mánudagur, september 26, 2011

Dagur 205 ár 7 (dagur 2761, færzla nr. 1046)



Castle Wolfenstein. Auðvitað varð ég að skoða þetta.



Kominn aðeins nær.



Segir sig sjálft.



Hliðið.



Inní kastalanum.



Ég var þarna.



Veggur. Áhugaverður veggur sko.



Ég þarf að fá mér svona kastala einhverntíma.

miðvikudagur, september 21, 2011

Dagur 200 ár 7 (dagur 2756, færzla nr. 1045)



Á lestarstöðinni í Köln.



Í Bonn.



Hausar við hliðina á kirkju í Bonn.



Turn í nágrenni Nurburg.



Nurburg.



Týpískur þýskur sveitavegur.



Skógur.



Leigarinn kominn eitthvert út í skóg.



Sem mér þótti mjög ánægjulegt. Auðvitað. Þessar torfærur á skógi vöxnu fjalli var viss hápunktur í ferðinni.

laugardagur, september 17, 2011

Dagur 196 ár 7 (dagur 2752, færzla nr. 1044)



Í Brussel.



Hvað er þessi bíll eiginlega búinn að vera þarna lengi? Það þarf að fara að slá göturnar þarna.



Neðanjarðarbyrgi.



Veit ekki meir.



Ekkert að frétta þarna.

Ég myndi segja að Brussel sé sóðaleg borg - hún er það, miðað við Lille í Frakklandi, og jafnvel London, en svo kom ég til Kaupmannahafnar... Svo, Brussel er ekkert svo slæm.



En ég var náttúrlega bara þar í 90 mínútur - fékk mér kaffi og fór. Það er örugglega meira þarna að skoða.

þriðjudagur, september 13, 2011

Dagur 192 ár 7 (dagur 2748, færzla nr. 1043)



Týpískt Frakkland.



Lestarstöðin í Lille.



Út um gluggann á hótelinu. Þetta er svona týpískur Franskur bakgarður.



Venjulegt hringtorg.



Sönnun þess að Frakkar eru fullir alltaf.



Franskt veitingahús. Eða bar.



Ég á Franska veitingastaðnum.



Steik. Best: það eru franskar kartöflur með steikinni sem ég fékk á franska veitingastaðnum. Auðvitað!



Allur maturinn kostaði svipað og bara vínið hefði kostað hér.

föstudagur, september 09, 2011

Dagur 188 ár 7 (dagur 2744, færzla nr. 1042)



Mávur á Ermarsundi.



Sami mávur.



Calais.



Ég í Frakklandi.



Dularfullur turn einhversstaðar í Frans.

Meira síðar.

mánudagur, september 05, 2011

Dagur 184 ár 7 (dagur 2740, færzla nr. 1041)



Skilti sem gefur til kynna á hvaða brautarstöð maður er.



Kings Cross.



Hraðlestin til Dover.



Þetta er hinn farþeginn. Ég er viss um að hann er tímaferðalangur. Kominn frá 197-. Hvað hann ætlaði til Dover veit ég ekki. Hann sat svona alla leiðina.



Á leiðinni.



Þetta er Dover.



Sjáið bara hvítu klettana.

föstudagur, september 02, 2011



Dagur 181 ár 7 (dagur 2737, færzla nr. 1040)



Týpískt hverfi í Norður-London.

Þetta svæði allt minnti mig skuggalega mikið á hlíðarnar, eins og þær væru ef þær hefðu verið smíðaðar úr múrsteini.



Þarna er ég á einhverjum Írskum pöbb. Fékk mér Guinness. Það tekur smá stund að hella Guinness.



Þetta er White Hart barinn. Það er elsti bar í London með leyfi. Síðan 12--.



Ég fór bara á eitt safn. En ég fór á bar sem er eldri en lúteska. Góður bar líka.



Sögulegur staður, þetta.



Ég man ekki hvað þessi bar heitir.



Þarna fengust 3 gerðir af öli. Ale, það er ekki sama og bjór, eða "lager." Ekki jafn gott, satt að segja.

Bretar eru mjög hrifnir af börum, sem útskýrir af hverju það voru tveir barir um borð í ferjunni. Það var spes. Þeir státa hinsvegar ekki af mjög mögnuðum bjór. þess vegna fékk ég mikið af hollenskum bjór þarna. Það eina sem ég veit að var örugglega breskt, var þetta "ale" sull.