þriðjudagur, október 23, 2012

Dagur 229 ár 8 (dagur 3150, færzla nr. 1147)

AMV minis, ep 9:


Já.  Maybelline.  Einmitt...

Og upphafslag úr teiknimyndaþáttum:  hugsum okkur að nú sé árið 1962...


Úr "School rumble."  Allt í lagi, ekkert af þessu er jafn súrt og Gangnam style (sem ég veit að er brandari, sem hefur gengið stórlega alltof langt.  Þetta er eins og ef "Þér er ekki boðið" með XXXRottweiler yrði meiriháttar smellur úti um allan heim.)  Fyrir þá sem eru forvitnir, þá er þetta normal Kóreiskt popp:


Alveg eins og Nælon, nema með svona 20 meðlimum.  Og vont.  Treystið mér, þetta er allt svona.  8-20 stelpur í litríkum fötum labbandi fram og aftur.  Sniðugt.

Æ, ég nenni þessu ekki, hér er Marley:

Engin ummæli:

Skrifa ummæli