miðvikudagur, apríl 29, 2009

Dagur 55 ár 5 (dagur 1880, færzla nr. 790):

Nú þykjast allir vera að deyja úr svínaflensu. Það var og. Hve margir eiga að vera dauðir? 150? Hvaða fólk er það? Bara einhver og einhver, eða er það aðallega fólk í svínaiðnaðinum? Alveg eins og þeir sem fórust úr hinni banvænu fuglaflensu hér um árið. Eins og staðan er fáum við engar vitrænar upplýsingar, svo þetta gæti bara verið misskilningur allt saman.

Gerum okkur grein fyrir því að venjuleg, ó-dýratengd flensa drepur á hverju ári 1000 manns í Svíþjóð. Og enginn segir neitt.



Þessi mynd (stolin frá BBC) segir allt sem segja þarf.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli