sunnudagur, júní 20, 2010

Dagur 108 ár 6 (dagur 2300, færzla nr. 928):



Mayhem. Alvöru mynd... til á youtube. Gerð af einhverjum með mikinn frítíma.

Jæja, þessi ferlega kvikmynd var gerð 1994-5, held ég. Plottið er svona: Það er morðingi sem reynir að drepa einhvern. Hann sprengir líka hluti í loft upp af handahófi. Það eru eltingaleikir... sprengingar...

Æ, helvíti. Þetta er Alarm für Cobra 11 með engu bödgeti.

"Þú munt skjóta bláa kengúru, þegar þú ert búinn að því muntu éta appelsínugulu kanínuna, EN ÞÁ! Keyrir röndótti bílinn yfir þig!"

Já. Þetta er þokkalegt show, svosem, en hefði verið alveg frábært show með svona 100.000.000 krónum í viðbót.

Eftir þessa mynd fórum við að gera myndir með meiri áherzlu á skotbardaga. Þær bötnuðu umtalsvert fyrir vikið.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli