mánudagur, apríl 07, 2014

Dagur 33 ár 10 (dagur 3684, færzla nr. 1277


Hvalkjöt.  Það var ljúffengt.  Sérstaklega með þessu víni.


Þetta er í Hafnarfirði.


Út um gluggann.

sunnudagur, mars 30, 2014

Dagur 25 ár 10 (dagur 3676, færzla nr. 1276

Svona mánuður núna þar til ég þarf að losa mig við bílinn.  Sem er bara vesen, sem ég varla nenni að standa í.

Til lukku er mikið framboð af bílum á virðáðanlegu verði, ökutækjum sem eru þeim kostum búin að komast bæði yfir fjöll og fyrnindi og þola að verða  fyrir gaffallyftara endrum og eins.  Sem er alltaf ákveðin hætta þar sem ég vinn.

Vandinn er að ég hef ansi litla nennu til að sækja mér annan bíl.

Feh.


Jæja... ég hef enn mánuð.  Svona sirka.

miðvikudagur, mars 26, 2014

Dagur 21 ár 10 (dagur 3672, færzla nr. 1275

Kvikmynd kvöldsins:

trailer 1:


Split second

Trailer 2:


Antiviral

Traler 3:

 Sicilian connection

En...

Þetta er sem sagt kvikmyndin "Blind Beast," eða á frummálinu: "Moju."  Plottið er eiginlega bara það sama og í "Butterfly collector", nema þessi er aðeins meira kinky.  Byggð á skáldsögu Edogawa Rampo, frá 192X.  Veit ekki vort það er texti - það var ekki texti á útgáfunni sem ég sá, en það á ekki að skipta of miklu máli.  Þetta skilst nokkuð vel.


föstudagur, mars 21, 2014

Dagur 16 ár 10 (dagur 3667, færzla nr. 1274


Kaffið hressir.  Ágætt að nota þessa bolla, fyrst maður var að stela þeim.

laugardagur, mars 15, 2014

Dagur 10 ár 10 (dagur 3661, færzla nr. 1273













Kind








Þessar myndir eru ekki í réttri röð




Þar höfum við það, Toyota 2X4 off-road.

fimmtudagur, mars 13, 2014

Dagur 8 ár 10 (dagur 3659, færzla nr. 1272

Garðverkin:






















Svona var þetta í gær.






















Þarna kom trukkur.






















Svona var þetta í morgun.






















Rétt áðan.  Kannski virkar skólpið eitthvað frekar núna.  Nágranninn verður þá sáttur.

sunnudagur, mars 09, 2014

Dagur 4 ár 10 (dagur 3656, færzla nr. 1271

Búinn að vera að þessu í 10 ár.   Vá.  Færzla á 3 daga fresti, að meðaltali.

Hvað var að gerast 2004?


Þetta lag var spilað í útvarpinu.


Þetta, ekki svo mikið.


Ein aðal kvikmynd ársins.

Já... Facebook byrjaði það ár,  og Rússland hætti að viðurkenna vegabréf merkt sovétríkjunum.  Það, og hellingur af hryðjuverkum.

Þá dóu Ronald Reagan, Marlon Brando,  Rodney Dangerfield, Superman, Arafat, og margir fleiri.

þriðjudagur, mars 04, 2014

Dagur 363 ár 9 (dagur 3648, færzla nr. 1270

 Mamma sagði mér um daginn, að systurnar hefðu verið að hanga eitthvað á jútúb að glápa á vídjóin mín. Hún segir að þeim finnist vera voðalega mikið af byssum í kjarnorkutilraununum - sérstaklega núðluvídjóinu. 

Hvað á maður að segja við svoleiðis?

 Ég held að þær ættu að venja sig af því að droppa sýru á meðan þær eru að sörfa netið.

sunnudagur, mars 02, 2014

Dagur 361 ár 9 (dagur 3646, færzla nr. 1269

Sá þetta:


Takið eftir hvernig má sjá móta fyrir öllu tunglinu? 

föstudagur, febrúar 21, 2014

Dagur 352 ár 9 (dagur 3637, færzla nr. 1268

Sjáið bara:

 

Þetta er alveg heljarinnar samstæða.



Mjög fornlegt, en húsið er líka alveg eldgamalt, svo það er í stíl... þannig.

miðvikudagur, febrúar 19, 2014

föstudagur, febrúar 14, 2014

Dagur 345 ár 9 (dagur 3630, færzla nr. 1266



Á vappi í 104...



Sýndist borg Gnarrs vera furðu framsækin, skyndilega....



En nei...



Samt flott.

þriðjudagur, febrúar 11, 2014

Dagur 342 ár 9 (dagur 3627, færzla nr. 1265

Þá er ég kominn með einhver húsgögn.  Sem er framför síðan ég var bara með 4 stóla og rúm.

Það var smá leitun að DVD spilara, vegna þess að ég nenni ekkert að vera að cracka þessi tæki, sama hve létt verk það kann að vera.  Maður veit ekki nema maður þurfi þessa ábyrgð.  Gæti sparað tugi króna.

Kannski reyni ég að finna mér nýjan bíl eftir loðnuvertíð.  Eitthvað sem lyktar ekki eins og fiskur, hefur þægileg sæti, fleiri en 14 hestöfl, og er ekið minna en 240.000 km.  Árgerð er auka-atriði.

Helvítis bílar.  Þetta fellur um 500.000 kall á ári fyrstu 5 árin, 400.000 næstu 5 eftir það, og svo ca 250.000 þar til þetta fer á haugana.

Það má samt bíða aðeins.  Fyrst ætla ég að horfa á vídjó.

Skáparnir koma vel út.  Þeir virka mjög virðulega þarna inni.  Sjónvarpið ekki svo mjög.

Amma segist hafa það fínt á elliheimilinu.  Hún sleppur við að fara út í búð, hún þarf bara að rölta fram á gang til að fá sér kaffi, sem bara birtist fyrir framan hana eins og fyrir galdra.  Svo hefur hún sinn eigin hlaupakött, eins og er í álverinu.

Á morgun ætla ég með restina af draslinu í húsið.  Ekki alveg viss hvar ég get sett það, en allt hefur sitt pláss, það er víst.

fimmtudagur, febrúar 06, 2014

Dagur 337 ár 9 (dagur 3622, færzla nr. 1264


Það verður eitthvað gáfulegra næst.  Kannski.

sunnudagur, febrúar 02, 2014

Dagur 333 ár 9 (dagur 3618, færzla nr. 1263 Skanninn er skemmtilegt og nytsamlegt tæki.

miðvikudagur, janúar 29, 2014

laugardagur, janúar 25, 2014

Dagur 325 ár 9 (dagur 3610, færzla nr. 1261

Var að leika mér að skannanum:


Svolítið sjænað til, þetta var aldrei teiknað á besta pappírinn - þá meina ég pappírinn passar ekki í skannann, sem tekur bara A4.

miðvikudagur, janúar 22, 2014

Dagur 322 ár 9 (dagur 3607, færzla nr. 1260

Fleir myndir:


Það er löngu búið að taka þetta niður.


Herjólfur.


Gamli bíllinn minn, lengst uppi á hrauni.  Það er búið að skemma þennan veg núna.


Þessi mynd hefði komið vel út í bæklingnum - en þá var náttúrlega löngu hætt að framleiða þetta módel.


Svolítið skakkur.


Svolítill tungl fílingur þarna.


Frekar auðvelt að komast þangað.


Á leiðinni til baka.