Ég held að síminn sé á síðasta snúning. Hann hefur tekið uppá því að slökkva á sér alveg sjálfur. Einmitt þegar mikilvægt fólk þarf að ná í mig.
Ef þetta væri bara liðið sem vill að ég kaupu hergögn fyrir Kamerún, eða vill að ég skifti um símafyrirtæki, þá væri þetta allt í lagi, en, það er ekki alltaf svo.
Ég hef grun um að hann sé einmitt að slökkva á sér við það að fá SMS. Veit ekki af hverju hann ætti að gera það, en hann hefur gert það tvisvar núna, á einmitt þeim tíma sem ég bjóst við að fá SMS, svo mig grunar það.
Helvítis drasl, dugir ekki einu sinni í 10 ár.
Fæ annan í vikunni. Sé til hvernig sá endist. Nei, það er ekki hægt að fá nein öpp í hann.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli