mánudagur, apríl 28, 2014

laugardagur, apríl 26, 2014

Dagur 52 ár 10 (dagur 3703, færzla nr. 1281

Er einhver annar sem hefur grun um að gaurinn sem setur málshættina á yogi-tepokana sé í því að reykja teið?

sunnudagur, apríl 20, 2014

Dagur 46 ár 10 (dagur 3697, færzla nr. 1280

Ég fatta ekki Avatar.

Ég meina, hvernig er hægt að vera gráðugur gaur með aðgang að allskyns tækni, og líta framhjá FLJÚGANDI GRJÓTI og plöntum sem ég sé ekki betur en gætu veitt manni eilíft líf - bókstaflega.

Allt í einu er þetta efni sem þeir eru að leita að eitthvað tertiary interest, finnst mér.

Já.  Þetta er kvikmynd um gaura sem ætla að ryðja burt fullt af trjám sem eru meira virði en dótið sem þeir eru að sækjast eftir.

fimmtudagur, apríl 17, 2014

Dagur 43 ár 10 (dagur 3694, færzla nr. 1279

Var að leika mér að skannanum:



Bílar.



Peningar


Langó



Fleiri peningar



sunnudagur, apríl 13, 2014

Dagur 39 ár 10 (dagur 3690, færzla nr. 1278

Ég hef fundið það út, að ef maðpur gefur kettinum meira en hann getur klára á einum degi, þá klárar hann ekki botnfyllina, heldur leifir henni að vera, svo þegar það er bætt við, þá verður bara meiri afgangur næst, sama hve lítið er sett í dallinn.

Ég hef séð að mamma hefur ekki tekið eftir þessu.  Eða er bara sama.

mánudagur, apríl 07, 2014

Dagur 33 ár 10 (dagur 3684, færzla nr. 1277


Hvalkjöt.  Það var ljúffengt.  Sérstaklega með þessu víni.


Þetta er í Hafnarfirði.


Út um gluggann.