Jæja, þá er ég búinn að skrifa undir samninginn minn, og á þá hús, amk á pappírunum. Sjá mynd:
Þetta kostar einhverja formúgu, sem ég verð búinn að greiða upp eftir 38 ár - ef á fikta ekkert í lánunum.
Fullt af herbergjum. Skápar hér og þar. Örugglega löngu gleymd leynihólf. Og grillpallur lengst úti í garði. Garðurinn er í stærra lagi.
En já... hús.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli