miðvikudagur, janúar 02, 2008

Dagur 313 ár 4 (dagur 1397, færzla nr. 636):



Þá er komið að því giska á... að spá hvað gerist á næsta ári. Við skulum flokka það í þrennt: það sem gerist alltaf, sama hvað, það sem gerist ekki alltaf en er líklegt, og það sem er frekar fáráðlegt.

Byrjum á því líklegasta:

Ríkið gerir eitthvað asnalegt sem bitnar á allri þjóðinni, en að vanda fagna 25% þjóðarinnar. Það munu einmitt vera þessi 25% sem eru fasistar, og fíla svoleiðis. Svona um það bil 10% af því sem klúðrast endar í fjölmiðlum, en ekkert verður gert í því.

Femínistar segja eitthvað afar talíbanalegt.

Það verður verðbólga upp á svona 7%.

Það verður sett sölumet á einhverju. Einhverju tilgangslausu.

Og nú að því minna líklegu:

Það mun koma eldgos. Ég er alltaf að spá því, svo það hlýtur að rætast svona fimmta hvert skifti, að jafnaði.

Árekstur loftsteinsins og Mars verður afskaplega flott sjó.

Húsnæðisverð mun lækka að raunvirði. Í krónum talið ekki svo mikið, en um svona 7% í raun. Fólk fer þá að fara að hafa efni á því aftur - innan tveggja ára eða svo.

Femínisti mun eignast (glasa*)barn, og nefna það "F-4." Kyni þess verður haldið leyndu.

Bandaríkjamenn munu skifta um forseta, og fara beint í stríð við Íran. Ekki nauðsynlega í þesari röð. Ísraelar munu taka þátt í því. Þeir munu segja að það sé vegna kjarnorkuáætlunar þeirra. Þetta verður til þess að dollarinn fellur niður í svona 45 krónur. Sem aftur veldur því að átta tonna pallbílar verða mjög billegir.

Hestur og maður deyja í hörmulegu bílslysi milli landcruiser 200 jeppa með hestakerru og átta tonna amerísks pallbíls. Hestsins verður sárt saknað, enda jarðaður með viðhöfn. Illa farið með gott kjöt þar.

Lögreglan mun byrja að eltast við þá sem reykja opinberlega. Í framhaldið mun glæpum fjölga sem því nemur, við mikla undrun fjölmiðla, og skelfingu húsmæðra um alla Reykjavík.

Löggan fær langþráðar rafbyssur, og það líða ekki nema tveir mánuðir áður en fyrsta dauðsfallið verður af þeim sökum. Það mun vera einhver útúr dópaður hálfviti, sem mun fyrir vikið verða píslarvottur.

Fleiri löggur verða barðar á þessu ári en því síðasta.

Bandaríska hryðjuverkalöggjöfin verður til þess að 90% allra sem ferðast til landsins verða ólöglegir innflytjendur og dópsmyglarar.

Og að undarlegri hlutum:

Það mun koma á daginn að Fidel Castro er búinn að vera dauður í 2 ár. Maðurinn sem kemur fram fyrir hans hönd er tvífari hans sem hefur unnið við að vera skotmark launmorðingja hjá honum síðan 1977.

Rússar taka að sér að reka herstöð á Íslandi, að ríkisstjórn landsins óforspurðri.

Það mun finnast Al-Kæda sella á landinu. Tíu árum síðar mun koma í ljós að Björn Bjarna flutti hana inn sjálfur til að búa til hryðjuverkaógn til að sérsveitirnar og greiningardeildirnar hefðu eitthvað að gera.

Fólk verður beðið um að halda niðri í sér andanum í eina mínútu á dag eða meira til að draga úr losum gróðurhúsalofttegunda. Á sama tíma munu allir ráðherrar og þingmenn fá sér nýjan landcruiser, því það stendur "200" á honum.

Í tíð svarta svansins munu draugar fortíðar tákna helför gegn græna manninum á meðan styttan af Einari Ben mígur á mann og annan og svínið svitnar í sána.

Amen.

*annað hvort er maðurinn í glasi, eða barnið...



Eftir 17-18 ár verður gert grín að því sem er flott nú. Njótið þess að vera asnaleg þangað til.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli