þriðjudagur, maí 03, 2005

Dagur 58 ár 2:

Ég gleymdi myndinni. Hér er hún:



Ég veit ekki hvað þetta á að tákna, en það er ég viss um að það er eitthvað listrænt. Æ, ég veit það ekki... ég verð svangur af því að horfa á þetta.

Og enn ekki búinn að fá vinnu. Lét setja mig á biðlista hjá vinnueftirlitinu. Ég stefni á að fá opinbert plagg þess efnis að ég fái að aka gaffallyftara. Ég ætti kannski að reyna að gerast sprengjusérfræðingur í leiðinni? Það væri athugandi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli