Dagur 216 ár 13 (dagur 4964, færzla nr. 1584)
Boltann skildi ég ekki.
Þarna voru þeir boltamenn á röndóttum vellinum, sumir hvitir, sumir rauðir. Einn var blár, og einn sjálflýsandi.
En þeir eru allir auka-atriði.
Mest þótti mér um gaurana í sólstólunum, þessa sem sneru baki í boltistana, og horfðu í staðinn á áhorfendur. Sólstólasitjandi menn voru amk 50, allan hringinn með jöfnu millibili.
Veit ekki hvað þeir áttu að gera.