miðvikudagur, janúar 10, 2007

Dagur 307 ár 3 (dagur 1037, færzla nr. 504):

Hver vill ekki búa í þessum kofa? Ég meina, þetta er töluvert meira en 2 herbergja íbúð í Breiðholti með afnot af einu bílastæði og róluvelli nálægt. Það eru sko pyntingagræjur í þessu! Setjið krakkana þar í staðinn, og ólið kvikyndin niður. Miklu betra.
Nú, ef fólk spyr hvaða læti þetta séu í þeim, þá bara segiði rólega: "Ah, börn næturinnar; hve fallega tónlist þau gera!" Eða eitthvað svoleiðis.

En eins og þetta væri nú allt gaman, þá á ég ekki fyrir þessu húsi. Eða krakka til að setja í pyntingatækin. Yrði að fá þá lánaða einhversstaðar. Kannski hjá fólkinu sem býr í kastala Elísabetar Bathory nokkrar dagleiðir frá?


Hmm... hann lítur út fyrir að hafa hrunið svolítið. Jæja...

***




Sjáið þetta bara. Flott, ha?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli