sunnudagur, febrúar 28, 2010

Dagur 363 ár 5 (dagur 2185, færzla nr. 878):

Jæja... myndir:



Afmæliskakan. Hún er góð í litlum skömmtum. Mjög litlum skömmtum.



Mamma.



Pabbi & Illugi litli.



Amma & Guðlaug



Helga, Kiddi & foreldrar Siggu.



Fokking kveikjarinn virkaði ekki...



Eldspítur klikka aldrei.



Fólk komst í smá Paparazzi stuð. Tók fleiri myndir en rútufylli af japönskum túristum.



Bjarni að skrúfa hausinn betur á Illuga.



That's the way, uh-uh, uh-uh, I like it, ah huh, ah huh,



Þórgunnur.



Þarf alltaf tvö af öllu; eitt í hvora hendi.

Jæja, nóg af þessu.

fimmtudagur, febrúar 25, 2010

Dagur 360 ár 5 (dagur 2182, færzla nr. 877):

Af hverju grunar mig að talningin hafi skolast til einhversstaðar? Laga það í næsta mánuði.



Þetta er úr Odda. Það er mjög einkennileg bygging. Í Odda halda til einkennilegir menn, hér eru þeir:



Þetta munu vera Tómas og Hans. Þjóðverji og svisslendingur.



Þetta er Barmahlíð 41. Og tré. Helvítis hellingur af trjám.



Og þetta er eggjakaka.

Svona líta myndir út teknar með lægstu mögulegu upplausn. Ekki slæmt, en ekkert ofur frábært heldur. Ég held ég stilli vélina á aðeins betri uplausn í framhaldinu.

sunnudagur, febrúar 21, 2010

Dagur 356 ár 5 (dagur 2178, færzla nr. 876):

Meira jútúb:

Treiler:



Þetta er örugglega mest óviðeigandi treiler ever. Jæja...

Þetta er fyrsta kvikmynd sem ég og félagarnir gerðum. (Nei, við komum ekki nálægt gerð myndarinnar Sakura no Sono. Þó ég efast ekki um að við gætum örugglega endurgert hana ef Boggi og þeir væri til í að vera í pilsi og Andrésar andar treyju... og við vissum hvað plottið er.) Mig minnir endilega að það hafi verið Beggi sem stakk upp á þessu, ekki ég, þannig að nöldrið í honum. Allt honum að kenna.

Hvað um það, þessi mynd var í það heila vel yfir 6 mínútur. Mikið af því var eitthvað "leave the camera running" stöff. Ég editaði það út vegna þess að ég gat það. Ef einhver hefur áhuga á allri myndinni óklypptir, má sá hinn sami mæta til mín með USB lykil og ég get reddað henni, ekkert mál. En ég er ekki að ljúga þegar ég segi að þessar extra 3 mínútur megi alveg missa sín.

Það var ekkert handrit. Ég man ekki til þess að plottið hafi verið neitt meira en "þessir gaurar fara allir að elta hvorn annan bara af því bara. Bara bara." Ég sá allt of mikið af Sjaplínmyndum þegar ég var yngri.

Nú, þetta er seinni útgáfa af þessari sömu mynd. Fyrri útgáfuna kallaði ég Epic Masterpiece Cinema, og hún er það fyrsta sem kemur upp þegar maður gúglar "epic masterpiece cinema," sem er afar írónískt. Jæja, það er epískt sándtrack... Þessi útgáfa (EMC) lenti á einhverju Líbönsku linkasafni um daginn, og það er víst fullt af fólki í Oman sem hefur séð hana.

Við erum frægir á Arabíuskaganum.

Í þessari útgáfu er ekkert epískt sándtrack. Hinsvegar eru hljóð, sem mér þótti eiga við. Ég fann þau á netinu. Þetta öskur þarna hefur verið notað í mjög mörgum kvikmyndum.

Jæja, hér er hún:



(Er einhver sem klikkar á linkana?)

miðvikudagur, febrúar 17, 2010

Dagur 352 ár 5 (dagur 2174, færzla nr. 875):

Skellum inn einni svona:



Einhver bað um þetta. Systurnar að syngja. Já, textinn þarna er allur kolrangur, og er úr þessum lögum:

Smoke on the water
"all my ex's live in Texas"
Leroy brown
Eye of the tiger
Die die my darling
Mister spaceman

Ég veit ekki hvaða textabrot er vitlausast haft eftir.

sunnudagur, febrúar 14, 2010

Dagur 349 ár 5 (dagur 2171, færzla nr. 874):

Hmm... í dag er einn af þessum influttu hátíðisdögum sem ganag út á að selja blóm og nammi. Eða eitthvað svoleiðis. Spilum smá rómó músík:



"Skullcrusher mountain" - Jonathan Coulton.



"Tear you apart" - she wants revenge.



"Drown in ashes" - celtic frost.



"Stein um stein" - Rammstein. Með enskum texta. Afar hjálplegt.



"To have and to hold" - Deftones (Depeche mode cover)



"Still alive" - Jonathan Coulton (úr einhverjum tölvuleik.)

fimmtudagur, febrúar 11, 2010

Dagur 346 ár 5 (dagur 2168, færzla nr. 873):

Kvikmyndakvöld aftur, það þýðir bara það sama og venjulega, 3 treilerar + kvikmynd:



2010. Þegar Sovétmenn fara til Júpiter. Jæja... Alltaf gaman þegar framtíðin kemur, og kvikmyndin er orðin mjög röng. Escape from New york, einhver?



Renaissance. Frönsk teiknimynd sem enginn hefur einu sinni heyrt um.



Rumah Dara. Indónesísk kvikmynd sem þið munið aldrei heyra um aftur.

Og nú, kvikmynd kvölsdins:



The Terror, frá 1963. Með Jack Nicholson og Boris Karloff. Og nokkrum öðrum.

Þessi mynd... er ekki mjög góð. En hún er einhvernvegin ekki nógu vond heldur til þess að geta verið almennilega ... uhm ... góð. Ekki eins og Litla hryllingsbúðin (önnur mjög frábær mynd eftir Roger Corman) eða Plan 9 from outer space. Eða Attack of the killer tomatoes.

En hey, það er ekki eins og þið sjáið ekki tonn af rusli á hverju ári sem er verra en þetta, og hefur það eina sér til málsbóta að vera nýrra. Fuck that.

þriðjudagur, febrúar 09, 2010

Dagur 344 ár 5 (dagur 2166, færzla nr. 872):

Ég hef tekið eftir því undanfarið, að fólk tekur ekki lengur lyf við neinu. Til dæmis eru ekki lyf við malaríu. Nei. Í staðinn eru lyf "gegn" malaríu.

Á svipaðan hátt er fólk ekki lengur beitt ofbeldi. Nei. Ofbeldi er "gegn því", einhvernvegin.

Sko, ofbeldi er ekki efnislegt fyrirbæri, og hefur þess vegna ekki framhlið, afturhlið, eða... hlið. Það getur því ekki verið staðsett á móti (eða gegn) neinu. Hvorki fólki né dýrum. Lyf eru efnisleg fyrirbæri, en það er skilgreiningaratriði hvaða partur af þeim er fram og hvað aftur, svo erfitt er að segja hvort þau geta verið "gegn" nokkrum hlut. Og satt að segja veit ég ekki alveg hvað snýr fram og hvað aftur á malaríu.



Malaría. Finnið út úr þessu.

Annar merkilegur frasi er þetta "hvað varðar" er allir eru alltaf að segja. Sem er líka tóm vitleysa.

Ég bara bíð eftir því að fólk fari að spyrja: "er eitthvað í ísskápnum, hvað varðar matvæli?" eða "Hvað eigum við að gera hvað varðar mjólk?"

Í stað þess að spyrja: "er eitthvað til í ísskápnum," og "þurfum við að kaupa mjólk?"

Þetta er ekkert betra en þegar peyjarnir sögðust eiga "úrval í ljósaperum."

Það sem hér hefur augljóslega skeð, er að fólk sem ekki getur formað heila hugsun hefur fengið að vaða uppi. Fólk sem ekki getur myndað setningar sem einu sinni hljóma rétt, hvað þá meira, eða eru beinlínis ruglingslegar, svo maður veltir fyrir sér hvað er eiginlega verið að meina.

Svo, endilega, áður en þið opnið munninn, takið ykkur eina auka sekúndu til þess að hugsa um hvort þið eruð nú ekki örugglega að orða það sem þið ætlið að segja að minnsta kosti nokkurn vegin rétt.

Bara svo þið hljómið ekki eins og þið séuð að lesa upp úr mogganum.

laugardagur, febrúar 06, 2010

Dagur 341 ár 5 (dagur 2163, færzla nr. 871):



Ég þarf eitthvað lítillega að stilla myndavélina, allar myndirnar verða risastórar. Fleiri megabæt.



Þetta er Brynja.

Vélin var stilt á fullt - þ.e. 12.1 megapixla. Ég ætla að taka nokkrar myndir með hana á lægri stillingu, og athuga hvort myndgæðin verða ekki þolanleg. Þá verður kannski hægt að snúa myndunum við í MS paint.



Bjarni Hólm



Illugi 2.



Sigga.



Edda Björk yngri.



Þógga og Stjáni.



Þórgunnur & Amma.



Helga Sigríður og Kiddi held ég hann heiti. Það kemur.



Illugi & Brynja.



Guðni að slappa af með Þórgunni og Ömmu.



Ég.

föstudagur, febrúar 05, 2010

Dagur 340 ár 5 (dagur 2162, færzla nr. 870):

Skoðum nú hvernig mér gengur miðað við aðra:

30 11226 268 Stephen Biko
30 11211 253 Jim Croce
30 11135 177 Patsy Cline
30 11064 106 Sylvia Plath
30 10963 5 Andy Gibb
- 10958 0 You are here
29 10699 -259 Hank Williams
28 10520 -438 Heath Ledger
27 10157 -801 Jimi Hendrix
27 10120 -838 Janis Joplin

Eftir 6 daga verð ég eldri en Andy Gibb varð. Eins og er vegnar mér betur en Jimi Hendrix og Heath Ledger. Ég tek minna af lyfjum en þeir, að vísu.



Hah!

fimmtudagur, febrúar 04, 2010

mánudagur, febrúar 01, 2010

Dagur 336 ár 5 (dagur 2158, færzla nr. 868):



Stundum gengur fólk bara of langt. Jú, það eru oft svona "translators notes," en þau eru nú oftar gáfulegri en þetta.

***

Og þá: önnur fjölskyldumynd:



Aftur, með viðeigandi undirspili. Vona að þið fílið þetta í botn.

Hér er linkur fyrir þá sem fatta ekki brandarann. Ef þú fattar ekki hvernig á að opereita linknum átt þú ekkert erindi á netinu.

föstudagur, janúar 29, 2010

Dagur 333 ár 5 (dagur 2155, færzla nr. 867):

Ég var að velta fyrir mér hreindýraveiðum. Auðvelt sport, það, skilst mér. Maður kemst alveg innan 50 metra færis frá hreindýri ef maður vandar sig. Ef maður nennir því ekki, þá er lítið mál að skjóta eitt með riffli af 150-200 metra færi. Það er svo stutt að jafnvel AK-47 væri nýtilegt vopn í það.

En gefum okkur nú að maður ætlaði að gera þetta löglega, þá er það 100.000 kall, lágmark. Og fer hækkandi. Og ef maður gerir þetta ólöglega, þá er vesen. Og það er nokkuð augljóst hvað hefur átt sér stað ef maður kemur að manni með riffil standandi yfir dauðu hreindýri.

Svo ég er með hugmynd:

Maður safnar saman nokkrum vinum og kunningjum, helst svona 10 manns, ekki færri en 3. Svo kynnir maður sér landslagið þarna á austurlandi, með sérstakri áherzlu á djúp gil og kletta.

Svo finnur maður hjörð af hreindýrum. Þá þarf hópurinn að dreifa úr sér. Hvernig það er gert fer eftir staðsetningu hjarðarinnar og landslagi. Næsta skref, þegar allir eru búnir að koma sér fyrir, er að fæla dýrin. Nú kemst maður að því hvort allir eru rétt staðsettir, því þeir eiga að fæla dýrin frá sér og elta þau, þangað til þau æða öll fyrir næsta bjarg.

Þegar kvikyndin eru dottin fyrir björg er lítið mál fyrir hópinn að skera þau í handhægar einingar og flytja þau á brott.

Ef einhver kemur að þessu, þá getur hann ekki sannað að neitt glæpsamlegt hafi átt sér stað, enda engin skotgöt á dýrunum, og engin sár önnur en þau sem eðlilega hlytust af svona falli.

Hvalir æða upp á land í stórum þvögum, af hverju ættu ekki hreindýr að hlaupa fram af klettum? Ég held reyndar að það gæti verið auðveldara að fæla heila hjörð fyrir björg en bara eitt stakt dýr. Fólk er heimskt í stórum hópum, það sama ætti að gilda um dýr.

Þetta held ég að gæti verið málið. Ekkert óþarfa veiðileyfi, enginn kostaður við neitt sérstaklega, annað en svarta ruslapoka undir kjötið.

Nú er bara að fara að stúdera landslag austurlands.

mánudagur, janúar 25, 2010

Dagur 329 ár 5 (dagur 2151, færzla nr. 866):

Jæja, þá eru það treilerar. Þið vitið hvað það þýðir.



Lone wolf & cub.



Lone wolf MacQuade.



Thunder.

Og nú kvikmynd kvöldsins:



Return of the Street fighter. (1974)

Í þessari mynd, sem er framhald "the street fighter," ein af 3 framhaldsmyndum, allar frá sama árinu (Þessi ræma hefur verið fljót að hala upp í kostnað. Þeir hafa ekkert betra við tímann að gera en að búa til framhaldið, býst ég við.), berst götubardagamaðurinn við Jesú.

Það er eitthvað meira plott, en það meikar lítinn sens og er bara eitthvað til þess að hengja á röð af slagsmálasenum. Engan röntgenmyndir í þetta sinn, samt. Mig fannst það vanta.

Fyrsta myndin er betri en þessi. Ég ætla ekki að tjá mig mikið um hver er fyndnari, en þessi á marga góða spretti. Það er til dæmis erfitt að glotta ekki þegar maður sér að aðal-kvenpersónan er Lína langsokkur.

Þið hafið verið vöruð við - ekki drekka of mikið yfir þessu, eða setjið amik á pásu á meðan. Það getur marg borgað sig, til að skemma ekki lyklaborðið.

föstudagur, janúar 22, 2010

Dagur 326 ár 5 (dagur 2148, færzla nr. 865):

Tölfræði er boring, svo:



Stríð! Þetta eru Íranir að plaffa á Írakst olíuskip í persaflóastríðinu 1980-1989.



Íranir að plaffa á T-72.



Kóreustríðið.



WW2



WW2 í lit.



Angóla.



Eþíópíumenn að sprengja Erítreumenn (1998-2000). Flott stríð þar, sem enginn tók eftir.

þriðjudagur, janúar 19, 2010

Dagur 323 ár 5 (dagur 2145, færzla nr. 864):



323



Rakst á þessa furðulegu en merkilegu könnun um daginn.

Eitthver japönsk stefnumótaþjónusta (fyrir japanska nörda) spurðist fyrir um hvað væri uppáhalds sjónvarpsþátturinn þeirra. Niðurstaðan er á þessaum lista þarna fyrir ofan. Þar er bara eitt læsilegt orð, svo hér er listinn:

Konur:
1. Gundam (all series)
2. K-ON!
3. Code Geass
4. Macross Frontier
5. Shin Seiki Evangelion / Toradora! (tie)
6. Suzumiya Haruhi no Yuutsu
7. Lucky Star
8. CLANNAD
9. Tengen Toppa Gurren Lagann
10. Minami-ke

Karlar:
1. K-ON!
2. Suzumiya Haruhi no Yuutsu
3. Lucky Star
4. Gundam (all series)
5. Saki
6. Shin Seiki Evangelion
7. Mahou Shoujo Lyrical nanoha
8. Hetalia
9. CLANNAD
10. Toradora!

Ég setti inn link á þetta, svo þið getið horft á þessa þætti ef stemming er fyrir slíku.

Þetta eru teiknimyndir. Restin af japönsku sjónvarpsefni getur verið mjög súrt.

Hvað um það, það sem vakti athygli er að 4 af 10 uppáhalds sjónvarpsþáttum kvenna fjalla um risastór vélmenni. Sem er kannski skiljanlegt, því þessir risa-vélmennaþættir eiga frekar mikið sameiginlegt með Dallas - þetta eru sápuóperur. Með vélmennum. Vélmennaþættirnir hafa líka lang besta sándtrackið. Stór hluti af tónlistinni í Evangelion er eftir Bach.

Uppáhalds þættir karla fjalla um stelpur. Japanir... ætli þetta yrði eins hérna? Þetta er svona eins og að gera könnun á sjónvarpsáhorfi á Íslandi og komast að því að uppáhaldsþáttur kvenna væri 24 og karla væri Friends.

Ég hef séð megnið af þessu. Lucky Star er í stórum dráttum Seinfeld, nema með fullt af littlum, pöddueygðum stelpum, Suzumiya Haruhi fjallar um geðveika stelpu sem fattar ekki að hún er almáttug, og CLANNAD er sápuópera með engum vélmennum. Hér er styttri útgáfan.

Í stórum dráttum: You dig giant robots, I dig giant robots, we dig giant robots, chicks dig giant robots.

Nice.

laugardagur, janúar 16, 2010

Dagur 320 ár 5 (dagur 2142, færzla nr. 863):



(Það er stjarna við kannabis vegna þess að það hefur enginn dáið úr of stórum skammti af því svo vitað sé. Neytendurnir verða bara að á lungnaþembu eins og aðrir reykingamenn.)

Fann þetta um daginn. Hérna. Mikið af skemmtilegum hlutum að sjá þarna. Áhugaverðar upplýsingar.

Það eru skv þessu 42% samræmi milli þess að vera á lyfjum og vera hamingjusamur.

Gaman.

Skoðið líka þetta. Uppörvandi, ekki satt? Nú væruði alveg til í smá Heróín.

þriðjudagur, janúar 12, 2010

Dagur 316 ár 5 (dagur 2138, færzla nr. 862):

Sko, núðlur með nautabragði innihalda ekki naut. Í staðinn er eitthvað sem bragðast eins og súputeningur í þessu, ekki veit ég hvað það stöff er.

Núðlur með rækjubragði innihalda heldur engar rækjur, heldur er í þeim efni sem á að bragðast eins og rækja. Þetta efni er mjög keimlíkt nauta-bragðefninu á bragðið, reyndar.

Það er einhver smá munur á þessu, en hann liggur í kryddi frekar en þessu bragðefni.

Svo eru það núðlur með græmnetisbragði. Ég las á hina tvo pakkana, og á þeim stóð greinilega að í nauta-núðlunum var ekkert naut og í rækjunúðlunum engin rækja, og í kjúklinganúðlunum enginn kjúklingur, svo að sjálfsögðu hefði mig ekkert undrað ef það hefði ekki verið neitt grænmeti í grænmetisnúðlunum, bara eitthver dularfull efni sem bragðast þannig.

Arsenik eða eitthvað.

Hvað um það: munurinn á grænmetis-núðlum og öðrum núðlum er að grænmetisnúðlurnar bragðast eins og tómatpúrré. Vegna þess að eins og allir vita eru tómatar frummynd alls grænmetis.

Að öðru leiti er þetta stöff allt eins.

Já. Í Kína er eitthvað stöff sem bragðast eins og naut, eitthvað stöff sem bragðast eins og rækja, eitthvað stöff sem bragðast eins og kjúklingur (og er allt sama efnið, held ég) og svo tómatur, sem er... grænmeti.

Hvaða planta er þetta sem er með kjötbragði? (Meintu kjötbragði. Meira svona eins og soð.)

Veit ekki. Veit ekki hvort ég á að nenna að hugsa eitthvað um það.

sunnudagur, janúar 10, 2010

Dagur 314 ár 5 (dagur 2136, færzla nr. 861):

Jæja, kominn til RKV aftur. Það er miklu hærra til lofts á nýja staðnum en þeim gamla. En ekkert eldhús.

Sjáið til, þess vegna voru 3 mínútna núðlur fundnar upp.

Ég þarf að fara og fá mér karton af kókómjólk til að hafa í bílnum.

miðvikudagur, janúar 06, 2010

Dagur 308 ár 5 (dagur 2132, færzla nr. 860):

Mmm... 308.

Jæja, æseivið, eins og ég skil það:

Samkvæmt mínum upplýsingum eru þetta 320.000 reikningar, af þeim ber Íslenska Ríkinu (okkur) samkvæmt lögum að greiða til baka 2.500.000 krónur hámark fyrir hvern reikning. Það getur verið allt að 800.000.000.000, eða 800 þúsund milljónir, AKA 800 milljarðar. Sem er svolítið meira en við ráðum við til að byrja með.

Ég heyrði af því í dag að Bretar hefðu neitað að borga svipaða skuld á Mön vegna þess að bankinn sem þar var að fara á hausinn greiddi skatt á Mön. Spurning fyrir okkur að gera slíkt hið sama, og losna þá við helminginn af þessu. Icesave greiddi jú skatt í bretlandi og hollandi, ekki hér.

Hvað um það; vesenið núna, þetta sem forsetinn neitaði að skrifa undir eftir mikið þref er einfaldlega samningur um að borga alla þessa 320K reikninga upp í topp. Þ.e, meira en 800.000.000.000 krónur.

1% vextir af 800.000.000.000 eru 8 milljarðar á ári, eða 250K á mann á ári.

Hljómar vel?

Gefum okkur að vinnandi menn á landinu séu 200K, og hver sé með að meðaltali 400K í laun, þá greiðum við ca. 24.000.000.000 í skatt á ári, bara af tekjunum. 1/4 (skv bjartsýnustu spám) glatast í kerfinu (fer í ekkert,) sem gerir rauntekjur 18.000.000.000 af þessu, sem fer í allt sem ríkið gerir: skóla, spítala, vegi... og bruðl og vitleysu.

Hinsvegar eru meðallaun aðeins lægri en 400K og vinnandi menn eru líklega eitthvað undir 200K... þið sjáið vandamálið.

Þetta er það sem við sitjum uppi með sama hvað. Þetta er það sem veldur því að hér verður kreppa lengur en annarsstaðar. Þetta er líklega það sem veldur því að Kínverjar eru að stækka við sig: þeir sjá að landið er að verða gjaldþrota, og þeir munu kaupa það á niðursettu verði þegar það gerist.

Þá verðum við hluti af Kína. Sem er alveg eins og að vera með VG við völd, bara minna kommúnískt.

föstudagur, janúar 01, 2010

Dagur 303 ár 5 (dagur 2127, færzla nr. 859):

Hér er meira af fjölskildunni. Þetta er síðan 1993:



Það voru eitthvað í kringum 20 mínútur af þessu, flest bara Llllaaaaannnngar senur af krökkum standandi eða sitjandi einhversstaðar.

Ég hugsaði að enginn nennti að sitja yfir meira en 3 mínútum. Svo er líka óviðeigandi epísk músík. Almennilegt sándtrakk getur gert allt *Epískt*. Meira að segja morgunverðinn.