föstudagur, ágúst 25, 2006

Dagur 170 ár 3 (dagur 900, færzla nr. 442):



Dodge Charger. 2006 model. Fínn bíll, fullt af hestöflum. Þurfti samt að fiffa þessa mynd aðeins svo hann liti betur út. Skottið var of stutt, húddið er enn svolítið snubbótt. Það eru ekki whitewall dekk á þessu.

Já. Svo er skottið aðeins of hátt líka. Mér líkar ekki þessi tendens að hafa svo hátt skott að ekkert sést útum afturrúðuna. Mér lýst einnig ekki of vel á þegar ekki sést almennilega hvar húddið endar. Veldur mér miklu hugarangri að þurfa að giska hvar bíllinn er staðsettur þegar ég er að leggja.

Jæja. Það gæti verið verra. Það gæti verið nýjasta dellan: brynvagnar.

Hummer var bara ekki nógu stór og þungur fyrir þessa vitleysinga.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli