hefur ykkur aldrei fundist að þið gætuð hreinlega bara dottið út í geiminn?
miðvikudagur, janúar 29, 2014
laugardagur, janúar 25, 2014
miðvikudagur, janúar 22, 2014
Dagur 322 ár 9 (dagur 3607, færzla nr. 1260
Fleir myndir:
Fleir myndir:
Það er löngu búið að taka þetta niður.
Herjólfur.
Gamli bíllinn minn, lengst uppi á hrauni. Það er búið að skemma þennan veg núna.
Þessi mynd hefði komið vel út í bæklingnum - en þá var náttúrlega löngu hætt að framleiða þetta módel.
Svolítið skakkur.
Svolítill tungl fílingur þarna.
Frekar auðvelt að komast þangað.
Á leiðinni til baka.
sunnudagur, janúar 19, 2014
Dagur 319 ár 9 (dagur 3604, færzla nr. 1259)
Gamlar myndir:

Þetta er áður en ég lenti í árekstrinum á þessum. Þarna er hann bara skakkur öðru megin.

Þetta hefur lítið breyst.

Allt eins.

Þetta hefur nú aðeins breyst síðan 2000. Þarna má til dæmis sjá gamla dínamítskúrinn. Hann kramdist undir grjóti seinna þetta ár, minnir mig.

Þessi rúst er hrunin, og þetta rauða hús er nú klætt með glansandi alúzinki.
Stórhöfði
Eyjar. Það er hugsanlegt að þessi mynd sé spegluð.
Þarna sjáum við áhugavert safn af bílum.
Innsiglingin. Þetta er líklegast alt tekið sumarið 2000, rétt fyrir skjálftann.
Gamlar myndir:

Þetta er áður en ég lenti í árekstrinum á þessum. Þarna er hann bara skakkur öðru megin.

Þetta hefur lítið breyst.

Allt eins.

Þetta hefur nú aðeins breyst síðan 2000. Þarna má til dæmis sjá gamla dínamítskúrinn. Hann kramdist undir grjóti seinna þetta ár, minnir mig.

Þessi rúst er hrunin, og þetta rauða hús er nú klætt með glansandi alúzinki.
Fjara
Þarna sjáum við áhugavert safn af bílum.
Innsiglingin. Þetta er líklegast alt tekið sumarið 2000, rétt fyrir skjálftann.
föstudagur, janúar 17, 2014
Dagur 317 ár 9 (dagur 3602, færzla nr. 1258)
Þá er fyrsta rafbókin eftir mig komin út:
http://www.emma.is/is/products/ohugnadardalurinn

Auðvitað er kápumyndin afar skær. Ég er ekki hrifinn af öllum þessum drungalegu kápumyndum sem allir aðrir virðast hafa.
Svo er hún líka á viðráðanlegu verði.
miðvikudagur, janúar 15, 2014
Dagur 315 ár 9 (dagur 3600, færzla nr. 1257)
Kominn tími til að monta mig af minni ægilegu smíðagetu:

Sjáið þetta. Ég loka fyrir þessa rifu á morgun.
Þessi spegill má við því að vera stærri, svona uppá lúkkið. En það er seinni tíma vandamál.
Útsýnið úr baðherberginu.
Þessi dularfulla lína bara birtist. Það var engin svona lína á veggnum. Veit ekki hvernig þetta gerðist.
Stofan, eins og hún var áðan.
Eldhúsið.
Svefnherbergið.
Stofan, úr hinni áttinni. Þetta eru garðstólarnir. Þeir hafa nýst mjög vel í að saga hluti.
mánudagur, janúar 13, 2014
miðvikudagur, janúar 08, 2014
Dagur 308 ár 9 (dagur 3593, færzla nr. 1255)
Á hvammstanga ekki alls fyrir löngu.
Allt fullt af svona.
Eitthvert skrall í gangi um allan bæ.
Pass.
Dæmigert hús á Hvammstanga.
Hvammstangi.
Rúllað eftir aðalveginum.
Já...
Þeir nenna ekki að vera í sólbaði sjálfir, svo þeir eru með gervimenn til að sjá um það fyrir sig.
Ódýrt vinnuafl.
Partý útum allan bæ.
Einn á hjóli.
Þjóðvegur.
föstudagur, janúar 03, 2014
mánudagur, desember 30, 2013
laugardagur, desember 28, 2013
Dagur 298 ár 9 (dagur 3583, færzla nr. 1252)
Maður flytur kassafylli eftir kassafylli, en samt sér ekki högg á vatni hér inni.
Of litlir kassar.
Samt: þetta gengur.
Búinn að fela rifur á veggnum með listum. Það var einfalt, og lítur betur út en ég bjóst við. Það gæti verið flott múv að lakka aðra umferð á karmana.
Sé til.

þriðjudagur, desember 24, 2013
Dagur 294 ár 9 (dagur 3579, færzla nr. 1251)
Gleðileg jól.
Hvað þá? Búinn að parketleggja, lakka dyrakarmana, negla listana aftur á sinn stað. Skilaði afgangsparketinu.
Eftir jól... aðrir hlutir.
Ég get dundað mér við að flytja smáhluti fram að áramótum. Mest tilgangslaust drasl sem er allstaðar fyrir - en sumt get ég hengt upp á vegg. Ég á td nóg af glösum.
Vaskurinn á baðherberginu verður að bíða þar til á nýju ári.
En vegna þess að það eru jól:
Santa Claus conquers the martians.
Í tilefni af því að Mikhail Kalashnikov dó í gær, maður sem hefur haft meiri áhrif á poppmenninguna en Andy Warhol: Kalashnikov song. Þetta er eitthvert gamalt sígaunalag - textinn er á sígaunamállzku sem google translate ræður ekki við nema að litlu leiti. Það er víst stafsett "Cigani."

laugardagur, desember 21, 2013
Dagur 291 ár 9 (dagur 3576, færzla nr. 1250)
Búinn að leggja parketið. Næstum 5 kassar eftir - skila þeim. Þetta var nú meira föndrið.
Á morgun er ég að spá í að lakka listana. Ég tók þá af, það olli útlitsbreytingum á þeim, svo og þeir tolldu ekki almennilega á fyrr en ég var búinn að negla svona 20 nagla í hvern þeirra. Lagaði eitthvað af því með sparsli, fel það svo með lakki.
Þetta á eftir að líta ágætlega út.

miðvikudagur, desember 18, 2013
Dagur 288 ár 9 (dagur 3573, færzla nr. 1249)
Ég á miklu meira en nóg parket. Og undirlag - 40 fm af parketi & 50 af undirlagi... auðvitað. Og undrum sætir hve lítið af þessu fer til spillis.
En ég kann náttúrlega á málband.
Þetta nær væntanlega út í vegg á morgun. Klára svo eldhúsið daginn eftir.
Líklega.

sunnudagur, desember 15, 2013
Dagur 285 ár 9 (dagur 3570, færzla nr. 1248)
Þá náði ég að leggja smá parket.
Neyddist til að taka hurðina af svefnherberginu, til þess að trimma aðeins neðan af henni. Það á eftir að taka smá stund. Ef ég geri það ekki, þá heflar hún upp parketið. Engin stemming fyrir því.
Ég held líka að ég sé með ~10 fermetrum of mikið af parketi.
Sjáum nú til hver lengi ég verð að þessu. Viku, ef ég hef alltaf svona mikinn tíma. Annars tvær.
Hérna, músík:
Franz Ferdinand & Marion Cotillard. Þetta var samið fyrir auglýsingaherferð á vegum Dior, en enginn virðist hafa heyrt það annarsstaðar en í AMV hell 5.

mánudagur, desember 09, 2013
Dagur 279 ár 9 (dagur 3564, færzla nr. 1247)
Björn á afmæli. Svo... til hamingju með það.
Hvað gerðist 1994? Nú... kennaraverkfall, minnir mig. Og allskyns ferleg músík var í útvarpinu. 2 unlimited, til dæmis. Það... mátti missa sín.
Hér eru nokkur tóndæmi frá 1994:
NiN. 19 árum seinna er þessu gaur ennþá að.
Robot Unicorn Attack lagið. AKA "Alwasy" með Erasure. Ég hélt alltaf að þetta væri cover af einhverju síðan 198X, en nei...
Og þetta er eitt af þessum lögum sem voru stundum á fleiri en einni útvarpsstöð á sama tíma, svo maður komst ekkert hjá því að heyra það. Með hljómsveit sem fólk er smám saman að gleyma: Ace of Base.
Og hvaða kvikmyndir var varið í?
Killing Zoe. Mæli með henni - hugsið ykkur ef það hefði verið eitthvað varið í "Reservoir dogs."
Stargate.
Og svo þessi:
Timecop. Er nákvæmlega jafn frábær og hún segist vera.
Þá hefur drengurinn eitthvað að dunda sér við að leita að.

fimmtudagur, desember 05, 2013
fimmtudagur, nóvember 28, 2013
miðvikudagur, nóvember 27, 2013
Dagur 267 ár 9 (dagur 3552, færzla nr. 1244)
Ísskápurinn er fullur af bjór. Háaloftið er fullt af málningu og parket afgöngum.
Gamal IKEA loftljósið virkar.
Það heyrist ekkert frá vinnunni, þannig að ég get líklega sett upp annað ljós á morgun. Og reddað mér borvél. Ég þarf eina slíka til þess að laga skápinn.
Hver var eiginlega að setja saman innréttinguna þarna uppi? Sami gaur og lagði parketið, giska ég á. Lamirnar eru minnst hálfan sentimetra frá því að passa. Það gildir fyrir tvær hurðir. Og enginn hefur nennt að laga þetta.

sunnudagur, nóvember 24, 2013
Dagur 264 ár 9 (dagur 3549, færzla nr. 1243)
Hef ansi lítinn tíma til að dútla í þessu, en:
Búinn að redda, ísskáp, sem ég þarf að ná í á morgun.
Þvottavél, hún var fokkin þung.
Hamri.
Fullt af öðrum verkfærum.
Loftljósi - en bara einu. Fann það á háaloftinu, án peru. Það er eitthvað IKEA dót, sem ég veit ekki hvort virkar ennþá.
Vantar enn:
Gardínur.
Parket - það ku vera ódýrara að leggja bara nýtt oná það gmala en að reyna að pússa það upp.
Nútímalegri vask í baðherbergið.
Rúm. Held ég tékki bara á Reynistað. Hef lúmskan grun um að það sé ekki þess virði á nokkurn hátt að vera að eltast við þetta rúm sem enginn kannast við að eiga. Vinkona Jónu má þá bara eiga það.
Hugsunin er: það rúm er gamalt, það er vesen að ná í það, kostar 25.000 að flytja það yfir, á meðan gæti það tekið í sig dularfulla lykt, eins og diesel, fisk eða eitthvað þaðan af verra, og verður aldrei ásættanlegt.
Og...
Veit ekki hvort ég á að nenna að mála.
Svo hef ég verið að týna drasl úr herberginu, kassa á dag eða svo, og flytja í rólegheitunum uppá loft. Það léttir á seinna.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)