laugardagur, janúar 20, 2007

Dagur 317 ár 3 (dagur 1047, færzla nr. 507):

Óerótískasta erótíska myndin.



Í leit minni að sniðugri mynd til að setja hérna þegar sú síðasta hyrfi fyrir horn kom ég auga á þessa mynd, af manneskju hangandi niður úr rjáfri einhvers strákofa, þakin mold. Mér varð strax hugsað til allra þessara misheppnuðu mynda sem eru miklu frekar fyndnar eða á einhvern hátt bjánalegar en erótískar.

Án þess þó að ég fari að útskýra í löngu máli hvað erótík á eiginlega að vera.



Þessi hefur það allt svoa við fyrstu sýn: þarna er ber dama, ekkert illa vaxin eða hrukkótt, ekki bringuhár í augsýn - þau eru sko öll á bakinu. Allt mjög tilgerðarlegt: svarthvít mynd, og manneskjan í stellingu sem maður kannast við frá fitness liðinu. Sem er kannski ástæða þess að þetta er afar truflandi mynd. Kallar upp í hugann fitess dömurnar, sem eru æðaberar og glansandi eins og þær hafi verið bornar smjöri, og dökkar líkt og þær hafi dvalið í ofninum í svona korter.

Sem segir ykkur það, að ef hvað sem það er sem þið settuð í ofninn með smjöri á kemur glottandi út aftur og setur sig í stellingar, þá var það ekki nógu lengi þar inni - eða það var ekki nægur straumur á.

Og hún mynnir mig á áróður kommúnista. Ég gæti séð fyrir mér einhverjar línur í þessum dúr: "Marishka er Sovéskum klámiðnaði til mikils sóma; hefur leikið í 2000 klámmyndum og birst í öllum tölublöðum "Erótíska Alþýðumannsins" undanfarin 5 ár. Hún er án efa besti klám-iðnaðarmaður í heimi." Osfrv.




Á hvað er hún að benda? Sullaði hún á sig tómatsósu þegar þær fengu sér hamborgara á MacDonald's? Uss, hún nær því aldrei af.



Þetta er ofur-bókasafnsvörðurinn - eða eitthvað. Það er ekkert reynt einusinni. Hvað drakk hún mikið áður en hún ákvað að standa þarna sveiflandi þessari tusku? Þið getið föndrað við að tékka á því heima hjá ykkur. Hve mikinn vodka þarf vinkona þín að drekka áður en hún fer úr öllu og byrjar að breiða úr sér víðsvegar um stofuna?



En ég held samt að þessi fái vinninginn, og ég skal útskýra af hverju:

Hugsaðu þér að þessi manneskja myndi banka uppá hjá þér eitt kvöld, klædd einingis þessum skóm. Myndir þú bjóða henni inn ef hún bæði um það? Sennilega.

En ef hún héldi líka á þessu sverði og horfði svona á þig? Allt í einu er það orðin slæm hugmynd að bjóða henni inn. Vegna þess að hver er það sem hleypur um nakinn með sverð? Geðsjúklingur auðvitað!

Það kerfi innan líkamans sem býr mann undir átök við ofbeldisfulla geðsjúklinga er einfaldlega ekki samræmanlegt því batteríi sem fer í gang við friðsamlegri samskifti.

Ef hún brosti vingjarnlega og héldi á köku horfði málið öðruvísi við. Þó hún væri svolítið skrýtin þá bryti hún amk ekki innanstokksmuni með kökunni ef hún kæmist inn. Þannig að ef það bankar uppá hjá þér nakin dama með köku, bjóddu henni þá kaffi. Eða te. Hvort heldur sem er til. Eða mjólk.

Ég er svangur.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli