sunnudagur, desember 04, 2011

Dagur 275 ár 7 (dagur 2830, færzla nr. 1063)

Það hefur lengi verið ljóst að alvöru, hard-core kommúnistar stjórna allt of miklu. Ég meina, þerieru ekki nema svona 12-15% af kjósendum. Svo því skyldu þeir fá að bögga okkur hin með sínum masókisma?

Ég hef lausn. Leyfum kommúnistum að pynta sjálfa sig og hvern annan, og jafnvel gæludýr, en látum þá láta okkur hin í friði.

Svo hér er:

Leiðbeiningar um hvernig þú getur verið kommúnisti án þess að það þurfi að koma niður á öllum.

1: Verzlaðu alltaf í Hagkaup eða krónubúð í öðru byggðarlagi. Til þess að fá fílinginn almennilega, þá skaltu ganga, þar sem einungis smáborgarar ferðast með strætó - mundu: gula limmósínan heldur bæði vatni og vindum.

2: Keyptu alltaf inn einu sinni í mánuði. Í sæluríki kommúnismans skal kjöt einungis borðast sem súpukjöt, og skal allt slíkt kjöt lagerast í 2-3 mánuði fyrir neyzlu. Sama gildir um mjólk og aðra slíka vöru. "Best fyrir" dagsetningar eru enda kapítalískt plott til þess að stuðla að ofneyzlu, svo allir sannir kommúnistar gefa frat í þær, og borða ekkert fyrr en það er komin lágmark mánuð fram yfir.

3: saumaðu þín eigin föt eftir þörfum og getu.

4: Ekki kynda húsið þitt/íbúðina þína. Alvöru kommar klæða af sér kuldann. Í sæluríki kommúnismans var kyndingin alltaf biluð, og þar voru veturnir -50°C. Kynding er líka bara borgaralegt snobb.

5: Öllum kommúnistum er nauðsynlegt að drekka rauðspritt.

6: Til þess að finna til valds, þarf hver sá sem vill fíla sig sem kommissar að fá sér nokkra ketti - 2-300 stykki ættu að vera nóg í viku, og svelta þá alla í hel, grafa þá í bak-garðinum og þræta fyrir að hafa átt þá, eða að það hafi nokkurntíma verið til kettir, nokkurntíma. Ef kettir eru ekki fáanlegir, þá má notast við hunda. Ekki hefur talist ráðlegt að nota fólk í þessum tilgangi - ekki síðan 1975, amk.

7: Kommúniskar bókmenntir þarf að hafa við hendina. Þegar þú hefur klárað öll verk Maxím Gorkí, Leníns og Rauða Kverið, þá er ágætt að lesa símaskrána. Frá 1987. Afturábak. Vegna þess að símaskráin er raunsæ.

8: Ef þú velur að eiga sjónvarp, þá er kommúnískast að horfa á RÚV. Og þú skalt aldrei slökkva á sjónvarpinu undir neinum kringumstæðum, til þess að stjórnvöld geti alltaf talað við þig.

9: vertu mjög reiður. Þú þerft ekki að vera reiður við neinn sérstaklega, eða út af neinu. Það er bara afar kommúnískt að vera reiður. Eins og Tjégivara. Hann var alltaf reiður.

10: Allir sem eru gáfaðari en 8 ára barn eru vondir. Mundu það. Þess vegna skaltu halda þig sem lengst frá skólum landsins, læknum eða nokkrum stað þar sem eru stéttir sem þarfnast meira en grunnskólanáms til að komast í. Einnig er til marks um skaðlega greind: Lestur annars efnis en séð&heyrt, áhugaleysi um hvað Gillz er að gera og geta til að geta talað í korter án þess að segja "hvað varðar."

11: þeir sem lesa séð&heyrt og hafa áhuga á verkum Gillz eru smáborgarar, og þar af leiðandi illir. Dreptu 7 ketti og feldu líkin í garðinum til þess að leiðrétta þig eftir að hafa spjallað við slíkt fólk.

12: ef þú hefur lækað síðu á feisbúkk, dánlódað músík eða ert jafnvel að lesa þennan texta, þá ert þú með internet, og ert þar af leiðandi óforbetranlegur burgeozee og getur aldrei orðið hard-core kommúnisti.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli