídroxíkött auglýsingunni. Hún er nú ekki beint kynþokkafyllsta manneskja í heimi, hvorki fyrir né eftir. Herðarnar eru of breiðar miðað við mjaðmirnar. Sem þýðir að hún er aðeins of karlmannlega vaxin. Hún hefði sennilega átt að borða minna hídroxíkött og meiri snúð.

Hvað er svo fallegt við upphleyptar æðar? Og af hverju vill fólk endilega vera svona brúnt? Það baðar sig upp úr sósulit, og allt í einu er það álitið fallegast í heimi - af öllum nema mér.

Nei. Mér leið eins og ég væri að horfa á kjötborðið í Nóatúni. Allir þessir vöðvar, þessi sósubrúni litur, líkt og af leggjunum sem amma bauð mér uppá áðan. (Sósan var afar góð - meðan ég man - amma gerði smá mistök, hún opnaði bara pipardolluna og hellti öllu innihaldinu út í, svo úr varð all frábær sósa).

Þetta er ekki fallegt, en það er eitthvað mjög listaukandi við þetta. Nánast engin fita, bara hreint kjöt. Ætti að bráðna í munni. Með því þarf sósu. Rjóma eða rauðvíns? Ég held ekki að BBQ fari vel með þessu. Reyndar finnst mér BBQ ekki fara vel með neinu. Bragðast eins og aska. Ég er ekki hrifinn af ösku. Það má vera vel steikt, en fyrr má nú vera.

Hmm... lítur út eins og matur.

Kannski ég skjóti eina, og hafi í matinn fyrir einhverja föla dömu sem ég finn, einhversstaðar inni í dimmu herbergi. Þar hljóta þær að fela sig. Þarf að spyrja Illuga hvenær veiðitíminn á þessu liði er, ef einhver. Hugsa að þetta sé eins og selur. Veiðanlegt allt árið.

Hvaða rauðvín ætli fari vel með fitness manneskju?

fimmtudagur, nóvember 15, 2007

Dagur 265 ár 4 (dagur 1349, færzla nr. 616):

Var að aka út pakka í Furuhlíðinni áðan. Fór í rangt hús, sem skiftir í sjálfu sér engu máli. En þá hafði einhver pjakkur á öðrum sendibíl keyrt upp innkeyrzluna, og hindraði að ég gæti bakkað út.

Nú er furuhlíðin stutt og þröng þar sem ég var, og ekki sá ég framm á að gæinn kæmist þangað sem hann vildi jafnvel þó ég æki áfram. Svo ég bakkaði niður götuna, til að gefa honum til kynna að ég væri á leið út. Ekki gaf pjakkurinn sig, enda þrjóskur mjög.

Þegar ég hafði beðið eftir því að hann færði sig í nokkra stund nennti ég þessu ekki lengur, og ók upp götuna í því skyni að snúa við - sem var snúið, því það er eiginlega ekkert pláss til þess. Ef ég gerði það, þá yrði peyjanum frekar ljóst að það væri ekki pláss fyrir hann til að aka upp á meðan ég ók niður.

Þegar ég var að snúa við virðist ég hafa ekið yfir mikið grjót sem er þarna á planinu. Það varð til þess að sauð á kunningja mínum, og hann stökk út úr bíl sínum, froðufellandi af illsku og gaf mér bendingu að nema staðar.

Ég gerði það, og skrúfaði niður rúðuna til að heyra hvað hann hafði að segja.

Já. Hann var reiður út af þessu grjóti, sem ég var þá ekki alveg með á hreynu hvort ég hafði lent á eða ekki. Hafði satt að segja meiri áhyggjur af bílnum sem var lagt við hlið þess.

Reykmökkurinn stóð úr báðum eyrum mannsins undir miklum þrýstingi þegar hann lýsti fyrir mér hverskonar stórglæpur það væri að aka yfir svona mosavaxna steina og ætla svo að stinga af. Hann lét eins og hann hefði farið öfugu megin frammúr hvern morgun alla vikuna, slík voru lætin.

Mér sýndist hann helst verða vonsvikinn þegar hann sá að þetta var bara mosavaxinn steinn sem hann var að æsa sig svo mjög yfir, en tók samt þá stefnu að vera mjög mjög reiður. Veit maðurinn ekki að það er ekki hollt að vera sífellt reiður?

Ekki tók ég mikið mark á manninum, frekar en öðrum mönnum í jafn-lélegu andlegu jafnvægi, þar sem ég stóð hjá og velti fyrir mér hvort ég ætti að vera dipló eða espa hann aðeins meira upp. Ég kaus að fara milliveginn, og sýna honum bara óvirðingu. Það hefði sennilega verið gaman að láta hann elta sig aðeins um hverfið.

Það veit ég að hann hyggst hringja í yfirmanninn. Verð að inna hann eftir því á morgun. Verð að spyrja hann hvort tryggingafélögin hafi hringt, svona í framhaldinu. Út af þessum steini, sem þeir hirtu ekki að fara með á brott þegar húsið var byggt.

Hmm... já. Ég tók númerið á bílnum hans: þetta er Renault Traffic, nr. OO-P70. Flautið á hann ef þið sjáið hann, og sjáið hvort hann froðufellir ekki fyrir ykkur.

Ef ég ætti að stoppa og tilkynna í hvert sinn sem ég rekst utan í einhvern kant... ég myndi ekki gera annað.

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Dagur 264 ár 4 (dagur 1348, færzla nr. 615):

Spurning:

Eitrar maður gegn rottum, eða eitrar maður varðandi rottur?

Í gamla daga eitraði maður nefnilega fyrir rottum...

þriðjudagur, nóvember 13, 2007

Dagur 263 ár 4 (dagur 1347, færzla nr. 614):

Keyrði framhjá um daginn þar sem ekið hafði verið á einhvern. Svo kom sjúkraliðið, og götunni var lokað af. Það var einhver vel yfir miðjum aldri sem hafði ákveðið að rölta af stað yfir götuna án þess að líta til hægri eða vinstri, býst ég við.

Ég var ekkert að skifta mér af því. Ég hefði bara verið fyrir, enda mikið af mannskap þegar búinn að safnast þarna saman.

***

Í Kastljósinu var verið að ræða við einhvern barnanýðing. Hann sagði að af þeim sem settir eru í steininn komi fæstir kynferðisbrotamenn til baka. Rétt er. Nauðgarar brjóta yfirleitt aðeins einusinni af sér. Barnaperrar virðast hinsvegar halda uppi meðaltalinu.

Svo tók ég líka eftir að þessir pésar allir kunnu ekki að tala, ekki bófinn, ekki fréttamaðurinn, ekki faðir fórnarlambs. Eða ætti ég kannski að orða það svona, þessir menn, varðandi tungumálið, með hliðsjón af íslensku, voru ekki skiljanlegt gagnvart mig.

Hálfvitar, allt saman.

Talar fólk svona heima hjá sér?

"Förum í frí, varðandi útlönd!"
"Hitaðu ofninn, gagnvart kjúklingnum."

***

MBL fréttin:

Árekstur varð á ljósunum á mótum Þingvallastrætis og Mýrarvegar á Akureyri í kvöld.

Þetta gerðis allt ofaná ljósunum. Töff stönt. Skerast þessar tvær götur einhversstaðar annarsstaðar, þar sem eru ekki ljós?

Engin slys urðu á fólki en annar bílanna er að sögn sjónarvotta ónýtur.

Hmm... Þetta er 1994-1997 Corolla. Það kostar sennilega um eða yfir 100K að gera við þetta. Já, ég held að dagar þessa farartækis séu taldir. En ég er ekkert að reiða mig á sjónarvottana. Það gæti verið hvaða lið sem er. Gæti afskrifað bílinn fyrir eitt brotið ljós, án nánari athugunar.

Mikil hálka var í bænum í dag og þykir líklegt að hún hafi átt þátt í þessum árekstri.

En fjólublá setning. Læra blaðamenn sérstaklega að orða allt svona formlega, eða halda þeir bara að það eigi að skrifa svona?

sunnudagur, nóvember 11, 2007

Dagur 261 ár 4 (dagur 1345, færzla nr. 613):

Jæja. Ég veit vel að þetta mun ekki virka, en ... hvað veit ég?

Hvað um það, þar sem kvenfólk hræðist mig mjög, hef ég í hyggju að pimpa í staðinn út minna ógnvekjandi kunningja mínum, honum Helga Ólafssyni.

Af einskærri illsku minni mun ég ætlast til að kvenþjóðin hringi í þennan mann og reyni að leggja lag sitt við hann, þeim að kostnaðarlausu, fyrir utan símatalið, að sjálfsögðu.

Eða þið getið ímeilað hann, á holyolafs(at)hotmailpúnturcom. Hvað sem ykkur lýst best á. Veit ekki símann, en hann er skráður í eyjum, alveg örugglega. Notið vefinn. (Þetta er einfalt ráð til að vinsa úr mestu vitleysingana, láta þær vinna einhver einföld verkefni)

Allavega, þetta er mjög ungur drengur ennþá, vel með farinn, engin eiturlyf, engar hrukkur, engin grá hár. Og hann er mjög mjúkur viðkomu sökum holdafars. Það höfðar örugglega til einhverra.

Jájá. Einmitt. Það eina sem þið þurfið að gera er að hafa samband við þennan mæta dreng, og bjóða honum eina kippu af bjór eða baknudd. Eða eitthvað annað sem þið teljið vænlegra til árangurs.

***

Ég þori að veðja að þetta virkar ekki. Með hliðsjón af lesendum, sko. Helgi er ekkert ógnvekjandi. En... ég held að ég sé ekkert ógnvekjandi heldur...

föstudagur, nóvember 09, 2007

Dagur 259 ár 4 (dagur 1343, færzla nr. 612):

Var að velta fyrir mér: ætli margir hringi í Magga Kristins núna eftir að hann fékk sér þyrluna til að spyrja hvort það er í alvöru ófært?

fimmtudagur, nóvember 08, 2007

Dagur 258 ár 4 (dagur 1342, færzla nr. 611):



280.

Stundum fæ ég póst frá talningagræjunni minni. Hún segir mér í nokkuð smáum atriðum hvaðan fólk kemur sem les síðuna. Flestir eru til dæmis frá Íslandi. Þó eru sumir frá framandi löndum. Einn flæktist til dæmis hingað frá Ulanbataar í Mongólíu.

En það segir svosem ekkert. Meira áhugavert er að sjá hvaða link fólk klikkar á sem ber það á akkúrat þessa síðu:

Google er sívinsælt. Mestan áhuga virðast menn hafa á Ford Torino. Það er alveg fínn bíll og allt það, en mikið finnst mér grunsamlega margir hafa áhuga á honum. Einn kom í gegnum gúgle eftir að hafa skrifað hinn dularfulla texta: vivarins reaction chimical.

Ég sagði þetta víst einhverntíma, án þess að koma alveg fyrir mig hvenær. Það var eitthvað í sambandi við kaffi, sem ég skrifaði stuttlega um fyrir 3 árum.

Frasinn: "hvernig á að búa til sprenguefni" færir þig líka hingað., eins og "krossgáta í fréttablaðinu" & "Ford módel T" eða "Panodil".

Jamm.

En lang flestir berast hingað af síðunum þeirra Bogga & Helga, vina Ketils. Kannski eru það þeir sjálfir, kannski erum við bara svona svipaðir?

Þori ekki að fara með það. En eins og er hef ég þann grun, byggðan á fáanlegum upplýsingum, að reglulegir lesendur séu á milli 10 - 15, og meðal lesandi er karlkyns íslendingur með allt of mikinn tíma.

Og meðan ég man:

This site is certified 31% EVIL by the Gematriculator

Þar höfum við það.

þriðjudagur, nóvember 06, 2007

Dagur 256 ár 4 (dagur 1340, færzla nr. 610):

Sjálfstæðisflokkurinn, sá flokkur sem lengst er til hægri af öllum flokkum á landinu, en er samt vinstra megin við miðju.

Þar sem nenna mín hefur ekkert aukist, tökum við bara fyrir litla klausu um samgöngur:

Samgöngumál

Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að nýta til hlítar nýja möguleika á fjármögnun samgöngumannvirkja, s.s. gjaldtöku og einkaframkvæmd.

Þetta er mjög ógnvekjandi klausa: eftir alla þá blóðmjólkun sem vegfarendur hafa þurft að sætta sig við síðan bílar komu til landsins, þá á að hleypa einhverjum einkaaðilum í að blóðmjólka aðeins meira. Frábært. Alveg frábært. Ekki ljúga því að mér að peningarnir séu ekki til, þegar bensínið kostar hundraðkalli meira en í USA.

Og annað: NR eitt á forgangslista ALLRA RÍKJA síðan á dögum Rómaveldis, er vegakerfið. Afhverju er ekki svo hér?

Sjálfstæðisflokkurinn telur að auka þurfi fjárveitingar til tengivega og setja í forgang framkvæmdir á þeim landsvæðum þar sem enn er ekið á malarvegum og einbreiðum brúm.

Hættið þessu bauli um einbreiðar brýr. þetta eru MJÓAR brýr. Ein breið brú... tvær breiðar brýr. Helv...

Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að unnið verði samfellt að gerð jarðganga um landið með það að markmiði að stytta vegalengdir, rjúfa vetrareinangrun og tryggja öruggar heilsárssamgöngur.

Hvaða vesen var ég að heyra um daginn um Héðinsfjarðargöng?

Sjálfstæðisflokkurinn vill að haldið verði áfram við uppbyggingu ferðamannavega því kröfur aukast um gott og öruggt aðgengi að helstu náttúruperlum landsins.

Hvað er ferðamannavegur? Hver er munurinn á slíkum vegi og öðrum vegum?

Sjálfstæðisflokkurinn vill að skoðaðir verði möguleikar á uppbyggingu hálendisvega.Náttúruvernd skal höfð að leiðarljósi við slíkar framkvæmdir.

Náttúran til fjandans fari. Gerið bara átóbaninn.

Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að fara í brýnar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu s.s. tvöföldun stofnbrauta og gerð stokka og mislægra gatnamóta svo auka megi afkastagetu innan svæðisins, tryggja öryggi vegfarenda sem best, bæta hljóðvist og loftgæði ásamt því að greiða fyrir umferð á helstu leiðum til og frá höfuðborginni.

Það þarf að rífa Reykjavík og byggja nýja. Hún er svo hrikalega illa skipulögð að það er ferlegt. Stofnbrautirnar eru allar misheppnaðar, ekki því þær eru mjóvar, heldur þær eru fáar. Umferð dreyfist ekki rétt um þær.

Að auki er löggan farin að taka upp á því að stöðva fólk úti á MIÐRI GÖTU og trufla þannig umferð. Lenti í tveimur svoleiðis áðan. Pirrandi. Þeir hefðu getað látið þá leggja út í kant, en nei, þetta skal sko fara fram úti á miðri helv. hraðbraut á háannatíma. Hvaða lið eru þeir eiginlega búnir að ráða í lögguna?

Sjálfstæðisflokkurinn vill að skoðaðar verði leiðir til að efla almenningssamgöngur í samstarfi við sveitarfélögin.

Reyndar treysti ég þeim fullkomlega til þess. Það eru áberandi fleyri í strætó eftir að námsmenn - eins og ég - fengu svona kort. Það var kominn tími til að sósíaldemókratíið stæði undir nafni. Nógu eru skattarnir háir.

Sér einhver kaldhæðnina í að kalla þetta hægri flokk?

Sjálfstæðisflokkurinn bindur vonir við að kaupskipum á íslenskri skipaskrá fjölgi með tilkomu nýrra laga sem tryggja kaupskipaútgerðum svipað skattaumhverfi og þekkist hjá frændþjóðum okkar á Norðurlöndum.

En grænhöfðaeyjar? Hvað með þær? Eru þær ekki með bertri reglur? Og panama? Hvað með að gera eins og þeir?

Sjálfstæðisflokkurinn telur að Reykjavíkurflugvöllur eigi áfram að gegna lykilhlutverki sem miðstöð innanlandsflugs. Mikilvægt er að hraða uppbyggingu samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll.

Þeir segja að völlurinn verði í vatnsmýrinni í óþarflega mörgum orðum.

Og loks þetta: Sjálfstæðisflokkurinn vill staðsetja sjúkra- og björgunarþyrlu á landsbyggðinni og bæta þar með bráðaþjónustu og sjúkraflutninga.

Tvennt: Flugvélar eru ódýrari.
Flugvélar eru hraðskreyðari.

Þeir eru amk ekki gegn varðandi neinu.

mánudagur, nóvember 05, 2007

Dagur 255 ár 4 (dagur 1339, færzla nr. 609):

Frjálslyndir: hafa enn ekki gert nóg af sér til að ég viti nóg um þá til að tjá mig almennilega, og ekki nenni ég að fara yfir allt sem þeir segja, og að auki nennti ég ekki að lesa PDF skjalið þeirra.

Fann ekkert nema almennt snakk, innihaldslaust og leiðinlegt. Sem er svolítið fúlt.

1. Velferðarmál: Málefni aldraðra og öryrkja, heilbrigðismál og lífeyrissjóðir.

Frjálslyndi flokkurinn berst fyrir raunverulegri velferð. Í því felst að þeir sem þurfa á aðstoð að halda fái hana og búi við mannsæmandi kjör. Frjálslyndi flokkurinn berst fyrir hagsmunum aldraðra og hagsmunum þeirra, sem þurfa á aðstoð að halda og leggur ríka áherslu á að fólki sé hjálpað til sjálfshjálpar.


Andvarp. Þykjast ekki allir vera að stefna að þessu? Allir, undantekningalaust. Og svona heldur þetta áfram.

Frjálslyndi flokkurinn leggur áherslu á að félagslegt öryggi sé forsenda þess að fólk fái notið mannsæmandi lífs og njóti sín sem einstaklingar.

"Fái notið lífs og njóti sín sem einstaklingar". Einhver var að flýta sér.

Góð heilbrigðisþjónusta er mikilvægur þáttur velferðarkerfisins.

Uhm... og? Við vitum það,, eða réttara sagt, gerum ráð fyrir því.

Frjálslyndi flokkurinn mun beita sér fyrir að biðlistum á sjúkrahúsum verði útrýmt.

Biðlistum eftir hverju? Eða bara öllum? Hvernig?

Frjálslyndi flokkurinn vill að byggðar verði í stórauknum mæli íbúðir fyrir öryrkja ogn aldraða á næstu fjórum árum.

Þarnna er ritvilla.

Ég væri meira til í að fækka í báðum hópum, láta ellimennin vinna lengur og öryrkjana vinna eitthvað. Þetta hljómar afar dýrt. Látum Pétur B í þetta.

Frjálslyndi flokkurinn vill bæta sérstaklega hag barnmargra fjölskyldna.

Mitt fólk getur alveg samþykkt þetta. En spurningin er hvernig?

Frjálslyndi flokkurinn telur það eitt megin verkefni næstu ára að bæta þjóðvegakerfi landsins. Eftir að flutningar á sjó lögðust nánast af, hefur umferðarþungi um vegi landsins margfaldast. Margir vegakaflar á milli landshluta eru nú þannig á sig komnir, vegna aukins þunga og álags, að hættuástand hefur skapast.

En þeir toppa ekki vinstri græna, nei, þeir ætla sko að klára hringveginn! geri aðrir betur!

Frjálslyndi flokkurinn leggur áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram sá umferðar- og öryggisþáttur sem þjóðin geti treyst á.

Já. En athugum að þetta segja þeir bara af því að þeir eru allir meira og minna frá Vestfjörðum.

Almennt nennuleysi hamlar frekari skýrzlugerð. Þeir segja svo mikið það sama, allir. Og allir eru svona ámóta vinstrisinnaðir. Jæja, þeir eru amk ekki Marx-Lenínistar eins og VG.

laugardagur, nóvember 03, 2007

Dagur 253 ár 4 (dagur 1337, færzla nr. 608):

Enn er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur:

Grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokksins


Stefnumál Framsóknarflokksins eru hér sett fram með þrennum hætti:

Grundvallarstefnuskrá flokksins er kjarninn í stefnu flokksins

Það plagg sem hefur að geyma stefnu flokksins er kjarninn í stefnu flokksins. Ha? Einhver útskýri?

Í kosningastefnuskrá 2007 (sjá tengil til vinstri) er að finna þær áherslur sem flokkurinn setti fram í kosningabaráttunni fyrir alþingiskosningarnar og giltu um kjörtímabilið 2007-2011. Þar sem flokkurinn starfar ekki í ríkisstjórn er ólíklegt að þau sjónarmið nái fram að ganga á kjörtímabilinu.

Við getum bara vonað...

Grundvallarstefnuskrá Framsóknarflokksins.

Framsóknarflokkurinn er frjálslyndur félagshyggjuflokkur sem vinnur að stöðugum umbótum á samfélaginu og lausn sameiginlegra viðfangsefna þjóðfélagsins á grunni samvinnu og jafnaðar. Hann stendur vörð um stjórnarfarslegt, efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði Íslendinga, byggt á lýðræði, þingræði og réttaröryggi. Framsóknarstefnan setur manninn og velferð hans í öndvegi.


Þeir vita ekki hvað þingræði er. Enginn á þingi veit það. Lýðræði? Framsókn hefur aldrei staðið vörð um neitt lýðræði. Þetta er 15% flokkur með 30% völd. Hvað er svo lýðræðislegt við það?

I. Þjóðfélagsgerð

Við viljum áfram byggja upp þjóðfélag á grunngildum lýðræðis, persónufrelsis, jafnræðis og samfélagslegrar ábyrgðar.


En vað með persónulega ábyrgð? Satt að segja grunar mig að þeir viti ekki hvað það þýðir heldur.

II. Mannréttindi

Við berjumst fyrir mannréttindum, virðingu fyrir einstaklingnum og fjölskyldunni. Við höfnum hvers konar mismunun sem gerir greinarmun á fólki t.d. eftir kynþætti, kynferði, tungu, trú, þjóðerni, kynhneigð, búsetu eða stjórnmálaskoðunum. Við munum ávallt verja skoðana- og tjáningarfrelsi, trúfrelsi og friðhelgi einkalífs.


Á Íslandi vegur atkvæði þitt þyngra ef þú býrð í fámennu byggðarlagi. Er það ekki mismunun?

III. Jafnræði þegnanna

Við setjum manngildi ofar auðgildi og viljum að hver og einn hafi sama rétt til menntunar, þroska og grundvallarlífskjara óháð uppruna, heilsu og efnahag.


Sko, tökum sálfræðina & hagfræðina á þetta: maðurinn er hreinlega peninga virði fyrir þá sem stjórna. Nema þeir sem stjórna séu kommúnistar, þá er maðurinn bara einhver hlutur sem má skifta út.

Svo ég útskýri: maðurinn er peningar. Vegna þess að heilbrigður maður vinnur fyrir peningum, og óvinnufær maður vinnur ekki fyrir peningum. Ef maður ætlaði í raun að fá almennilega peninga myndi maður reyna að passa uppá að maðurinn væri alltaf sem heilbrigðastur, og það sem lengst, alveg til níræðs, helst.

Eins og Henry Ford komst að í reynd: ánægður verkamaður er góður verkamaður.

Hvað gerist þá ef maður í sjálfu sér er meira virði en peningar? Þá hættir að skifta máli hvort maðurinn vinnur, ljóslega. Þá hættir að skifta máli að hann sé heilbrigður, því hann þarf ekkert að vinna til að vera einhvers virði. Þá er engin ástæða fyrir iðnaðinn að púkka uppá manninn lengur. Þá má bara skifta honum út eins og einverjum hlut. Setja hræið á bætur eftir notkun.

IV. Mannauður

Við viljum efla mannauð með því að sérhver einstaklingur fái örvun og tækifæri til að þroskast og vaxa í leik og starfi.Við stefnum að samfélagi umburðarlyndis og víðsýni svo margbreytileiki þjóðlífs og einstaklinga fái notið sín.


Ég hallast að því að þetta sé merkingarlaus frasi.

V. Stjórnarfar

Við viljum að þjóðin fari með æðsta ákvörðunarvald og handhafar valdsins stjórni aðeins í umboði hennar. Við vinnum ötullega að réttlátu stjórnarfari, opnum stjórnarháttum og valddreifingu.


Veit ekki hvort ég á að hlæja... Þetta er svo sorglega augljós lygi.

VI. Hagkerfi

Við viljum byggja efnahagslíf þjóðarinnar á markaðshagkerfi einkarekstrar og samvinnurekstrar þannig að framtak einstaklinga og samtaka þeirra njóti sín til fulls.


Man einhver eftir Sambandinu? Það drottnaði yfir og lét setja á hausinn alla sem voru í samkeppni við það. Svo fór það á hausinn skömmu eftir að lán hættu að fást óverðtryggð eftir óðaverðbólguna á áttunda áratugnum.

VII. Alþjóðasamfélagið

Við höfum ríkum skyldum að gegna varðandi samvinnu við aðrar þjóðir um lausn sameiginlegra verkefna.


Málvilla: við höfum skyldum að gegna í samvinnu við aðrar þjóðir.

Af hverju höfum við skildum að gegna við aðrar þjóðir? Afhverju þurfum við alltaf að púkka uppá aðrar þjóðir.

VIII. Náttúrugæði

Við viljum skynsamlega og sjálfbæra nýtingu á gæðum jarðar sem skaði ekki hagsmuni komandi kynslóða. Við teljum að allar innlendar náttúruauðlindir skuli óskorað lúta íslenskri stjórn.


Ykkar stjórn, semsagt? Hey, þið komuð kvótakerfinu á...

IX. Búsetuskilyrði

Við teljum það til grundvallarréttinda að fólki verði gert kleift að velja sér búsetu þar sem það kýs. Greiðar samgöngur, alhliða fjarskipti, fjölbreytt atvinnutækifæri, fjölþætt framboð menntunar, menningar og heilbrigðisþjónustu eru þættir sem jafna búsetuskilyrði.


Fólk getur nú þegar búið þar sem því sýnist. Það er bara mis-skynsamlegt.

X. Stjórnmálin

Við byggjum á frjálslyndri hugmyndafræði og teljum því farsælast að ná fram niðurstöðu með samvinnu ólíkra afla og hagsmuna sem byggð eru á hófsemi og heiðarleika.


Innihaldslaust kvabb.

Jæja, miðað við VG og SF þá skilst töluvert betur hvað þeir segja. Sem má kannski rekja til þess að svo margir Framsóknarmenn eru bændur, og kunna þess vegna að tala. Þó er augljóst að inn á milli leynast miklir bögubósar, þó þeir nái seint sama kaliberi og helíumfylltu sauðnautin sem hinir tveir flokkarnir notast við.

Að öðru leyti, þá er stefnuskráin full af lygum og fagurgala sem hefur ekki þá merkingu sem hann á að sýnast hafa.

Þá eru bara eftir Frjálslyndir og Sjálfstæðisflokkurinn.

föstudagur, nóvember 02, 2007

Dagur 252 ár 4 (dagur 1336, færzla nr. 607):

Ég ætla að hætta að níðast á samfylkingunni, enda er það níðingsháttur, lýkt og að gera grín að hommum og konum. Svo í staðinn ætla ég að potast í VG, sem er þá líkt og að hæðast að mongólýtum og dvergum:

(Fyrir þá sem ekki vita, er VG kommúnistaflokkur Íslands)

Atvinnumál

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs haldinn í Reykjavík 23.–25. febrúar 2007 vísar til aðgerðaætlunar í byggðamálum og ályktana um málefni sjávarútvegs og landbúnaðar, fjármál sveitarfélaga og annað það sem segir í ályktunum fundarins um aðgerðir á sviði atvinnu- og byggðamála en leggur sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði sem brýnustu þættina í aðgerðaáætlun í atvinnumálum komandi mánaða og ára á þessu sviði.

Ég skora á ykkur að reyna að segja þetta án þess að draga andann einhversstaðar í miðri setningu. Það eru meiri líkur á að einhver dama hringi til að inna eftir baknuddi og drykk en að það takist.

Svo er þetta: "vísar til aðgerðaætlunar í byggðamálum og ályktana um málefni XYZ og annað það sem segir í ályktunum fundarins um aðgerðir á sviði XYZ." Hnitmiðað, ekki satt?

1. Allar áherslur í atvinnumálum séu í samræmi við hugmyndafræði um sjálfbæra þróun.

Enginn veit í raun hvað meint er með sjálfbærri þróun. Öll þrúun sem er ekki á vegum ríkisins? Sú þróun er borin uppi af skattgreiðendum.

2. Fjölbreytni verði ætíð höfð að leiðarljósi í allri stefnumótun og þróunarvinnu á sviði atvinnumála.

Þróunarvinna á sviði atvinnumála? Æi, fleygðu þér í sundlaug eða eitthvað.

3. Aukinn kraftur verði lagður í nýsköpun og stuðning við tækni- og þekkingargreinar og hlúð verði sérstaklega að nýjum fyrirtækjum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum í uppbyggingu.

Ég er ekki viss um að þeir viti hvað meðalstórt fyrirtæki er. ÚV er frekar lítið fyrirtæki, til dæmis. Bæjarins bestu er míkrófyrirtæki. Hvað ætla þeir að gera?

4. Sérstök áhersla verði lögð á greinar sem tengjast umhverfistækni, þ.m.t. sjálfbærri þróun í orkumálum, hvers kyns endurvinnslu og endurnýtingu. Horfum til nýrra möguleika og tækifæra á þessu sviði.

Umhverfistækni? Garðsláttur þá? Eða laxveiði? Svo fara þeir að ræða um orkumál... sem er algebra, held ég. Og Kalkúlus. Og um rusl.

5. Vaxtarmöguleikar innan hefðbundinna atvinnugreina verði nýttir markvisst.

Það er ekki í verkahring ríkisins.

Einnig verði efld hvers kyns úrvinnsla og fullvinnsla afurða, þjónustuiðnaður og afleidd umsvif sem þessum greinum geta tengst á landsbyggðinni og stuðlað að því með margvíslegum hætti að virðisauki út frá höfuðatvinnugreinum landsbyggðarinnar falli til þar.

Ekki þetta heldur. Það eina sem þeir geta gert er að minnka skattpíninguna og einfalda kerfið. Þeir gætu til dæmis ráðið Pétur Blöndal.

6. Gripið verði til markvissra aðgerða og skilyrði til atvinnurekstrar jöfnuð í landinu með sérstakri áherslu á það sem snýr að landsbyggðinni, s.s. jöfnun flutningskostnaðar, orkuverðs, möguleika í fjarskiptum o.s.frv.

Fyrst munu þeir grípa til markvissra aðgerða. Til hvers? Veit ekki meir. Svo vilja þeir jafna skilyrði til atvinnurekstrar. Ég skynja vandamál.

7. Ferðaþjónusta og aðrar greinar sem tengjast náttúru, sögu, menningu og ímynd landsins verði sérstaklega styrktar og ferðaþjónustunni sé búin sú umgjörð í stjórnskipun og lögum sem henni ber sem mestu vaxtargrein íslensks atvinnulífs undanfarna áratugi.

Sem þýðir í stuttu máli að dótið ber sig ekki þó það hafi vaxið og þarf þess vegna ríkisstyrk. Eða hvað?

8. Hvers konar listsköpun, handverk og smáiðnaður verði efld og stutt við bakið á handverkshópum og einyrkjum með verkstæði eða annars konar starfsemi á því sviði.

Fær Sigga þá styrk?

9. Greinar sem byggja á náttúrulegum og lífrænum auðlindum verði efldar.

Náttúrulegar auðlindir = Virkjanirnar? Lífrænar auðlindir = Sjávarútvegurinn? Það er rökrétt.

10. Hugað verði sérstaklega að möguleikum Íslands á sviði vatns- og drykkjarvöruiðnaðar... blah bla bla.

Bjórverksmiðjan í Eyjum fellur undir það.

11. Með markvissum aðgerðum í efnahagsmálum og með því að innleiða stöðugleika verði hagstætt umhverfi til nýsköpunar og þróunar og til reksturs útflutnings- og samkeppnisgreina almennt tryggt.

Innleiðing stöðugleika, þótt það hljómi vel, er ekkert góð hugmynd. Hugsum okkur bát. Bátar eru allir frekar valtir, eða þartil þeir sökkva. Á hafsbotni eru þeir mjög stöðugir.

Stóriðjustopp og efnahagslegur stöðugleiki í kjölfarið eru, ásamt raunhæfu gengi á krónunni og lægri vöxtum, lykilatriði í þessu sambandi.

VG tilkynna okkur hér með að þeir vita ekkert um hvað þeir eru að tala:

Ef stóriðjan stöðvast, þá glatast mikil atvinna, og mikill útflutningur og mikið af pening. Lægri vextir munu valda meiri þenslu, sem er heldur ekki stöðugleiki, heldur vöxtur. Sem er ekki slæmt, þó sumir virðist halda annað.

Svo hvort er það? Þensla eða fjöldagjaldþrot? Jú, það eru fleiri möguleikar, en þeir virðast ekki taka neinum þeirra, heldur sýna mér þessa tvo, sem þeir hyggjast stefna að SAMTÍMIS!

12. Gerð verði sérstök framkvæmdaáætlun um stuðning við frumkvæði kvenna í atvinnumálum.

Hvað? Hvernig? Gefa þeim eina línu í hvora nös svo þær öðlist sjálfstraust langt umfram getu? Þvinga þær með ofbeldi? Þvinga aðra með ofbeldi til að áða þær?

Ég þakka fyrir að ekki nema 10-15% kjósenda styðja þennan flokk, á sama tíma skil ég ekki þessi 10-15% sem styðja þennan flokk. Þeir eru miklu vitlausari en SF.

Við hverju er svosem að búast af gaurunum sem vilja klára hringveginn innan 4 ára?

miðvikudagur, október 31, 2007

Dagur 251 ár 4 (dagur 1335, færzla nr. 606):

Þá er komið að því að hæðast að vefsíðu samfylkingunnar.

Samfylkingin er miðflokkurinn á Íslandi. Sá flokkur sem er mitt á milli íhaldssama vinstri-flokksins, og kommúnistaflokkanna tveggja (eða vinstri öfgaflokkanna).

Byrjum bara á kosningastefnu flokksins:

"Jafnaðarmenn hafa lagt grunninn að velferðarsamfélögum Norðurlanda. Þar er jöfnuður meiri en annars staðar og atvinnulífið jafnframt samkeppnishæfast.

Afhverju halda þeir að meiri jöfnuður sé nauðsynlega af hinu góða? Ég meina, norrænir rónar hafa það rosalega gott, miðað við til dæmis vinnandi fólk í Afríku.

En notum upphugsað dæmi: ef það væru engir rónar, bara stór millistétt sem liði vel, hefði efni á húsinu sínu, bæði jeppa og fólksbíl og fötum og mat með nóg afgangs til að skreppa til útlanda tvisvar á ári. Svo væri einn gæji sem byggi yfir auðæfum sem jöfnuðust á við þau sem Bill Gates hefur yfir að ráða. Þá væri ójöfnuður. Myndi það þá þýða að það yrði að taka fé af ríka kallinum til að ná fram jöfnuði?

Á undanförnum árum hafa stjórnvöld á Íslandi sveigt af þessari leið.

Hvernig?

Í komandi kosningum verður kosið um það hvort jafnaðarstefnunni verður beitt á ný til að auka lífsgæði á Íslandi."

Í kosningum er aldrei kosið um neitt. Það er bara valið hvaða lið fólk styður. Hvaða merki er flottast eða eitthvað.

Atvinnustefna:

Öflugt, skapandi og traust atvinnulíf er ásamt ábyrgri stjórn efnahagsmála undirstaða velferðarsamfélagsins. Brýnt er að skapa fyrirtækjunum í landinu hagstæð rekstrarskilyrði og stöðugleika, ekki síst undirstöðu- og útflutningsgreinum. Samfylkingin vill:

Eftir því sem ríkið potar minna í atvinnulífið, þeim mun meira dafnar það. Þýðir þetta þá ekki í verki að þeir ætli að minnka höftin? Hafandi í huga að við erum að tala um fasista hér, þá tel ég það ólíklegt.

Sameina málefni atvinnulífsins í stjórnarráðinu í eitt atvinnumálaráðuneyti til að tryggja jafnræði á milli atvinnugreina gagnvart stjórnkerfi ríkisins.

Allt í lagi. Það segja þeir, en ef það eru mörg ráðuneiti, þá eru fleiri stöður innan þeirra sem því nemur. Sem þýðir að ef ráðuneytunum yrði skeytt saman yrði það í raun bara að stóru batteríi, miklu stærra en öll ráðuneytin sem fara í það, og engin leið yrði að fá nokkuð vitrænt út úr því. Í fullkomnum heimi myndi það verða minna og léttara í vöfum, en hey! Hvar erum við?

Hefja áratug hátækninnar með samræmdum aðgerðum í þágu þekkingariðnaðarins.

Uhm... þessi blessaði áratugur hófst held ég uppúr 1970. Eða fyrr? Hvenær fóru tölvur að komast fyrir inni í einbýlishúsum? Hvenær fóru þær að birtast í stjórnkerfum hinna og þessara nytjahluta? Þeir eru svolítið á eftir. Hvaða áratugur er á nú? Járnöld?

Koma á samvinnu aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera um leiðir til að vinna bug á kynbundnum launamun og þeim hindrunum sem eru á framgangi kvenna í atvinnulífinu til að auka samkeppnishæfni atvinnulífsins.

Jup. Fáum kvenfólk til að vinna yfirvinnu. Þvingum það ef með þarf. Eða bönnum karlmönnum að vinna yfirvinnu. Hvort lýst ykkur betur á?

Hverfa frá miðstýringu í landbúnaði, auka frelsi bænda til þróunar,fullvinnslu og markaðsetningu matvæla og skapa ný tækifæri til atvinnuþróunar. Lækka rekstrarkostnað í landbúnaði svo sem fóður-, flutnings- og raforkukostnað.

Þetta er svo endurtekið í byggðastefnunni.

Allt í lagi, ég er alveg sammála að þetta fyrra en göfugt markmið, en ég sé smá vanda í þessu seinna, sökum þess hvernig ríkið hefur unnið í fortíðinni: Mestur kostnaður við allt á landinu er vegna skatta. Þeir eru að tala um að lækka skatta á nokkra hluti. Afhverju má ekki lækka skttana á allt, og hafa bara eina skattprósentu sameiginlega öllu?

Skapa sátt um nýtingu auðlinda hafsins með þátttöku allra hagsmunaaðila sem tryggi útgerðinni starfsgrundvöll til framtíðar.

Ég er ekki viss um að ég viti hvað þetta þýðir, eða hvernig þeir ætla að koma þessu í verk. Venjulega leiðin er bara að segja: "það er sátt", og hundsa það sem bendir til annars.

Barnastefna:

Jafn réttur og jöfn tækifæri allra íbúa landsins til að rækta hæfileika sína og nýta í þágu komandi kynslóða er grundvallarforsenda þess að á Íslandi þrífist frjálst og réttlátt samfélag.

Allt í lagi.

Ójöfnuður hefur aukist mjög á síðustu árum, vinnutími meðalfjölskyldunnar er of langur og mörg íslensk börn upplifa sig afskipt.

Aftur þessi ójöfnuður: ek fólk er ekki beinlínis í ræsinu, þá er það ekki vandamál. Það er jú ójöfnuður, en mest er það ríkir kallar sem verða ríkari með veldisvexti. Og hinir fátækari eru ekkert að verða fátækari. Þeir eru alltaf jafn miklir öreigar. Nema þið meinið að hægt sé líka að missa það sem maður á ekki?

Vinnutími fólks, alls fólks, ekki bara fjölskildufólks, er ískyggilega langur af því það er allt svo dýrt hérna. Sem er með beinum hætti ríkinu að kenna. Það að einhver stjórnamálaflokkur muni breyta því er hæpið, svons svipað og sagan af Gullbrá er hæpin.

Móta opinbera, heildstæða stefnu í málefnum barna og ungmenna er byggi á rétti þeirra eins og hann er skilgreindur í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Ef það er í barnasáttmálanum, sem við erum aðilar að, þá ráða þeir engu um þetta.

Bæta tannvernd barna og ungmenna að 18 ára aldri með með ókeypis forvörnum og eftirliti og auka verulega kostnaðarþátttöku ríkisins í tannlækningum barna.

Ókeypis forvarnir? Ætla þeir semsagt að gefa tannbursta og tannkrem? Hitt er alveg göfugt markmið og allt það.

Hækka barnabætur með því að draga verulega úr tekjutengingu þeirra og hækka aldursviðmið ótekjutengdra bóta.

Hér er hugmynd: það kostar X að reka barn. Öll börn eru svipuð að uppbyggingu. Því þá ekki bara að senda öllum foreldrum þessa X summu, eða hlutfall af X summu án tillits til tekna? Það myndi auðvelda alla útreikninga. Nei, það myndi koma í veg fyrir þörf á útreikningum. Einfalda kerfið mikið.

Tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþrótta-, tómstunda- og félagsstarfi, sem og listnámi. Skólamáltíðir verði ókeypis.

Er það ekki svona auka-dót sem betra væri að foreldrar greiddu fyrir? Ókeypis skólamáltíðir væri alveg fínt að hafa. Þá þarf ekki að gefa kryppildunum nesti.

Stórefla forvarnarstarf gegn kynferðisofbeldi, m.a. með auknu samstarfi við frjáls félagasamtök.

Varnartarf gegn kynferðisofbeldi: 14-2. Aston Villa gegn Tottenham: 3-0.

Ég er ekki viss um hvernig á að fara að þessu. Finnst þetta mjög óljóst.

Byggðastefna:

Jöfn tækifæri fólks óháð búsetu á landsbyggð eða í höfuðborg eru grundvallarhugtök í byggðastefnu Samfylkingarinnar.

Nei, og Guð forði okkur frá því. Ef maður á Súgandafirði vill gerast strætóbílstjóri, þá skal hann gjöra svo vel og flytja nær stór-reykjavíkursvæðinu, eða í það minnsta til Akureyrar.

Ráðast í stórátak í samgöngumálum í þeim tilgangi að stytta vegalengdir, t.d. með jarðgöngum til að auka öryggi vegfarenda, sameina atvinnusvæði og tryggja íbúum greiðan aðgang að allri helstu þjónustu.

Hálendisveg? Það virðast allir hafa þeta á skránni. Vinstri grænir, til dæmis, vilja ljúka við hringveginn innan 4 ára. Já. Það stendur þarna.

Gera áætlun um stóreflingu almenningssamgangna og gera hjólreiðar að raunhæfum ferðakosti í daglegu lífi m.a. með aðgerðum í skipulagsmálum.

Heyrðu... bíddu við; er ekki vegakerfið hluti af almenningssamgöngum? Og vegakerfið er líka vegakerfið innan RKV? Og var það ekki einmitt samfylkingin sem mjókkaði veginn um hlíðarnar, og þarna hjá Ömmu í vogunum?

Þeir ætla að þvinga hjólreiðastígum uppá okkur.

Endurvekja strandsiglingar sem hagkvæman kost í flutningum.

Eins og ég heyrði það, lögðust strandsiglingar af vegna of hárra hafnargjalda. Lækkið þá gjöldin.

Endurskoða tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga með það að markmiði að efla sveitarfélögin og færa til þeirra ný verkefni svo sem framhaldsskólann, málefni fatlaðra og aldraðra og nýja tekjustofna svo sem hlutdeild í fjármagnstekjuskatti.

Troðum framhaldsskólunum og öldruðum uppá sveitarfélögin. Það mun breyta tekjuskiftingunni.

Efnahagsstefna:

Brýnasta hagsmunamál heimilanna og fyrirtækjanna í landinu er að endurheimta jafnvægi í efnahagslífinu og tryggja þannig lága verðbólgu og lágt vaxtastig.

Hvað meina þeir? Ég skil ekki. Það er vöxtur. Vöxtur er eðli málsins samkvæmt ekki jafnvægi. Hann er við hámark núna, grunar mig, svo þetta takmark mun nást án þess að SF þurfi að lyfta hendi. Verðbólga er líka fylgifiskur vaxtar. Lágir vextir... ja, þeir munu sennilega vilja hækka þá seinna, þegar það fera að myndast kreppa. Þó þá væri skárra að lækka vextina.

En það er bara mín spá.

Endurskoða þarf skattkerfið og almannatryggingarnar til að bæta hag lágtekjufólks og millitekjufólks og leggja grunn að réttlátari tekjuskiptingu.

bara til að bæta hag lágtekjufólks? Hvað ætla þeir að gera af sér? Nú á að fara að skemma eitthvað.

Efna til náins samstarfs milli ríkisins, aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélaga um aðgerðir á sviði efnahags- og félagsmála sem myndað geti þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í efnahagsmálum.

Ég er nú að efna til verkanaðar sem miðar að staðsetningu leturs til aflestrar á tölvuskjám landsmanna til afþreyingar og skemmtunar.

Tryggja jafnvægi og ábyrgð í hagkerfinu sem er forsenda þess að vextir og verðbólga lækki til muna og gengisstöðugleiki aukist.

Og þeir ætla að potast í því? Með einhverri míkróstjórnun á hlutum sem þeir eiga bara ekkert að vara að snerta vænti ég.

Bæta skipulag hagstjórnar af hálfu hins opinbera til þess að efnahagsaðgerðir verði samstilltar og markvissar.

Miðað við það sem á undan er komið fer mig að gruna að þeir viti ekki hvað öll þessi löngu orð þýða.

Ákvarðanir um stórvirkjanir og tengdar framkvæmdir verði teknar með tilliti til umhverfissjónarmiða og jafnvægis í efnahagsmálum.

Þeim er mjög umhugað um þetta jafnvægi. Athugum að hér eru þeir ekkert að lofa virkjun, eða lofa að virkja ekki. Það sem þessi lína virðist þýða er: "ef það er hagvöxtur munum við sennilega ekki virkja, en ef það er kreppa, þá er líklegt að við virkjum."

Setja hagstjórninni þau markmið að þjóðin hafi í næstu framtíð raunhæft val um inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru.

Ef vilji væri fyrir hendi gætum við sótt um núna. Því ekki? Við yrðum betri meðlimir en Slóvenar - eins og staðan er akkúrat núna. Slóvenía er svo aftarlega á merinni að það land getur auðveldlega búið við 20% hagvöxt í áratug, ef því er að skifta.

Skattamál:

Samfylkingin vill Að skattleysismörk verða leiðrétt.

Afhverju ekki bara að afnema þau? Að vísu væri bara sanngjarnt þá að lækka skttprósentuna niður í svona 10%, ekki meira. Meira væri ósanngjarnt.

Draga úr tekjutengingu barnabóta.

Kom með betri lausn hér að ofan.

Vægari skerðingu bóta almannatrygginga vegna tekna lífeyrisþega.

Pétur Blöndal, sá mæti þrj... maður, meina ég, er víst að skoða þessi mál. Einfalda. Gera betri. Þess þarf, því kerfið er of flókið.

Lækkun skatta á lífeyrissjóðsgreiðslum úr 35,72% og niður í 10%.

Hmm... vorum við ekki búin að borga skatt af því? Afhverju tvískatta?

Afnema stimpilgjöld af lánum vegna húsnæðiskaupa.

Góð hugmynd.

Afnema vörugjöld og fella niður tolla af matvælum í áföngum í samráði við hagsmunaaðila.

Þessir hagsmunaaðilar munu standa í vegi fyrir þessu.

Lækka virðisaukaskatt af lyfjum úr 24,5% í 7%.

Bara af lyfjum? Hvað með aðrar neyzluvörur? Hve margfalt á kerfið að vera? Vita þeir ekki að öll sundurliðun kostar pening?

Gagnsærra og réttlátara skattkerfi þar sem ,,grænir skattar" fá aukið vægi.

Já. Næst á dagskrá er að leggja á græna skatta. Það mun íþyngja þeim efnaminni. Sem er auðvitað mjög réttlátt.

Skattlagning orkugjafa og mengandi starfsemi verði endurskoðuð út frá umhverfissjónarmiðum.

Hei: rafmagnsreikningurinn hjá okkur mun hækka! Jess! Því það er svo réttlátt og umhverfisvænt! Og kallar bara á meiri yfirvinnu sem við megum ekki vinna því þá eykst launamunur kynjanna! Fokk Je!

Undirbúa samræmda gjaldtöku fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar.

Þeir vilja semsagt rukka fyrir kvótann. Flott. gerum það. Þá getum við hleypt útlendingum að miðunum og fengið pening inn.

Rússneskt máltæki: Það sem allir eiga, það á enginn.

Framhald...

þriðjudagur, október 30, 2007

Dagur 250 ár 4 (dagur 1334, færzla nr. 605):

Engin hefur hringt í mig til að fá að drekka te og borða kex. Það eru 4 mögulegar ástæður, frá þeirri líklegustu að þeirri ólíklegustu:
1: Engin sem gæti haft áhuga á slíku les bloggið. Við því er ekkert að gera.
2: Almennt er enginn áhugi fyrir hendi.
3: Ég býð ekki nóg. Hvað meira? Vilja þær að ég nuddi á sér bakið? Kveiki á kertum? Bjóði vín og osta? Get gert það.
4: þær sem eru ekki í felum undir rúmi síðan seinast eru á leið uppá Klepp núna, eftir að hafa fengið tilboð um vín, osta og baknudd við kertaljós frá mér.

***

Ég fann ekkert skaðlegt í MBL. Að hluta því ég nennti ekki að lesa það allt, og að hluta því ég er ekki málfræðingur. Að vísu er smá aðferð sem ég hef notað, og hún er sú að tékka á fréttum tengdum ríkinu á einhvern hátt, eða umferðinni. Það er uppspretta mestrar vitleysu, hef ég komist að.

Hey! Les kannski yfir vefsíðu samfylkingarinnar á morgun! Það er fasískur flokkur, sem hlýtur þar af leiðandi að vera uppfullur af merkingarlausum frösum og illa ígrunduðum setningum. Geri það. Snilld. Hef ekki tíma núna.

***

Samkvæmt skýrzlum sem gerðar voru eftir bardaga í seinni heimstyrrjöldinni, þá hleypa ekkert allir af byssum sínum í skotbardaga. Reyndar er það að jafnaði bara helmingurinn sem á það til. Og það versnar, því af þeim sem þó skjóta a.m.k einusinni, þá skjóta 30% í áttina að andstæðingunum. Hvert eru hinir að skjóta?

Já. Með það í huga langar mig bara ekkert að koma nálægt neinum hernaði.

sunnudagur, október 28, 2007

Dagur 248 ár 4 (dagur 1332, færzla nr. 604):

Þetta er áhugaverð frétt. RÚV grefur upp spillingu, og þeir spilltu verða brjálaðir og kæra. Þar sem það er skylda fréttamanna að segja frá því sem aflaga fer í stjórnsýzlunni, þá væri best að kærendur töpuðu þessu máli, og yrðu látnir greiða sakarkostnað. Það er nefnilega engin refsing við spillingu á Íslandi.

Sambærilegt væri ef RÚV yrði kært af dópsölum eftir nafnbirtingu.

Það væri líka gaman að sjá fleyri útlendinga fá borgararétt á sama hátt og stelpan í þessu máli. Ef það er engin spilling í gangi, þá á að vera nóg að vera skráður sem nemandi í útlendum skóla.

***

Um áfengi. "Já, ég er á móti þessu og vorkenni þessu "frjálslynda" fólki ekkert að kaupa sér í vín í ríkinu. Og hver er þörfin ? Eru ekki hvort sem er flestir komnir með vínkjallara ?"

Ekki mikill frjálshyggjumaður, skrifari. Hvað hefur ríkið með einkasölu að gera? Það er ekki mjög kapitalískt. Þetta er næsti bær við ef B&L væri ríkisrekið fyrirtæki, og einungis þeir mættu selja bíla (& landbúnaðarvélar).

Það mætti nota sömu rök fyrir því: Hver er þörfin? Eru ekki hvort sem er allir komnir með bílastæði? Og hann myndi ekkert vorkenna fólki að þurfa að fara upp fyrir snjólínu til að kaupa bíl. Það gerist ekki það oft. Og það þurfa ekkert allir bíl, er það? Svo eru bílar hættulegir. Það deyja að jafnaði 15-25 manns á hverju ári af völdum bíla. Bæði í slysum og sjálfsmorðum.

Hvað með tölvur? Ef ríkið væri með einkasölu á þeim? Er í alvöru þörf á að einkaaðilar séu að selja tölvur? Nei. Það er miklu betra og eykur aðgengi, en eins og allir vita leiðir aðgengi að tölvum af sér aðgengi að internetinu, og á internetinu er allt fullt af klámi, sem þýðir að allir sem fá sér tölvu eru mestu klámhundar og þar af leiðandi nauðgarar.

Já, ef þú situr fyrir framan tölvu núna, þá ert þú nauðgari.



Klám klám klám, þarf frekari sönnunar við?

það sér því hver maður að það þarf að takmarka aðeins aðgengi að tölvum með ríkiseinokun á tölvusölu. Skrásetja hver á tölvu og fara frammá að allir taki próf í notkun slíkra tækja. Svo verður að taka sér gjöld af þeim vegna þess að fáeinir einstaklingar eru tölvufíklar, og enn aðrir kunna ekkert á tölvur. Ríkið þarf að greiða fyrir meðferð slíkra einstaklinga á Vogi.

Nei, þetta er ekkert öfgagengnara dæmi en andmæli við einkasölu á víni. Því segja þeir ekki einmitt að vín þurfi að vera dýrt svo fólk veigri sér við að kaupa það? Sem virkar á alla nema alkana, sem neita sér frekar um mat en drykk. Og ef Ríkið er ekki opið, þá er bara farið í Bónus og sopið á vanilludropum.

Þegar bjórinn var bannaður þömbuðu rónar brennivín, en ekki bjór. Í bjór eru þó næringarefni. Og ef bjór væri ódýrari, hefðu þeir kannski efni á að leigja einhversstaðar, og væru þá inni við drykkju, sem myndi bæta heilsufar þeirra umtalsvert. Vegna þess að rónar munu ekkert hætta að drekka nema þá langi til þess.

Og hvað eru rónar fyrir brennivín annað en barnaperrarnir á netinu eru fyrir tölvur?

Ef aðgengi að brennivíni veldur drykkju barna, þá má alveg eins segja að barnaperrar nái til barnanna þinna ef þú átt tölvu. Það er alveg rétt, jafnvel réttara. Það er nefnilega ekkert víst að krakkar vilji sitja að sumbli eitthvað frekar ef það verður auðveldara að redda víni. En barnaperrar verða alltaf þarna, örugglega.

Nei, það þarf að fjarlægja ríkið alfarið úr þessu. Allt sem það gerir er beinlínis skaðlegt. En þetta er fjáröflunarleið þeirra, sem gerir líkurnar á því að þeir hætti með ÁTVR hverfandi.