sunnudagur, október 31, 2004

Dagur 242:



Er bíllinn þinn tilbúinn fyrir veturinn? Var að keyra systrum mínum í burtu áðan, og þá olli það smá-veseni að afturhlerinn var frosinn fastur. Svo þegar þiðnaði, þá opnaðist hann af sjálfu sér. Sem betur fer gerðist það þegar bíllinn var kyrrstæður, annars væri ég nú kannski búinn að týna varadekkinu mínu.

Hvað er ég annnars að gera á jeppa? Mig langaði aldrei sérstaklega í jeppa. Jæja... kannski verður það Bens næst. Þó ég efist um það. Bens höfðar ekki mjög til mín. En það gera jeppar ekki heldur, og hverju ek ég? Svo nenni ég ekki að kaupa annan. Það er vesen.

Hérna, skemmtið ykkur: 50.000 orð takk.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli