miðvikudagur, júlí 28, 2004

Dagur 147:

Hvernig verður veðrið á Þjóðhátíð?  Þoka?  Rigning?  Snjókoma?  Gengur á með éljum?

Það er aðal málið núorðið.  Ef það verður ófært hingað, þá verður löggan ánægð, því þá verður leti-líf hjá þeim.  Ef fært, á verðum við á velinum svaka happý, því þá hringja færri.

Nú eru allir að hringja og spurja um KA liðið.  Hvimleitt.  Hvað veit ég um KA liðið?  Það fer héðan aftur í kvöld...

Það er að koma þjóðhátíð.  þá er allur farangurinn brothættur.  Nema þessi í nýju neitendavænu umbúðunum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli