Dagur 176:
Það var einhver gæi að reyna að lifa af Macdónalds hamborgurum eingöngu í mánuð. Gerði mynd um það. Hann varð veikur af því. Hann vill sjálfur meina að þeir séu eitraðir.
Að einhverju leiti er það rétt hjá honum. Hamborgarinn sjálfur, kjötið, er bara kjöt. Brauðið er bara brauð. Sósurnar eru mestmegnis kólestról, nema tómatsósan, hún er bara tómatsósa.
Frönskurnar hinsvegar, stór hluti af máltíðinni, eru deadly.
Þær eru soðnar uppúr feiti. Feiti breytist við suðu. Því meira sem feitin er soðin, því meira breytist hún. Og hún breytist í allskyns krabbameinsvaldandi efni, próteinin í henni lengjast og/eða styttast, atóm sem mynda hringi slitna og mynda strengi.
Eftir viku suðu eða svo er olían enn olía, bara ekki matarolía. Þetta hefur verið vitað lengi. Og í þessu eru frönskurnar steiktar.
Engin furða að manninum hafi liðið hálf-illa.
hefur ykkur aldrei fundist að þið gætuð hreinlega bara dottið út í geiminn?
fimmtudagur, ágúst 26, 2004
miðvikudagur, ágúst 25, 2004
Dagur 175:
Loksins loksins! Veðrið breyttist. Í rigningu, að vísu. Jæja. Það er tilbreyting. Þú get ég áhyggjulaus hangið inni eins og venjulega.
Þegar maður var yngri, þá var þetta stuð, fullt af pollum til að hoppa í, drulla til að malla í; hægt að vaða og hvaðeina.
Og þar sem það er byrjað að rigna, þá er hægt að fara aftur að stunda hina aldagömlu iðju: að nöldra yfir veðrinu.
Geymum það samt til morguns.
Í dag ætla ég að... byrja á því að hætta að skrifa í bloggið.

þriðjudagur, ágúst 24, 2004
Dagur 174:
Það er að kólna. Loksins. Ég var nú búinn að spá því að framtíðin yrði hlý; næstu 4-600 ár eða svo. Vegna hitasveiflna sem verða í gegnum árþúsundin. Það var hlýtt hér á landnámsöld, þið munið. Grænland stóð undir nafni til 13hundruð og eitthvað. Svo kólnaði, og veðrið varð eins og það hefur verið fram að þessu. Smá auka-kuldakast í kringum 1600-1700, ef mér skjöplast ekki.
Það eru ekki allir jafn bjartsýnir og ég. (Og hér er ég, haldandi að ég sé bara mjög svartsýnn). Sumir halda því fram að bráðnun jökla eigi eftir að breyta hafstraumum, og koma af stað nýrri ísöld, svona eins og í teiknimyndinni. Sem þýðir, að það verður bara til ein hneta, og hún verður stór, og óbrjótandi.
Já. Sömu aðilar eru alltaf að tala um að einn daginn, sennilega á mánudaginn, muni halastjarna rekast á jörðina, og við munum öll deyja. Þar áður muni vissar eyjar í miðju Atlantshafi hrynja til grunna, og koma þannig af stað gífurlegri flóðbylgju sem mun eyða öllum byggðum bólum sem snúa að Atlandshafinu. Hvort þetta allt gerist svo fyrir eða eftir að ísöld skellur á veit ég ekki.
Og djöfull er ég búinn að skrifa mikið núna.

mánudagur, ágúst 23, 2004
Dagur 173:
Ólympíuleikar. Þeir eru frekar leiðinlegir. Ekkert nema sund og handbolti. Lítið fútt í því. Sá fimleika um daginn. Skildi ekkert í þeim, annað en að þessar rússnesku líta betur út en allar hinar, og þessar amerísku eru allar hræðilegar herfur.
Ekkert mótorsport. Enginn kappakstur - það sem kom næst því var einhver bátakeppni, en hún var frekar slow-mo eitthvað og óspennandi.
Það jafnast ekkert á við þetta crap þarna á júrósport þar sem 100 Ford Fiestur æða af stað allar samtímist. Fjör. Ekki ólympískt sport þó.
Hef heldur ekki orðið var við keppni í keilu. Er keila kannski ekki ólympíuíþrótt?

sunnudagur, ágúst 22, 2004
Dagur 172:
100 bloggið. Þvílík gífurleg tímamót. Að nenna þessu. En svo hugsa ég: hey, ef ég hefði skrifað alltaf 1 síðu af svona þvaðri, þá væri ég nú kominn með bók sem ég gæti gefið út um jólin. Geri það næst.
Jæja, ég gróf upp... fékk upp í hendurnar smá lesefni: http://www.johntaylorgatto.com/underground/toc1.htm
Jæja. Hvað um það. Lundapysjutíminn stendur yfir. Hef séð nákvæmlega eina pysju á röltinu, og sú stökk út í sjó og synti burt svo ég náði henni ekki. Hún fór þó út í sjó. Var það ekki anars hugmyndin?
Annars hafa flestar þær pysjur sem ég hefi séð verið dauðar. Fann eina uppi í klettum. Það var sú eina sem var ekki hauslaus. Hún var ámóta dauð fyrir því. Hefur trúlega flogið á bjargið ofan úr heimakletti. Svo lá hún bara þarna eins og fugl á eggi.
Og það er ennþá svona gott veður, heitt og sólríkt.

laugardagur, ágúst 21, 2004
Dagur 171:
Aftur of heitt. Með þessu áframhaldi er spurning að flytjast til Alaska. Eða síberíu. Las í fréttablaðinu að hitinn í Vostok á suðurskautinu gæti farið niður í -89°C. Við þangað. Þar er greinilega lífvænlegra en hér. Hægt að hanga inni í tölvunni allan daginn án þess að fyllast löngun til að fara út einhverntímann. Og alltaf nóg af ís í kókið. -eða vískíið ef maður er svoleiðis innstilltur.

föstudagur, ágúst 20, 2004
Dagur 170:
Heitt. Of heitt. En samt, af einhverjum orsökum er eitthvað sem dregur mig til aðfara út, og vera í þessu, þó það sé of heitt.
Hef hundinn með. Fer niður í fjöru, og fylgist með dýrinu hlaupa út í sjó.
Hundurinn þefar alltaf af öllum dauðu fuglunum. Var þarna um daginn. Þá höfðu hestamenn verið á ferli. Maður þekkir hestamenn alltaf úr. Þeir fíla sig best í djúpum skít. Skilja hann eftir hvar sem þeir geta komið því við.
En hvað um það. Hestamenn höfðu skilið eftir sínar afurðir, og þetta sér hundurinn. En sniðugt, hugsar dýrið; ég held ég taki þetta upp og labbi með það smá spöl.
Ógeðslegt.

sunnudagur, ágúst 15, 2004
Dagur 165:
Stundum er eina ástæðan fyrir því að maður vaknar sá að maður þarf að mæta í vinnu. Eins og núna. Það er sunnudagur. Sunnudagar eru leiðinlegustu dagar sem fyrirfinnast. Ekkert í Tívinu, ekkert í útvarpinu, ekkert á seyði almennt. Hlutir eiga enn eftir að rúlla yfir á mánudag. Mánudagar eru svo ekkert betri. En munurinn er, að á sunnudegi á maður mánudaginn eftir.

laugardagur, ágúst 14, 2004
Dagur 164:
Ég er svangur. Og mér verður hugsað til allra letidýranna, sem hanga bara uppi í tré á hvolfi og borða ávexti. Hið ljúfa líf. Ég gæti verið letidýr. Prófa það næst, ef eitthvað slíkt býðst.
En letidýr eru í heitari löndum, sem er slæmt. Ég er ekki fyrir þennan hita. Hvernig væri þá að vera grábjörn? Búa í Alaska þar sem er kalt. Sofa allan veturinn, og gera svo ekkert annað yfir sumarið en að éta túrista.
Já. Þarf að spá í þessu.

föstudagur, ágúst 13, 2004
Dagur 163:
Þoka.
Þoka og það er ekkert á seyði. Er eins og undanrenna, þetta. Og hvað svo? Nú athugun klukkan X auðvitað! Fjör.
Getur Árni Jónsen ekki reddað svona lendingarbúnaði eins og herinn er með, svo hægt sé að lenda í Þessu? Hvernig væri það? Hann reddaði jú einhverjum ljósum uppá Bakka. Það var mjög sniðugt.

laugardagur, júlí 31, 2004
Dagur 150:
Sól.
Heh. Hvað á maður að gera af sér í dag? Ég veit! Spila tölvuleiki í vinnunni!http://www.pbs.org/empires/napoleon/n_war/ibs/game.html Fjör.
Var í dalnum í gær. Hitti Hannes. Veit ekki hvort hann var fullur eða bara þreyttur. Hitti líka Þórönnu og Fríðu. Þær virtust edrú ennþá. Horfði á eldinn og hlustaði á Hoffman. Má teljast heppinn ef ég heyri eitthvað hér eftir.

miðvikudagur, júlí 28, 2004
Dagur 147:
Hvernig verður veðrið á Þjóðhátíð? Þoka? Rigning? Snjókoma? Gengur á með éljum?
Það er aðal málið núorðið. Ef það verður ófært hingað, þá verður löggan ánægð, því þá verður leti-líf hjá þeim. Ef fært, á verðum við á velinum svaka happý, því þá hringja færri.
Nú eru allir að hringja og spurja um KA liðið. Hvimleitt. Hvað veit ég um KA liðið? Það fer héðan aftur í kvöld...
Það er að koma þjóðhátíð. þá er allur farangurinn brothættur. Nema þessi í nýju neitendavænu umbúðunum.

sunnudagur, júlí 25, 2004
Dagur 144:
Umferðarráð gefur mér margar góðar hugmyndir:
Ég sé, TD, að það væri mjög auðvelt fyrir mig að vera listamaður: ég fæ einhvern til að koma sér fyrir úti á götu, og svo bara ek ég yfir viðtakandi, og voila! Komin andlitsmynd á malbikið!
Virkar hugsanlega líka með rollur og ketti, er samt ekki viss, þarf að spyrja þá.
Svo las ég í blaðinu athyglisverða setningu:
"Ef þú keyrir yfir einhvern á 100 km hraða, þá er það ekkert slys".
Og ég hugsa: en ef ég gerði það óviljandi? Þá hlýtur það að vera slys, er það ekki?
Eða hvað?
Hmm. Slys er, að ferðast yfir 10 kílómetra fram og til baka til að ná í byssu, miða henni á hausinn á einhverjum og hleypa af. Eða það segja fjölmiðlarnir við mig.
Og ekki ljúga þeir?
Ja. Eki er gott að segja.
Jæja. Næst þegar ég þarf að drepa einhvern, þá hef ég bara í huga að ef égkeyri yfir einhvern á 100, þá er það ekki slys. Betra er að vera á 110, eða 90. Þá er það slys. Vissulega. Gott að hafa svona hluti í huga!

föstudagur, júlí 16, 2004
Dagur 135:
Ég er enn gáttaður á því að ekki megi flytja inn krókódíla og lamadýr. Hissa, furðu lostinn jafnvel. Það má flytja inn hunda, þeir þurfa bara að vera í einangrun úti í hrísey á smástund, en ekki lamadýr. Minn skilningur á málinu vex ekkert við þetta.
Landbúnaðarráðherra stjórnar þessu. Svo, ef ég hitti hann verð ég að spyrja hvað veldur. Kannski eru lamadýr bara ekki jafn-sexý í hans augum og beljur? Hver veit.
Kannski ef lamadýr hétu einfaldara nafni, eins og til dæmis "ell", þá féllu þau betur að fánu landsins - menn í háum embættum væru til í að sætta sig við "Q" og "Á" og "L". En þá vaknar spurningin, hvað með hestinn?
Hestur er mjög ljótt dýr, sem heitir tveggja athvæða nafni - hest-ur-. Og hrein-dýr. La-ma-dýr.
Aha! Það eru of mörg athvæði í lamadýr, þessvegna má ekki flytja kvikyndið inn! Það er of erfitt fyrir möppudýrin að segja það. Þau gætu þekkst úr á spjallinu.
"Hvað er þetta?"
"lamdýr"
"ha?"
"ég meina lamamamadýr"
"-uh- vinnuru nokkuð á stofnun?"
Já.

fimmtudagur, júlí 15, 2004
dagur 134:
Ég hefi lítið álit á því að vakna snemma á morgnana. Það virðist nefnilega alltaf vera drullukalt á morgnana, sama hvernig veðrið var kvöldið áður, eða um nóttina.
Í dag er bæði kalt, og það er rigning. Nú væri til dæmis ofsalega frábært að vera sofandi. En... ég fæ ekki borgað fyrir að vera sofandi... ekki enn.

mánudagur, júlí 12, 2004
Dagur 131:
Ætli það væri mikið vesen að flytja fíl til landsins?
Auðvitað? Hvað er ég að hugsa? Það væri ómögulegt að flytja fíl inn til landsins! Það er örugglega bannað, til að vernda íslenzka fílastofninn fyrir vírusum.
Það var ekki einusinni hægt að fá leyfi fyrir krókódílum á sínum tíma, vegna ótta við eitthvað sem ekki var.
Já, það er alltaf þessi ótti við eitthvað sem er ekki til, sem er notaður sem afsökun til að banna innflutning á öllum fjandanum.
Banna mér og þér það er - ég heyrði engan kvarta þegar hreyndýrin voru flutt inn á sínum tíma. Þótti bara góð hugmynd. Mér er ekki skemmt. Hreyndýr eru líka fremur leiðinleg. Það hefði verið vænlegra að flytja inn púmur.
Til hvers?
Jú, til að éta þessar óþolandi vegarollur.

föstudagur, júlí 09, 2004
Dagur 128:
Vitið þið, að ef maður gefur fíl ekkert nema sykur og smjör að borða í mánuð, þá verður hann óður?
Næringarskortur. Þeir gerðu þetta á Indlandi til að nota kvikindin í hernaði - koma þeim í rétt hugarástand. Svo hlupu þau um, traðkandi á fólki. Fjör.
Og að lokum:
Hugsaðu þér, ef þú opnaðir nú ísskápinn þinn, og þar sæti lítil rolla á hægindastól, og reykti vindil. Og hún myndi glotta til þín og veifa.
Skemmtileg tilhugsun.

laugardagur, júlí 03, 2004
Dagur 122:
Hver er ógnin? Það stafar mikilli ógn af útlendum skemmtiferðaskipum, skilst mér. Það er extra löggæzla umhverfis þau víst. Þessir túristar, þeir eru svo hættulegir. Auðvitað ætti að flytja þá um landið í búrum, svo þeir vinni ekki tjón.
Svo hugsa ég: hey! Ef ég væri terroristi, myndi ég sprengja eh á íslandi? Hvað er hér til að sprengja? Hvað væri ofsalega flott að sjá springa í tætlur?
Hallgrímskirkju? Ekki nógu hátt bodycount. Þar að auki mætir aldrei neinn í kirkju sem má ekki missa sín, mér vitanlega.
Hús verzlunarinnar? Já, hvernig væri að stela flugvél og fljúga á það? En hverju? Boeing 707 er overkill, og nær aldrei að toppa World Trade center, þó vissulega yrði þetta ofsalega cool sprenging og allt það... það eru bara of fáir þarna. Að auki myndi heimurinn glotta, og aðeins við myndum kenna á því.
Stjórnarráðið? Nei. Jafvel ef ríkisstjórnin væri þar öll á fundi... ne annars, ef ríkisstjórnin væri þar öll á fundi, þá væru þeir að gera okkur greiða. Enn meiri greiða ef þar væri að auki saman komin stjórnarandstaðan, forsetinn og allar helstu nefndir.
Ísland er lame target.
Ef ég væri terroristi, þá færi ég til útlanda, og ég myndi detoneita eitthvað stórt á Hróarskeduhátíðinni! Je! Naglasprengju! Hundruð myndi farast, hundruð myndu meiðast, þúsundir myndu fá áfall, milljónir myndi verða fyrir auknum öryggisráðstöfunum! Það er svo þétt setið. Algjört success.
Svo er spurning að sprengja eitthvað á Glastonbury? Einhvern frægan kannski...

fimmtudagur, júlí 01, 2004
Dagur 120:
Geimskip. Nóg af þeim þarna úti. Að vísu flest á leið frá okkur sjálfum, en ekki til okkar frá einhverjum öðrum... En er það verra?
Ja, til að skapa, þarf þörf (þarf þörf???), og séu lífverur sáttar við daginn, allt gengur í haginn og allt er fínt og gott, þá hanga dýrin bara uppi í tré og borða ávexti.
En ef allt er ekki í ró og næði, heldur slæmt, og rándýr hlaupa um étandi og snæðandi, og það eru illindi og leiðindi, þá er þörf á ýmsu. Nýjum og betri leiðum til að vera með illindi.
Ef við næðum í allan okar mat upp í tré í formi ávaxta, þyrftum við aldrei að elta hann, og gætum þess vegna ekki orðið leið á að elta hann, og dytti því aldrei í hug, sama hve gáfuð við værum þarna í trénu, að henda á bráðina steinum eða prikum, og myndum aldrei finna upp spjótið, eða bogann.
Ávexti þarf ekkert að elda, og þeir fyrirfinnast líka aðeins í hlýrri löndum, svo við hefðum ekkert með eld að gera...
Geimverur sem kæmu til okkar væru því líklega kjötætur, líkt og við. Þessvegna er fínt að þær skuli ekki vera á leið til okkar, með piparsósuna tilbúna, og ölið til taks.
Horfum til himins...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)