sunnudagur, september 28, 2014

Dagur 208 ár 10 (dagur 3859, færzla nr. 1334


Við grjótnámurnar úti á hrauni


Urðarviti




Hola



Þarna var steinbogi fyrir bara viku




Þarna er torfæran haldin



Krossarasvæði




Og þar höfum við það.

fimmtudagur, september 25, 2014

Dagur 205 ár 10 (dagur 3856, færzla nr. 1333

Hversu margir færust ef hryðjuverkamenn tækju upp á því að gera innrás, eins og hér í tyrkjaráninu?

Reiknum það út, byggt á þeim upplýsingum sem ég hef viðað að mér gegnum tíðina, en höldum samt öllum útreikningum ofur-einföldum.

Fyrst finnum við út hvernig þer kæmust til landsins.

Alveg er vonlaust fyrir hóp af terroristum, gráum fyrir járnum að koma með flugi. Norræna hinsvegar kemur sterklega til greina.

Norræna tekur 1482 farþega og 800 bíla, svo 20 eða svo terroristar á fjórum húsbílum fullum af ammó kæmust alveg með.

Fleiri en 20, og þeir myndu vekja athygli. 19 terroristar vöktu enga athygli back in 2001, svo 20 ættu að sleppa.



Á móti þeim berjast 1: Sérsveitin, & 2: gaurar með haglabyssur. Þeir síðarnefndu eru ca 1% af íbúunum.

Sérsveitin tekur 90 mínútur að mæta eftir að þeim hefur verið gert viðvart, hinir gætu mætt eftir korter.

Til einföldunar segjum við að þeir séu allir í úthverfi Seyðisfjarðar að drekka kaffi & lesa Andrésblöð. Alltaf.

Sérsveitin er í RKV, og í flugvélar Arna komast 19 manns, svo þeir verða 19.

Vopnaður almenningur, verandi hlutfall af heild, er í tilfelli Seyðisfjarðar 1% af 665 manns, eða 6 gaurar.

Vopnabúnaður fylkinganna er:

Terroristarnir fá AKM, sem taka 30 skot.



Sérsveitin hefur H&K sem tekur 30 skot.



Almenningur hefur tvíhleypur.



Bardagar, til einföldunar útreikninga:

Sá sem stendur fyrir fyrirsát, sama hvernig, drepur alltaf 1.

Annars fara dráp eftir þessu kerfi:

Glæpamenn vs almenningur – 1/2, almenning í hag.
Glæpamenn vs löggan – 1/15, löggu í hag.

Að jafnaði ættu terroristar að geta myrt 3 hver á 5 mínútum í “target rich environment” en um leið og þeir þurfa að fara að leita að fólki er það 1 á mann á 5 mínútum.

Reiknum:

Terroristar mæta með norrænu, ná í hólkana og byrja á því að skjóta lögregluna & tollvörðinn. Svo plaffa þeir bara á allt og alla.

Eftir 10 mínútur getum við gert ráð fyrir að:

A: Allir eftirlifendur hafi flúið,
B: einhver hafi hringt suður
C: frettir af atburðinum hafi borist til okkar manna með tvíhleypurnar.

Bodycount: 2(3X20), eða 120.

Hér hafa terroristarnir val:

A, þeir geta farið í bæinn og gengið hús úr húsi myrðandi alla sem þeir hitta,
B, þeir geta farið akandi í allar áttir til að myrða fólk hér & þar,
C, þeir geta falið sig í Norrænu.

Byrjum á A.

Terroristarnir ná að myrða 3X20 manns áður en þeir hitta þessa sex gaura í fyrirsát.

Eftirlifandi 14 terroristar neyðast til þess að hætta fjöldamorðunum á meðan þeir berjast við þessa 6 gaura.

Hér eru 75 mínútur í sérsveitina.

Bardaginn sem hefst stendur yfir í minnst korter, og þá eru bara tveir terroristar eftir. Það væri enginn, en okkar menn eru bara með tvíhleypur.

Á klukkutíma geta 2 terroristar myrt 2X12 manns, eða 24. Að því loknu geta þeir alveg eins framið sjálfsmorð. Annars nálgast líkurnar á að þeir náist lifandi 1.

Bodycount: 210+18.

Möguleiki B:

Þeir eru á 4 bílum, og ef þeir skjóta á alla bíla sem þeir mæta, ættu þeir að ná að myrða einhvern á hverju korteri, per bíl.

Löggan kemur eftir 6 korter, og þá eru terroristarnir í 100 km fjarlægð, og búnir að myrða 4X6, eða 24.

Það mun taka 3 tíma bara að ná til þeirra. Þá verður tala látinna komin uppí 212. Það er ekki fyrirsát, svo löggan mun missa ~2.

Bodycount 214+~20

Möguleiki C:

Terroristarnir fara aftur um borð í norrænu, og dunda sér við það í 90 mínútur að saga hausinn af crewinu. Við getum gert ráð fyrir að þeir nái að stytta þannig 25% af þeim, eða 30 manns.

Þá kemur löggan. Og terroristarnir geta komið sér fyrir í einhverjum random káetum, og gert 10 fyrirsát. En farast allir fyrir vikið.

Bodycount 160+20

Þetta eru enn tiltölulega raunsæar tilgátur. En skoðum heim fantasíunnar aðeins:

Í paradís sósíalismans væru engir 6 gaurar með haglabyssur að lesa andrésblöð. Vegna þess að Andrésblöð eru burgeausee áróður, og haglabyssur bannfærðar sem morðtól sem enginn hefur rétt til að snerta eða getu til að meðhöndla.  Það myndi breyta tilgátu A, en ekki hinum, svo skoðum hvernig:

Eftir að þeir hafa myrt fyrstu 120 tilvonandi líkin sín, og allir aðrir eru flúnir af vetvangi, er dæmið 20X18, eða 360. Svo kemur löggan, með viðhöfn, og missir 2-3 í bardaganum sem fylgir.

Bodycount 502+~20.

Ef Seyðisfjörður væri hluti af Vermont, þá myndi allt dæmið breytast:

Terroristarnir ná að skjóta til bana lögguna & tollinn, og kannski 5-6 aðra, en eru þá truflaður af einhverjum 10-15 gaurum með skammbyssur & AR-15 riffla.

Það endar í skotbardaga sem stendur í örugglega korter.


Bodycount ~40. Terroristar innifaldir í þeirri tölu.

mánudagur, september 22, 2014

Dagur 202 ár 10 (dagur 3853, færzla nr. 1332

Rauðvínsbruggun er ágætis hobbý ef maður hefur ekkert of mikinn tíma.

Að taka græjurnar til og hreinsa þær tekur ekki nema í mesta lagi klukkutíma.

Að hella leginum í balann og hræra hann til tekur enga stund.

Svo bíður maður í viku, gerir eitthvað sem tekur ~ hálftíma. Svo bíður maður lengur.

Á meðan getur maður dundað sér við að hreinsa flöskur. 10 á dag, í þrjá daga - eða yfir vikuna. Þegar þær eru til eru þær til, og þarf ekkert a hugsa um þær.

Svo tappar maður vínunu á flöskurnar. Það tekur ekkert langan tíma.

Svo bíður maður í 2-3 mánuði áður en maður getur smakkað sullið.

Þeir segja það spekingarnir að vín sé svo gott fyrir hjartað.  Á sama tíma er vitað að það er ekkert allt of gott fyrir lifrina.

Svo...

Við drekkum þetta ekki á hverjum degi, er það?

fimmtudagur, september 18, 2014

Dagur 196 ár 10 (dagur 3847, færzla nr. 1331

Mig vantar bíl með torfæru-eiginleika.  *Einhverja* torfærueiginleika.  Þurfa ekki að vera miklir, bara vera þarna.

Ég hef áttað mig á þessu.

Hvað er þá til boða?

Ja, ég er ekki að fara að kaupa nýjan bíl.  Ég á alveg nóg af skuldum eins og er - þó þær fari nú eitthvað lækkandi.

Hvernig bíl þarf ég?

Ideal bíllinn væri Dodge Dart/Plymouth Valiant; Ford Falcon, Taunus, Granada; Volga; AMC Rambler, Ambassador; Chevrolet Nova, Chevelle, Malibu... eða eitthvað af þeirri stærð og lögun.  Með drifi á öllum.


1966 Dodge Dart

Sem sagt, ökutæki sem er ekki til.

Það er gott að hafa stórt skott, því endrum og eins flyt ég með mér hitt og þetta sem er betur geymt í skottinu en í aftursætunum.

Gott er að hafa 4 dyr, vegna þess að það er skærra að henda innkaupapokanum inn um afturdyrnar en að þvælast með hann með sér inn um bílstjórahurðina, og bauka þar við að troða honum afturí, þaðan sem þarf óhjákvæmilega að ná í hann aftur, eða drösla honum yfir í hitt sætið.

Því stærri, því betra, upp að vissu marki.  Ford F250 eiga það til að vera óþarflega langir bílar.  Sérstaklega pallurinn, aðallega vegna þess að pallur er einhvernvegin tilgangslausasti hlutur í heimi fyrir mig.

Að auki er sérstakur kostur ef bíllinn þolir smá árekstra.  Þeir hafa verið að plaga mig.

Kannski get ég látið einhvern rigga grind umhverfis bílinn?  Svona eins og er á Go-kart bílum?  Það væri dáldið töff.

Athuga það.

En... seinni tíma vandamál.

miðvikudagur, september 10, 2014

Dagur 188 ár 10 (dagur 3839, færzla nr. 1330

Eins og Depill, hin fljúgandi Corolla hékk saman, fannst mér við hæfi að finna til frábærustu bílana, með hliðsjón af hvernig þeir birtast í kvikmyndum:

1969 Ford F150, eins og hann er í "Mr. Majestyk":


Þeir notuðu bara einn...

1971 Ford Mustang MKII, eins og hann sést í "Gone in 60 seconds:" (og Blazing Magnums, en enginn man eftir þeirri ræmu.)


Ekkert virðist bíta á þessum.  Reyndar var sjálfskiftingunni haldið fastri með keðju, en... hversu margir (aðrir en ég) lenda í veseni með svoleiðis?

Talandu um Blazing Magnums, þá virtist þessi 1968 Buick Special tolla vel saman:


Budgetið á þessari ræmu var ekki þesslegt að það biði upp á marga action-bíla, svo þetta voru líklega einu bílarnri sem þeir höfðu.

1973 Pontiac Grandville, eins og í "The Seven ups"


Aftur, bara einn notaður.  Venjulega eru minnst 5.

1971 Pontiac LeMans, as seen on "french connection:"


Ekki bara notuðu þeir bara einn bíl, heldur var bara ein taka.

Ford Crown Vic, eins og í ... ja... ansi mörgu, en aðallega "Striking Distance:"


Þolir off-road...  Samt, horfandi á þessa senu, finnst mér endilega eins og þeir séu með lager af þessum.

1971 FIAT 124 special T, eins og í Le Casse:


Þessi '65 Opel Record var svosem ekkert slakur heldur:

miðvikudagur, september 03, 2014

Dagur 182 ár 10 (dagur 3833, færzla nr. 1329 Torfæru Hondan:


Á hrauninu



Það er slóði þarna



Á krossara brautinni

mánudagur, september 01, 2014

Dagur 180 ár 10 (dagur 3831, færzla nr. 1328




Þetta er ekkert langt frá hvert öðru



Speisað



Þetta er mjög undarlegt hús.



Ég var þarna


Ítalskir bílar


Hof


Hélt þetta væri ruslatunna.  Kom á daginn þetta var Dalek.




Mílanó



End of the line.



Fínn bíll.




Á heimleið.