Augljóslega er þessi Norski morðingi afar merkilegur. Ég held samt hann hefði geta drepið fleiri með eitri. Það hefði verið lítið mál, eins og þessi gaur var naskur planari - hann hefði bara þurft að komast í að vera kokkur hjá þessum fórnarlömbum sínum. Allir þurfa að borða...
Þessir Norðmenn. Þeir hefðu átt að hlusta á Dalai Lama. Það tapar enginn á að hlusta á Dalai Lama. Dalai Lama er ekki bara eitthvert skoffín sem er gott að fá í heimsókn til að sýnast vera mjög PC.
Svo ég vitni í kallinn:
"But if someone has a gun and is trying to kill you ... it would be reasonable to shoot back with your own gun." - Dalai Lama
... en hann sagði náttúrlega líka:
"The ultimate authority must always rest with the individual's own reason and critical analysis."
Ekki mjög skandinavískt sósíal-demókratí. Kannski ekki skrítið að enginn hlusti á manninn þegar hann segir svona lagað.
Dalai Lama veit hvað hann syngur.
"Svefn er besta hugleiðingin" - segir Lama.
fimmtudagur, júlí 21, 2011
Dagur 138 ár 7 (dagur 2694, færzla nr. 1028):
Rauðvínið er að verða til. Set það á flöskur eftir helgi.
Hitt, sem er þegar komið á flöskur, það má fara að drekka bráðlega.
mánudagur, júlí 18, 2011
Dagur 134 ár 7 (dagur 2691, færzla nr. 1027):
Hmm...
7. þáttur af heimildarmyndinni um eyjamenn:
Fleiri tilgangslítil myndbrot, og meira af þessari merku kvikmynd sem við teipuðum yfir megnið af seinna. Því hún var löng og leiðinleg. Lengsta kvikmynd sm við gerðum nokkurntíma, vel yfir hálftími að lengd. Og ekkert nema Löng löng samtöl sem vaða úr einu í annað og meika lítinn sens, eins og hér sést, í eilítið styttri mynd:
þriðjudagur, júlí 05, 2011
Dagur 121 ár 7 (dagur 2678, færzla nr. 1026):
Einkennislag næturvaktarinnar:
Fann þetta um daginn:
Þessi útgáfa er betri en sú sem heyrist í útvarpinu.
Orginal lagið. Það er bara 90 sekúndur, og heitir því einstaklega þjála nafni "Nyanyanyanyanyanyanya!". Það er loopað undir kettinum, af einskærri illsku.
Hér er það með frábærara myndbandi:
Fyrst ég er byrjaður að setja upp furðuleg myndbönd:
laugardagur, júlí 02, 2011
Dagur 118 ár 7 (dagur 2675, færzla nr. 1025):
Hmm...
Spurning dagsins: er í alvöru hægt að fá óverðtryggt lán? Spyr ég, því ég fæ ekki betur séð en það séu einu lánin sem hægt er að borga upp, nokkurntíma, og eru aldrei beinlínis niðurdrepandi.
Þannig gæti ég nefnilega keypt Höfðaveg 11, og verið þá í aðstöðu til þess á hverjum degi að kasta grjóti í Kristínu.
Ekki veit ég hvað annað ég ætti að gera við það hús... ja... ég gæti endurgert þessa mynd: