Dagur 89 ár 4 (dagur 1549, færzla nr. 688):
Það er nú eins og að bera í bakkafullan lækinn að segja meira frá þessum jarðskjálfta... BBC er með þetta á hreinu.
Ég fann ekki mikið fyrir þessu. Bara smá skjálfti, rétt til að minna á hvar ég er staddur. Svo var annar í nótt, rétt eftir 2. Rétt marktækur.
Annar upp á 6.5 eða svo í Kyrrahafi. Þar gerðist heldur ekkert. Þar áður í Kína. Þar færðust fjöll.
Stutt lag í tilefni vikunnar.
Og hér er svo jarðskjálftasimulator.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli