þriðjudagur, janúar 31, 2006

Dagur 329 ár 2 (dagur 694, færzla nr. 361):

Herra Ísland er ekki tæk fyrirmynd, er mér sagt. Ég þekkti satt að segja engan sem var eitthvað sérstaklega að fylgjast með kauða. Mér vitanlega. Það var ekki fyrr en nú um daginn að athygli var vakin á afrekum hans. Þau felast víst einna helst í því að troða rollum inn í bíla og detta í drullupolla.

Linkur inná miklu athyglisverðari frétt.

Svo er þetta með myndirnar af Múhameð. Það er mjög sniðugt mál. Sýnir mér það svart á hvítu, aftur, að múslimar virðast upp til hópa vera klikkaðir. Hvað með það þó einhver rissi upp nokkrar myndir af spámanninum ógurlega og gefi þær út í blaði sem ég hafði bara þokukenndar hugmyndir um að gæti hugsanlega verið til, án þess þó ég gæti verið alveg fullviss. Kannaðist aðeins við nafnið.

Þetta hljómar eins og risastór auglýsingabrella til að gera jótlandspóstinn að þekktasta dagblaði heims.

Þetta er raunar mjög athyglisverð heimasíða þó hún sé á dönsku. Ég gæti bætt henni við listann hjá mér einhverntíma.

En hvað er þetta með Múhameð? Hvað er það sem gerir hann svo heilagan að ekki má skella eins og einni mynd af honum upp í blaði án þess að milljónir múslima út um allan heim brjálist og heimti að hausar fjúki?

Já. Hvað ætli herra ísland myndi gera í þessu? Detta í drullupoll, grunar mig.

Þetta mál snýst svolítið um það, er ég hræddur um, að þarna úti í heimi er lið sem er svona 400 árum á eftir okkur í öllu, frá tækni til hugsunarháttar. Það er er um 400 ár síðan hin kristna kirkja hegðaði sér svona, og múgurinn fylgdi á eftir. Árið 2406 verða þeir farnir að róast aðeins.

Og meðan við hér á vesturlöndum höfum öll vopnin, og þeir ekki, þá erum við örugg. Það versta sem þeir geta gert er að fljúga nokkrum flugvélum á áberandi byggingar. Það er ekkert til að hafa stórar áhyggjur af. Á hverju ári deyja fleiri í Svíþjóð úr flensu en fórust í USA þarna um árið. Og enginn kvartar í Svíþjóð.

Á meðan þeir eru ekki með kjarnorkusprengjur, þá getum við verið sátt.

Drífum nú í því að finna upp samrunaorkuver og byrjum að dunda okkur við að brenna ólífuolíu eða eitthvað í stað jarðolíu svo þessir asnar fái ekki peninga frá okkur til að stunda sín myrkraverk.

Amen.

Tölvuleikur fyrir ykkur.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli