föstudagur, júlí 09, 2004

Dagur 128:

Vitið þið, að ef maður gefur fíl ekkert nema sykur og smjör að borða í mánuð, þá verður hann óður?

Næringarskortur. Þeir gerðu þetta á Indlandi til að nota kvikindin í hernaði - koma þeim í rétt hugarástand. Svo hlupu þau um, traðkandi á fólki. Fjör.

Og að lokum:

Hugsaðu þér, ef þú opnaðir nú ísskápinn þinn, og þar sæti lítil rolla á hægindastól, og reykti vindil. Og hún myndi glotta til þín og veifa.

Skemmtileg tilhugsun.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli